Læknablaðið - 15.10.1999, Blaðsíða 20
784
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
%
50-
40-
30-
20-
10-
■ Males
□ Females
■IU
I
50-54 55-59 60-64 65-69 70-74 75-79 80 +
Age/years
Fig. 6. Age and sex specific prevalence of posterior subcapsular
lens opacification. Grade 1-111. Right eyes (n=25).
Fig. 7. Age and sex specific prevalence of percent of grade 11 and
III lens opacification. Right eyes (n=172).
Table V. Age and sex specific prevalence of nuclear lens opacification, pure and mixed with other types oflens opacification. Grade I-
III. Riglit eyes (n=195).
Age/years 50-59 60-69 70-79 80+
Females Males Females Males Females Males Females Males
Nuclear 0.5% 0.0% 3.8% 4.9% 5.2% 7.7% 0.0% 9.1%
Nucl.Mix 0.0% 1.8% 9.1% 6.3% 38.5% 31.6% 55.8% 48.5%
0.5% 1.8% 12.9% 11.2% 43.7% 39.3% 55.8% 57.6%
tækur munur var á milli kynja að þessu leyti. I
töflu III eru teknir saman þeir einstaklingar
sem greindust með tæra augasteina á báðum
augum.
Augasteinar 73 einstaklinga í úrtakinu höfðu
verið fjarlægðir vegna skýs. Hjá 3,0% karla
hafði augasteinn verið fjarlægður úr hægra
auga en hjá 4,6% kvenna. Hjá 4,0% kvenna
hafði augasteinn verið numinn úr vinstra auga
en hjá 2,0% karla. Hlutfallslegur fjöldi fjar-
lægðra augasteina úr hægri augum er sýndur á
mynd 3. Þar sést ljóslega hvernig tíðni aðgerða
eykst upp úr sjötugu og nær hámarki hjá elsta
hópi þátttakanda (yfir áttrætt) en af þeim hefur
fjórðungur kvenna og fimmtungur karla farið í
augasteinsaðgerð.
Skýjun í berki var algengasta formið og
50,9% kvenna í úrtakinu höfðu slík ský án ann-
arra breytinga í hægra auga. Við þessa tölu má
bæta við 17,9% sem höfðu breytingar á berki
ásamt með breytingum í kjarna og/eða aftur-
hýði. Rétt rúmlega % hlutar kvennanna í úrtak-
inu höfðu því skýmyndun á berki. Tölurnar fyr-
ir karlana voru afar svipaðar, þar sem 50,9%
karlanna höfðu einungis breytingar á berki í
hægri augastein og 14,3% að auki sem voru
með breytingar í berki í samfloti við ský í
kjarna og/eða afturhýði. Á mynd 4 má sjá
dreifingu skýs á berki eftir aldri og kyni. Þar
sést að strax í aldurshópnum 50-54 ára eru 45%
þátttakenda af báðum kynjum með breytingar á
berki. Hæst verður hlutfallið í aldurshópnum
75-79 ára, þar sem nálega 80% af báðum kynj-
um eru með skýmyndanir á berki í hægri auga-
steini. I elsta aldurshópnum virðist sem þetta
hlutfall fari ininnkandi en það á sér meðal ann-
ars skýringu í hinu stóra hlutfalli úr þeim hópi
sem hefur farið í aðgerð til að fjarlægja skýjaða
steina. Þess má geta að allar konur í úrtakinu
80 ára og eldri, sem voru með sinn eigin auga-
stein á hægra auga, voru með skemmdir á
berki. Tafla IV sýnir hlutföllin milli þeirra sem
voru einungis með ský á berki hægri augasteins
og þeirra sem voru með skýmyndanir á berki
ásamt breytingum á kjarna og/eða afturhýði.
Stök ský á berki eru mjög algeng í yngsta ald-
urshópnum og þeim virðist fjölga upp að sjö-
tugu, en eftir það minnkar vægi þeirra. Blönd-
uðu breytingarnar þar sem skýmyndun á berki
fer saman með breytingum í kjarna eða við