Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 51

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 811 1909 - Læknafélag Reykjavíkur 90 ára - 1999 Árni Björnsson Stiklur úr sögu félagsins Inngangur Þegar formaður Læknafé- lags Reykjavíkur bað mig á liðnu vori að semja ágrip af sögu félagsins fyrir væntan- legt níræðisafmæli, gerði ég mér vel ljóst að það væri ekki létt verk, ef vel átti að gera, en féllst þó á að reyna. Eins og ég bjóst við reyndist verkið nokkuð torsótt en á hinn bóg- inn var mjög fróðlegt og gam- an að fara yfir þau gögn sem til eru um félagið. I fyrstu las ég yfir þann úr- drátt úr fundargerðum félags- ins sem eru í Læknablaðinu en komst fljótt að raun um að þær eru eins og undanrenna, það vantaði rjómann, svo ég ákvað að lesa fundargerðar- bækurnar sjálfar eftir því sem kostur væri á en með því fannst mér ég komast nær anda félagsins. Fundargerð- imar eru að vísu misnákvæm- ar og misvel skrifaðar en þær gefa glögga hugmynd af fé- lagsandanum og hvernig hann hefur breyst á þessum 90 ár- um sem liðin eru frá því að níu læknar komu saman til að stofna Læknafélag Reykjavík- ur, en það sem hratt stofnun þess af stokkunum var stofnun Sjúkrasamlags Reykjavíkur, sem þurfti að hafa einhvem ábyrgan aðila til að semja við um kaup og kjör lækna og læknar þurftu að standa saman um hagsntuni sína. Síðan hef- ur saga LR og SR tvinnast saman, allt þar til SR var sam- einað Tryggingastofnun ríkis- ins um áramótin 1989/1990. í þeirri sambúð hefur gengið á ýmsu og er sú saga svo fyrir- ferðarmikil á braut félagsins og áhugaverð á margan hátt, að hún gæti verið sérstakt rannsóknarefni fyrir áhuga- saman félagsfræðing eða stjórnmálafræðing. Annað kalláði líka á félags- stofnun og það var þörfin fyrir faglega upplýsingu og við- haldsmenntun. Hér voru engar lækningastofnanir, sem hægt var að sækja fræðslu til. Þó að hér væri háskóli, þá var hér engin akademía og ekki var hér neitt tímarit um læknis- fræðileg efni. Samt er það höfundi stöðugt undrunarefni hve vel íslenskir læknar fylgdust með nýjungum í læknisfræði á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar. Sagan sem hér er sögð er Formenn LR frá upphafi Guðmundur Magnússon 1909-1916 Sæmundur Bjarnhéðinsson 1916-1918 Andrés Fjeldsted 1918-1919 Jón Hjaltalín Sigurðsson 1919-1920 Gunnlaugur Claessen 1920-1922

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.