Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 74

Læknablaðið - 15.10.1999, Page 74
830 LÆKNABLAÐIÐ 1999; 85 skiptast menn eftir vinnustöð- um, sjúkrahúsum, heilsugæslu eða eigin stofu. I þriðja lagi getur verið munur á aðstöðu og kjörum lækna eftir aldri og kynslóðum enda er mjög al- gengt að menn fylgi einhverju kerfi sem var við lýði þegar þeir hófu störf. I fjórða lagi hefur konum fjölgað í lækna- stétt á síðari árum og sérgreina- val kynjanna er mjög ólíkt. Við þetta má bæta að þeir búa við mjög mismunandi launa- kjör og greiðslufyrirkomulag jafnvel innan sömu stofnunar. Þegar litið er til hjúkrunar- fræðinga sést að þeir eru mun einsleitari hópur. Þeir skiptast að vísu í sérgreinar en hvað öll kjör og aðstöðu snertir er staða þeirra mjög áþekk. Nið- urstaðan er því sú að í saman- burði við hjúkrunarfræðinga og raunar ýmsar aðrar fag- stéttir eru læknar mjög sund- urleitur hópur.“ - Ertu þá að segja að hags- munir lækna séu mjög mis- munandi? „Já, það hefur komið glöggt fram í fjölmiðlaumræðu síðustu ára, svo sem um deilur heim- ilislækna og annarra sérfræð- inga. Læknar reyna hins vegar að standa saman út á við þegar á reynir en það hefur verið þeim mjög erfitt síðustu árin.“ Stjórnvöld hafa ýtt undir átök - Þú slærð því föstu að læknar hafi haft meira út úr samskiptum sínum við stjórn- völd hvað einkarekstur varðar og að stjórnvöld hafi ekki gripið til neinna aðgerða sem eru í beinni andstöðu við læknasamtökin. „Þetta sést glöggt á því að bæði í lögum um heilbrigðis- þjónustu og í þingsályktun- inni Islensk heilbrigðisstefna frá 1991 er lögð mikil áhersla á að efla göngudeildir og op- inbera heilsugæslu í tengslum við sjúkrahús en því hefur ekki verið hrundið í fram- kvæmd. A sama tíma hafa for- ystumenn lækna gert þær at- hugasemdir við heilbrigðis- stefnuna að það hljóti að vera yfirsjón að hvergi sé rætt um einkarekstur lækna. Ég fæ ekki betur séð en að afstaða LI eigi þátt í því að göngudeild- arstarfsemi er eins takmörkuð og raunin er.“ - En þú segir líka að að- gerðir stjórnvalda hafi bein- línis aukið á sundurlyndi og innbyrðis átök lækna. „Já, þar er ég að vísa til ferliverkareglugerðarinnar frá 1993. Árið áður bað þáver- andi heilbrigðisráðherra, Sig- hvatur Björgvinsson, Ríkis- endurskoðun að gera úttekt á starfskjörum lækna. Niður- staða hennar var sú að greiðslukjör og launafyrir- komulag lækna væri „flókið og margbrotið", þeir fengju laun frá mörgum aðilum og að þau væru þeim mun hærri sem þau kæmu frá fleiri aðilum. Einnig væru launakjör þeirra misjöfn eftir sérgreinum og ekki síður aðstöðu þeirra til að vera í einkarekstri. í kjölfar þessarar úttektar var skipuð nefnd til að sam- ræma störf þeirra aðila sem greiða læknum laun, fyrst og fremst Tryggingastofnunar sem greiðir sérfræðingum fyr- ir störf sín og ríkisins sem greiðir sjúkrahúslæknum laun. Sú samræming komst aldrei á og það sem meira er að ferliverkareglugerðin bætti enn frekar við frumskóginn. Þar kom til sögunnar enn einn þátturinn sem sundrar stétt- inni. Með tilkomu reglugerð- arinnar hafa sumir læknar get- að stundað ferliverk inni á sjúkrahúsum gegn því að greiða aðstöðugjald. Við það eykst munurinn á milli þeirra sem geta unnið slík verk og hinna sem starfa eingöngu sem launamenn á sjúkrahús- unum. Sjálfsagt hefur tilgang- ur þessarar reglugerðar verið sá að stuðla að sparnaði í kerf- inu en það hefur ekki verið gerð nein úttekt á því hvort sá sparnaður hafi í raun náðst. Eina breytingin sem gerð hef- ur verið á þessu kerfi er sú að Tryggingastofnun kemur ekki lengur við sögu ferliverka heldur fá sjúkrahúsin sérstaka fjárveitingu til þess að greiða fyrir þau og þau taka líka við aðstöðugjaldi lækna.“ Kerfið hentar ekki öllum læknum - Þú staðhæfir í ritgerð þinni að það kerfi sem orðið hefur til þjóni fyrst og fremst hluta læknastéttarinnar hvað varðar aðstöðu til einkarekstrar. „Já, það munu vera sam- þykktar 39 sérgreinar hér á landi og það liggur í augum uppi að þær bjóða upp á mjög misjafna aðstöðu til einka- rekstrar. Heilaskurðlæknir fer til dæmis ekki með góðu móti út í einkarekstur í núverandi kerfi. Það er alltaf hluti stétt- arinnar sem starfar eingöngu á sjúkrahúsum og hefur ekki í önnur hús að venda en eins og stefnan er þá virðist mér hún fyrst og fremst miðast við þann hóp sem er bæði með stöðugildi á stofnun og í einkarekstri. Samkvæmt upp- lýsingum frá Tryggingastofn- un ríkisins er það líklega tæp- ur helmingur sérfræðinga- hópsins. Einungis lítið brot af hópnum er eingöngu í einka- rekstri. Það leynir sér heldur

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.