Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.10.1999, Síða 95

Læknablaðið - 15.10.1999, Síða 95
| Nasonex mómetason furoat - nefúði, dreifa - nýr barksteri í vatnslausn Ahnfarikt 28% sjuklinga fa merkjanleg ahrif innan 12 klukkustunda Mómetasón fúróat er öflugur barksteri (af flokki III) Litil hætta er a kerfisbundnum ahrifum (< 0,1%) (8% á móti 5% lyfleysu) Einn skammtur a dag Handhægar umbúöir * Schðring-Plough ííj Nasonex 1 mikror, dos/annos Nasonex Schering-Plough A/S, 960233 NEFÚÐI, DREIFA; R 01 A D : R E Hver úöaskammtur inniheldur: Mometasonum INN, furoate, monohydrat, samsvarandi Mometasonum INN, furoate 50 mikróg. Ábendingar: Nasonex nefúði er notaður fyrir fullorðna og börn 12 ára og eldri til meðhöndlunar á árstíðabundnum eða heilsárseinkennum ofnæmisnefkvefs.Hjá sjúklingum sem hafa sögu um miðlungs eða alvarleg einkenni af árstíðabundnu ofnæmisnefkvefi, má nota Nasonex fyrirbyggjandi í allt að fjórar vikur áður en frjókornatímabilið hefst. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum Nasonex. Ekki ætti að nota Nasonex ef um ómeðhöndlaða, staðbundna sýkingu er að ræða í nefslímhúð. Sjúklingar, sem nýlega hafa gengist undir skuröaðgerðir á nefi eða eru með áverka á nefi, ættu ekki að nota barkstera í nef fyrr en sárin hafa gróið að fullu, þar sem þeir hamla að sár grói. Varúð: Nasonex nefúða skyldi ekki nota, eða þá með mikilli varúð. ef sjúklingar hafa virka eða óvirka berklasýkingu i öndunarfærum eða ómeðhöndlaða sveppa- sýkingu. bakteríusýkingu. útbreidda veirusýkingu eða herpessýkingu í auga. Eftir 12 mánaða meðferð með Nasonex nefúða sáust engin merki um rýrnun í nefslímhúð. Eins og við alla langtimameðferð þarf að skoða reglubundið þá sjúklinga sem nota lyfið í nokkra mánuði eða lengur, m.t.t. hugsanlegra breytinga í nefslímhúð. Ef staðbundnar sveppasýkingar koma fram í nefi eða koki þarf hugsanlega að hætta Nasonex nefúðameðferð.Ef um langvarandi ertingu í nefi og koki er að ræða kann að vera ástæða til að hætta meðferð með Naso- nex. Þegar farið er yfir í meðferð með Nasonex nefúða, dreifu eftir almenna sterameöferð finna sumir sjúklingar í fyrstu fyrir einkennum um fráhvarf frá kerfis- sterameðferö t.d. lið- og/eða vöðvaverkir, slappleiki og þunglyndi þrátt fyrir að einkennin frá nefi lagist. Þessa sjúklinga þarf að hvetja sérstaklega til að halda á- fram að nota lyfiö. Þegar slík meöferöarbreyting er gerð geta komið fram einkenni um aðra ofnæmissjúkdóma svo sem augnslímhúðarbólga og exem sem héld- ust í skefjum vegna almennu sterameðferðarinnar. Vara ætti ónæmisbælda sjúklinga. sem eru á sterameðferð, við hættunni á sýkingum (t.d. hlaupabólu og misl- ingum) og um mikilvægi þess að leita sér læknishjálpar ef þeir verða fyrir slíkum sýkingum. Eins og við notkun annarra barkstera í nef ætti aðeins aö nota Naso- nex hjá þunguðum konum eða konum sem hafa börn á brjósti, ef gagnið af meðferðinni vegur meira en hugsanleg áhætta fyrir móður, fóstur eða ungbarn. Börn sem eru fædd af mæðrum sem fengið hafa barkstera á þungunartímabilinu þarf að athuga sérstaklega m.t.t. nýrnahettubarkarbilunar. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem fram hafa komið i klínískum prófunum eru eftirfarandi: Höfuðverkur (8%), blóðnasir (8%), kokbólga (4%), sviði í nefi (2%) og erting í nefi (2%). Þessar aukaverkanir eru einkennandi þegar barkesterar eru notaðir í nefúða. Blóðnasir voru yfirleitt minniháttar og stöðvuðust af sjálfu sér. Skammtastærðir handa fullorðnum (þ.m.t. aldraðir) og börnum 12 ára og eldri: Venjulegur ráðlagður skammtur er 2 úðanir (50 míkróg/úðun) í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 200 míkróg). Þegar sjúkdómseinkennin hafa lagast má minnka skammtinn í eina úðun í hvora nös (heildarskammtur 100 míkróg). Ef einkenni lagast ekki má auka skammtinn í 4 úðanir í hvora nös einu sinni á dag (heildarskammtur 400 mikróg).Við meðferð með Nasonex nefúða fást merkjanleg áhrif innan 12 klst. eftir fyrsta skammt hjá mörgum sjúklingum sem þjást af árstíðabundnu ofnæmis- nefkvefi. Samt sem áður geta liðið nokkrir dagar áður en full verkun næst. Þessir sjúklingar ættu því að halda meðferð áfram þar til fullum áhrifum er náð. Ekki er vitað um lækningalegt gildi lyfsins fyrir börn undir 12 ára aldri og er ekki mælt með Nasonex fyrir þennan aldurshóp. Pakkningar og verð: 1 úðastaukur, 18 g (120 úðaskammtar). Heildsöluverö án vsk. 1.365.- Smásöluverð með vsk. 2.747.- /OO Umboðsaðili: ISFARM clif
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.