Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 46

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 46
Traust stjórnun á háþrýstingi og hjartaöng Töflur: C 08 C X 01 Hver tafla inniheldur: Mibefradilum INN, díhýdróklóríð, samsvarandi Mibefradilum INN 50 mg eða 100 mg. Ábendingar: Háþrýstingur og langvinn hjartaöng (stable angina). Skammtastærðir handa fullorðnum: Byrjunarskammtur er 50 mg af Posicor einu sinni á dag. Auka má skammtinn upp í 100 mg á dag. Posicor má taka fyrir mat, með mat eða eftir mat. Gleypa skal töflurnar heilar en ekki tyggja þær. Ekki þarf að breyta skammti af Posicor hjá öldruðum sjúklingum eða sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Gæta skal varúðar þegar Posicor er gefið sjúklingum með alvarlega skerta lifrarstarfsemi þar sem míbefradíl umbrotnar að miklu leyti i lifrinni. Skammtastærðir handa börnum: Ekki er mælt með því að gefa börnum Posicor. Frábendingar: Sjúkur sinushnútur (Sick sinus syndrome) eða annarrar og þriðju gráðu AV- leiðslurof, án gangráðs. Pekkt ofnæmi gegn míbefradili eða einhverjum öðrum af innihaldsefnum lyfsins Pungun, brjóstagjöf og konur á barneignaraldri sem ekki nota öruggar getnaðarvarnir. Alvarlega skert lifrarstarfsemi. Alvarlega skert hjartastarfsemi (NYHA af flokki III eða IV). Brátt hjartadrep á síðustu 4 vikum eða hvikul hjartaöng. Varnaðarorð og varúðarreglur: Almennt: Þar sem æðavíkkun sem Posicor veldur kemur fram smátt og smátt, hefur ekki orðið vart við lágþrýsting eftir fyrstu inntöku af ráðlögðum skammti af Posicor. En líkt og á við um önnur æðavíkkandi lyf skal gæta varúðar þegar Posicor er gefið sjúklingum með alvarleg ósæðarlokuþrengsli. Hjartabilun: Klinísk reynsla af ráðlögðum skömmtum af Posicor við hjartabilun er takmörkuð. Hjá einstaka sjúklingi getur hjartabilun versnað ef teknir eru háir skammtar. Því skal forðast notkun lyfsins hjá sjúklingum með hjartabilun. Skert lifrarstarfsemi: Ekki varð vart við breytingar á umbroti míbefradíls hjá sjúklingum með vægt eða meðal skerta lifrarstarfsemi eftir einn 100 mg skammt af Posicor. En þar sem míbefradíl umbrotnar fullkomlega og skilst aðallega út með galli, er ráðlagt að fylgjast með blóðþrýstingi og hjartslætti þegar Posicor er notað handa þannig sjúklingum. Ekki skal nota Posicor hjá sjúklingum með alvarlega skerta lifrarstarfsemi. Leiðni i hjarta: Posicor hefur áhrif á leiðni í sinus- og AV-hnútum. Áhrifin á sinushnútinn eru skammtaháð og hjartsláttartiðni minnkar í kringum 5 slög /mín. eftir 50 mg og 9 slög /mín. eftir 100 mg. Því skal fylgjast reglulega með sjúklingum sem hafa hjartslátt hægari en 55 slög á mínútu í upphafi meðferðar. Ekki á að nota Posicor hjá sjúklingum sem hafa hjartsláttartíðni lægri en 50 slög á minútu áður en meðferð hefst. Áhrifin á AV-hnútinn valda smávægilegri lengingu á PR-bilinu, um 3 msek. (50 mg) og 10 msek. (100 mg). Beta-blokkar: Samverkandi áhrif á laekkun blóðþrýstings og hjarsláttartíðni svo og lenging á PR-bili kemur fram þegar Posicor er notað ásamt beta-blokkum. Hægur hnútstaktur, er tengdur notkun Posicor. Þetta hefur sérstaklega sést hjá öldruðum, aðallega I tengslum við samtímis notkun beta-blokka. Varúðar skal gæta einkum hjá öldruðum, þegar Posicor er notað ásamt beta-blokka, og fylgjast skal vandlega með sjúklingunum i upphafi meðferðar, einkum ef hjartsláttartíðni fyrir meðferðina er minni en 60 slög/mín. og/eða við fyrstu gráðu AV-leiðslurof. Ekki er ráðlagt að gefa sjúklingum sem hafa hjartsláttartiðni sem er lægri en 55 slög/min. fyrir meðferð Posicor ásamt beta-blokka. Milliverkanir: HMG CoA redúktasa hemlar (lyf umbrotin af CYP 3A4): Posicor getur hindrað umbrot HMG CoA redúktasa hemla (statín) sem aðallega eru umbrotin af CYP 3A4 og sem hafa lítið aðgengi. Þetta getur aukið hættu á rákvöðvasundrun sem er tengd notkun HMG CoA redúktasa hemla. Forðast ber notkun Posicor með öllum statinlyfjum þar til frekari upplýsingar eru fyrirliggjandi. Ef væntanlegt gagn vegur meira en hugsanleg áhætta á að nota lægsta mögulega skammt þessara HMG CoA redúktasa hemla og fylgjast með sjúklingunum á viðeigandi hátt. Lyf sem eru umbrotin af CYP 2D6 og/eða CYP 3A4, og sem lengja QT-bil : Þar sem hækkun á blóðþéttni þessara efna (t.d. tíoridazín, önnur sterk geðlyf og hjartalyf af flokki IA og III) geta valdið lífshættulegum hjartsláttartruflunum, skal fylgjast vandlega með samtimis inntöku míbefradíls og þessara lyfja. Ekki hefur komið fram klinísk milliverkun við kínidín. Sérstakar rannsóknir á milliverkunum: Sýnt hefur verið fram á eftirfarandi milliverkanir míbefradíls og annarra lyfja sem eru umbrotin af cýtókróm P-450 kerfinu. Terfenadin: Samtimis gjöf terfenadíns og míbefradíls hjá heilbrigðum einstaklingum olli hækkun á blóðþéttni terfenadins og lengdi meðaltals QTc-bilið um 12%. Þar sem lenging á QTc-bili, vegna hækkunar á blóðþéttni terfenadíns er tengd lífshættulegum hjartsláttartruflunum og dauða er samtímis gjöf Posicor og terfenadíns frábending. Gjöf císapríðs eða astemízóls og Posicor er af sömu ástæðu óráðleg. Ciklósporin A: Þéttni ciklósporíns A jókst um það bil tvöfalt við samtímis notkun 50 mg af Posicor í 8 daga. Þess vegna skal fylgj með þéttni ciklósporíns A og laga skammtinn eftir því. Kinidin: Við samtímis inntöku eins skammts af kínidíni og Posicor 50 mg og 100 mg kom fram hækkun á hámarksþéttni (1 19%) kinidíns og AUC (50%) hjá heilbrigðum einstaklingum, styrkleiki virks umbrotsefnis lækkaði einnig töluvert. Metóprólól: Samtimis gjöf Posicors og metóprólóls hjá heilbrigðum einstaklingum olli tvöfaldri hækkun á hámarksþéttni metóprólóls og aukning AUC varð 4-5 föld. Helmingunartíminn jókst úr 3 kls 7-8 klst. Þó að lyfhrif í þessari rannsók væru samverkandi getur verið nauðsynlegt að breyta skammti metóprólóls. Þungun: Hvorki má nota Posicor á meðgöngu af konum á barneignaraldri sem ekki nota öruggar getnaðarvarnir. Brjóstagjöf: Ekki skal nota lyfið hjá konum með b á brjósti. Aukaverkanir: Algengar (>!%): Ökklabjúgur, þreyta, svimi og aðsvifstilfinning. Sjaldgæfar (0,1-1%): Hægur hjartslátt Fyrstu gráðu A-V leiðslurof. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Blóðflagnafæð. Ofsabjúgur. Ofskömmtun: Enn er engin reynsla fengin af ofskömmtun. Við blóðþrýstinglækkun skal beita vökvagjöf, hægan hjartslátt skal leiðrétta með atrópíni, ísóprenalí eða gangráði. Kalsíumglúkónat I æð getur dregið úr áhrifum kalsíumgangaloka. Míbefradíl er mjög bundið plasmapróteinum, þannig að ekki er hægt að fjarlægja það með blóðskilun. Pakkningar og hámarksverð í smásölu frá 1.5.1998: Töflur 50 mg: 28 stk. (þynnupakkað): 3.136 kr.; 98 stk. (þynnupakkað): 8.116 Töflur 100 mg: 28 stk. (þynnupakkað) 4.532 kr.; 98 stk. (þynnupakkað): 12.124 kr. Greiðslufyrirkomulag: Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða fyrs 300 kr. af verði lyfsins og 15% af því s eftir er, en þó aldrei meira en 500 kr. Aðrir greiða fyrstu 900 kr. af verði lyfs og 30% af því sem eftir er, en þó aldr meira en 1.700 kr. Afgreiðslutilhögun: Heimilt er að ávísa lyfinu til 100 daga notkunar I senn. Tilvísanir: 1. Viskoper RJ, et al. J Human Hypertens. 1997; 11 (6); 2. Massie BM, et al. Clin Cardiol. 1997; 20 (6); 562-56 3. Tzivoni D, et al. Circulation. 1997; 96 (8): 2257-2264 4. Sérlyfjaskrártexti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.