Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 60

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 60
818 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 Fræðslustarf Frá upphafi var LR helsti vettvangur viðhaldsmenntun- ar lækna á Islandi. Allt lil árs- ins 1979 voru fræðsluerindi, eitt eða fleiri, fastir liðir á flestuin fundum LR. Þá var lögum breytt þannig að stjórn- inni er gert að halda að jafnaði tvo fundi á ári um félagsleg málefni og sama ár tilkynnti yfirlæknir Landakotsspítala að almennir fræðslufundir þar verði lagðir niður vegna lé- legrar aðsóknar. Eftir það eru nokkrir almennir fundir með fræðsluerindum haldnir á Landspítalanum og Borgar- spítala, en af sömu ástæðu lögðust þeir niður. Meðan læknar voru ekki jafn mikið á ferð og flugi og nú fluttu læknarnir hér í Reykjavík erindi um flest sem þeim lá á hjarta og þeir höfðu víðari og dýpri þekkingu á en aðrir. Þessir fundir voru vett- vangur líflegra skoðanaskipta vegna þess að vandamálin sem glímt var við voru vanda- mál allra, áður en sérgreina- skiptingin sem nú ríkir kom til sögunnar. Það var líka skyldu- bundin venja, að segja stéttar- bræðrunum frá því sem fyrir þá menn bar, sem voru svo lánsamir að geta sótt fróðleik til kolleganna erlendis. Þá var föst venja að læknar nýkomnir frá námi héldu erindi á fund- um LR svo kollegarnir mættu verða þess vísari hvaða speki þeir fluttu með sér heim á Frón og hvernig sú speki mætti nýtast. Erlendir læknar, sem slæddust hingað stöku sinnum, voru auðvitað aufúsu- gestir. Allt fram til seinni stríðsloka voru slíkar heim- sóknir þó fremur sjaldgæfar, en með bættum samgöngum svo og því að íslenskir læknar kynntu sig erlendis og kynnt- ust æ fleiri kollegum handan hafanna, fjölgaði slíkum heimsóknum. Það er aðdáun- arvert hversu duglegir margir læknar hafa verið við að semja erindi til að flytja á fundum og þegar horft er til baka sést líka hve víðtæk þekking þessara manna var og hversu mikla þjóðfélagslega yfirsýn þeir höfðu. Sjúkdómarnir sem koma aftur og aftur inn á dagskrá fé- lagsfunda fyrstu áratugina og allt fram yfir miðja öldina voru holdsveiki, sullaveiki og berklar en líklega eru fáir sjúkdómar eða lækningaað- ferðir sem ekki hafa einhvern tímann verið til umræðu á fundum LR. Sjúkdómar og og mál tengd læknisfræði og læknum sem eru enn í dag á dagskrá lækn- isfræðinnar hafa verið rædd á fundum félagsins, sum allt frá stofnun þess. Nokkur dæmi: Á einum af fyrstu fundum fé- lagsins flutti Sæmundur Bjarnhéðinsson erindi um húðflutninga á brunasár, Dav- íð Scheving Thorsteinsson flutti erindi um siðfræði lækna á fundi í maí 1918 og í maí 1924 flutti Guðmundur Finnbogason landsbókavörð- ur erindi um gæðamat sjúk- linga á störfum lækna og stakk upp á tölfræðilegum mælikvarða. I fundargerð seg- ir að erindið hafi vakið mildar mótbárur fundarmanna. Fyrsta konan sem hélt erindi á læknafundi var Katrín Thor- oddsen og talaði um dyspep- sia infantum og á fundi í apríl 1964 flutti doktor Jón Löve erindi um grundvallaratriði erfðafræðinnar. Sem dæmi um svolítið sérstætt fyrirlestrar- efni má nefna erindi Magnús- ar Einarssonar dýralæknis í desember 1919 um fætur hesta. Magnús var reyndar félagi í LR og tók oft til máls á fundum, ineðal annars um sullaveiki. Það væri of langt mál að dvelja við erindi sem erlendir læknar hafa flutt á vegum LR en þar kennir margra grasa. Árið 1942 var fyrst reynt að stofna til námskeiðs fyrir lækna á vegum LR. Þá var skipuð þriggja manna nefnd til að sjá um undirbúning og framkvæmd á læknanámskeiði Víkingur H. Einar Guðmundur Þorvaldur Veig- Örn Smári Arnórsson Baldvinsson Oddsson ar Guðmundsson Arnaldsson 1970-1972 1972-1974 1974-1976 1976-1978 1978-1982

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.