Læknablaðið - 15.10.1999, Page 63
Durogesic FORÐAPLÁSTUR;
N 02 A B 03 X R E
Eiginleikar: Forðaplásturinn er ætlaður til
samfelldrar meðferðar með fentanýli. Fentanýl
er sterkt morfínlyf sem fyrst og fremst binst
p-viðtökum. Ábendingar: langvinnir verkir, af
völdum illkynja sjúkdóma, sem eru næmir fyrir
morfínlyfjum. Frábendingar: Slævð öndun.
Varúð: Aukinn heilaþrýstingur, minnkuð
meðvitund, meðvitundarleysi og órói í kjölfar
neyslu áfengis og svefnlyfja. Hægur
hjartsláttur. Astmi. Slímsöfnun í lungum.
Samtímis notkun annarra slævandi lyfja.
Fylgjast þarf náið með sjúklingum með
skerta lifrar- eða nýmastarfsemi svo og
Öldruðum sjúklingum og sjúklingum í
kröm. Meðganga og brjóstagjöf:
Morfínlyf geta hamið öndun hjá nýburum.
Ef um langvarandi notkun lyfsins á
meðgöngu hefur verið að ræða má gera
ráð fyrir fráhvarfseinkennum hjá baminu
eftir fæðinguna. Fentanýl berst í
brjóstamjólk í nægilegu magni til þess
að hafa áhrif á bamið, jafhvel þó að gefnir
séu venjulegir skammtar. Aukaverkanir:
Algengustu aukaverkanir eru
ógleði/uppköst (28%) og syfja (23%).
Alvarlegasta aukaverkunin er hömlun
öndunar og er skammtaháð, en þessi
aukaverkun er sjaldgæf hjá sjúklingum,
sem myndað hafa þol gegn morfínlyfjum.
Algengar (>1%): Almennar: Kláði.
Hjarta- og œðakerfi: Lágur blóðþrýsting-
uri hægur hjartsláttur. Miðtaugakerfi:
Syfja, rugl, ofskynjanir, sæluvíma.
Hörnlun öndunar. Meltingarfæri: Ógleði,
uppköst, hægðatregða. Húð: Erting í
Plástursstæðinu (roði, kláði, útbrot).
Þvagfæri: Þvagteppa. Húðertingin hverfur
venjulega innan sólarhrings eftir að plástur
hefur verið fjarlægður. Sjúklingar, sem
fá morfínlyf, geta myndað þol og einnig
°rðið háðir lyfínu. Milliverkun: Fentanýl
samverkar með barbítúrsýrulyfjum.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Skömmtun er einstaklingsbundin og byggir
á almennu ástandi sjúklings svo og á fyrri
sögu um notkun morfínlyfja. Hafí sjúklingur
pkki fengið sterk morfínlyf áður ber að stilla
mn stuttverkandi morfínlyf fyrst og síðan
breyta þeim skammti yfir í Durogesic.
Skammtur lyfsins er svo endurskoðaður með
jöfnu millibili þar til æskilegum áhrifum er
náð. Þegar breytt er úr morfínlyfjum til inntöku
eða stungulyQum yfír í Durogesic skal nota
eftirfarandi til leiðbeiningar:
E Leggið saman notkunina á sterkum
verkjalyfjum síðasta sólarhring.
2- Ef sjúklingurinn hefur notað annað lyf en
m°rfín, breytið þá yfir í jafngildisskammt (sjá
sérlyfjaskrá) af morfíni til inntöku.
3- Notið töflu (sjá sérlyfjaskrá) til þess að ákveða
uPphafsskammt Durogesic og miðið við
niorfínskammt til inntöku á sólarhring. (90 mg
morfíni til inntöku á dag er sambærilegt við
Durogesic 25 míkróg/klst. Þannig skal nota
Durogesic 50 míkróg/klst. ef morfínskammtur til
•nntöku er 135-225 mg/sólarhring). Skipta skal um
Pjástur eftir 72 klst. Hæfilegur skammtur fyrir hvem
oinstakling er fundinn með því að auka skammtinn
Par til verkjastillingu er náð. Fáist ekki nægjanleg
verkun af fyrsta plástri, má auka skammtinn eftir 3
uaga. Síðan er unnt að auka skammtinn á þriggja
uaga fresti. Þurfi sjúklingurinn meira en 100
Jftíkróg/klst. má nota fleiri en einn plástur í senn.
Durogesic skal líma á efri hluta líkamans eða á
uPphandlegg og á ógeislaða, slétta, og heilbrigða
húð. Ef hár eru á staðnum ber að klippa þau af en
ffki raka en hárlaus svæði em æskilegust. Ef þvo
Parf svæðið áður en plásturinn er settur á, skal gera
Pað með hreinu vatni. Ekki má nota sápu, olíu, áburð
epa önnur efni sem geta ert húðina eða breytt
eiginleikum hennar. Þegar skipt er um plástur skal
hann settur á annan stað. Fyrri stað má ekki nota
jyrr en eftir nokkra sólarhringa. Skammtastærðir
uanda börnum: Lítil reynsla er af notkun lyfsins
d meðferðar hjá bömum. Athugið: Durogesic
a ekki að nota gegn bráðaverkjum eða verkjum
eihr skurðaðgerðir.
^akkningar og verð 1.4.1999: Forðaplástur
míkróg/klst.: 10 cm2 2x5 stk. - 5.868 kr.
orðaplástur 50 míkróg/klst. : 20 cm2
stk. - 10.009 kr. Forðaplástur
J5 míkróg/klst.: 30 cm2 2x5 stk. -
an ^9.kr. Forðaplástur 100 míkróg/klst:
^ cm2 2x5 stk. - 16.336 kr.
THORARENSEN LYF
Vainagarðar 18 ■ 104 Rcykjavfk • Sfmi 530 7100
❖ JANSSEN-CILAG