Læknablaðið - 15.10.1999, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85
785
afturhýði, koma hins vegar inn í myndina af
miklu afli eftir sjötugt og fjölgar fljótt eftir það.
Af þessu má ráða að hjá stórum hluta einstak-
linga byrja skýmyndanir á berki fyrir fimm-
tugt. Eftir að sjötugsaldrinum er náð virðast
svo bætast við skýmyndanir á öðrum stöðum,
sem eftir áttrætt verður til þess að fjórðungur
kvenna og fimmtungur karla þarf að fara í að-
gerð og láta fjarlægja steinana.
Tíðni skýja í kjarna er sýnd aldurs- og kynja-
skipt á mynd 5. Eins og þar sést, lúta skýjanir í
kjarna allt öðrum tímalögmálum heldur en
skýjanir á berkinum. Nær ekkert er um að fólk
í yngstu hópunum greinist með slíkar skemmd-
ir. Upp úr sextugu byrjar hins vegar boltinn að
rúlla og algengið eykst hröðum skrefum allan
aldurstigann. I elsta aldurshópnum sést að
rúmlega 55% einstaklinga af báðum kynjum
eru komnir með breytingar í kjarna. Um leið er
fróðlegt að skoða töflu V sem sýnir hlutfallið
milli þeirra sem hafa einungis ský í kjarna og
hinna sem hafa breytingar í kjarna samhliða
blönduðum breytingum annars staðar á auga-
steininum. Þar sést að „hreinar“ breytingar í
kjarna eru fátíðar, sérstaklega hjá konum.
Stærsti hluti þeirra sem hafa kjarnabreytingar
virðast því hafa þær samhliða öðrum skýmynd-
unum.
Sjaldgæfasta gerð skýja er við afturhýði eins
og sést á mynd 6. Tíðni þessara skýja virðist
aukast lítillega með aldri og hegðar sér á engan
hátt eins og hinar gerðirnar. Af 25 skýjum við
afturhýði, sem í heild greindust á hægra auga
voru aðeins fjórir einstaklingar með „hreinar“
breytingar. í hinum 21 voru samhliða breyting-
ar á öðrum svæðum augasteinsins. Þrír af þess-
um fjórum voru í aldurshópnum 50-59 ára.
Ef litið er á styrkleikastig skýja og einblínt á
gráðu II og þaðan af svæsnari breytingar, þá
kemur í ljós að slíkt er sjaldgæfar fram undir
sextugt (mynd 7). Eftir sjötugt er þriðjungur
kvenna og fjórðungur karla með ský af þessum
styrkleika. Konur eru allra jafna hlutfallslega
fleiri í þessum hópi nema þegar kemur að elsta
hópnum þar sem 54,5% karla og 46,5% kvenna
eru með annarrar gráðu breytingar eða þaðan af
verri. Það má þó ekki gleyma_því að í þessum
hópi eru fleiri konur (25,6%) heldur en karlar
(21,2%) búnar að fara í augasteinsaðgerð.
Umræða
Ljóst er að um helmingur fólks í yngsta ald-
urshópnum (50-54 ára) er þegar kominn með
væga skýjun. Þetta er ívið hærra hlutfall en í
sumum erlendum rannsóknum (9) en þess ber
að gæta að við notum næmari rannsóknarað-
ferð. I okkar rannsókn kemur í ljós að allar
breytingar í yngsta aldurshópnum eru af fyrstu
gráðu og nær eingöngu bundnar við börk auga-
steinsins. Mikil aukning verður greinilega á al-
gengi skýjunar með hækkandi aldri sérstaklega
hjá fólki á aldrinum 65-80 ára, sem er í sam-
ræmi við innlendar og erlendar rannsóknir
(2,4,5,6,8,9). Milli sextugs og sjötugs fer að
sjást meira af annars og þriðja stigs breytingum
og breytingar eru ekki nær eingöngu bundnar
við börk heldur sést vaxandi tíðni skýjunar í
kjarna. Skýjun í kjarna er afar sjaldgæf ein sér
og er alla jafna í samfloti með breytingum á
berki. Frá áttræðisaldri verður mikil fjölgun á
augasteinsaðgerðum og í elsta hópnum, það er
80 ára og eldri, er fimmti hver karl og fjórða
hver kona búin að fara í slíka aðgerð. I þessum
hópi er enginn með tæran augastein enda
greinileg línuleg fækkun frá fimmtugsaldri.
Eftirtektarvert er hið mikla samræmi á skýjun
milli augna sama einstaklings, bæði hvað varð-
ar tegund og stig.
Enginn marktækur kynjamunur var á algengi
skýjunar í okkar úrtaki. I einni íslenskri rann-
sókn (2) fundust marktækt fleiri konur en karl-
ar með ský í aldurshópnum yfir 63 ára. Niður-
stöður erlendra rannsókna eru mismunandi
hvað þetta varðar. I Framingham-rannsókninni
(9) reyndust marktækt fleiri konur hafa ský á
augasteini og í Beaver Dam- og Blue Moun-
tain-rannsóknunum (5,6) reyndust konur hafa
marktækt oftar ský á berki en karlar. I nýlegum
sænskum rannsóknum (10,11) kom í ljós að
gerðar voru tvöfalt fleiri augasteinsaðgerðir á
konum en körlum. Niðurstöður úr annarri rann-
sókninni (11) bentu til þess að konur með miðl-
ungs sjónskerðingu á verra auga, leituðu fyrr til
læknis en karlar. Sams konar kynjamunur kom
fram í aðgerð á seinna auga. í bandarískri rann-
sókn (5), í áströlskum rannsóknum (6,12) og í
ítalskri rannsókn (13) er algengi skýjunar við
afturhýði algengara en í okkar úrtaki. Þessi teg-
und skýjunar veldur fyrr sjóntruflunum en
skýjun annars staðar í augasteini og á sér aðra
áhættuþætti.
Tvennt veldur einkum erfiðleikum í saman-
burði við erlendar rannsóknir; annars vegar eru
sumar þeirra gerðar á hentugleikaúrtökum í
stað slembiúrtaka eins og við notum og hins
vegar er um mismunandi aðferðir og flokkun-