Læknablaðið : fylgirit - 01.06.1998, Síða 82
74
LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84/FYLGIRIT 36
um; tíðni 1 á 10.000 íbúa á ári. Raunhæfari tfðnitöl-
ur fást fyrir tímabilið 1986-1996; fjöldi rannsókna
9,3 á 10.000 íbúa á ári og tíðni DVT 2,3 á 10.000
íbúa á ári. Meðalaldur var 60 ár (62% voru karlar).
Af sjúklingum komu 80,1% frá lyflækningadeild;
37,5% DVT var eingöngu í kálfa, 34,4% náðu upp
á læri en 28,1% upp í kviðarhol. Krabbamein höfðu
19,4%, 12,5% höfðu nýlega gengist undir skurðað-
gerðir og 6,3% höfðu sögu um áverka. Af sjúkling-
um reyktu 43,8%. í árslok 1997 voru 40% sjúkling-
anna látnir, krabbamein var dánarorsök í 42% til-
fella og hjarta- og æðasjúkdómar í 33% tilfella.
Kynntar verða niðurstöður um núverandi heilsufar
þessara sjúklinga.
Alyktanir: Tíðni DVT á Norðurlandi virðist
vera þrisvar sinnum lægra en erlendar rannsóknir
gefa til kynna. Hvort sjúkdómurinn er sjaldgæfari
hér á landi eða vangreindur er ósvarað með þessari
rannsókn.
V-5. Æxlager í innkirtlum af gerð I.
Sjúkratilfelli
Sigurður Magnason*, Nick Cariglia*, Shree
Datye**, Pedro Riba***, Þorgeir Þorgeirsson****
Frá *lyflœkningadeild, **handlœkningadeild,
***röntgendeild og ****meinafrœðideild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
Greint er frá sjúkratilfelli miðaldra konu sem
lagðist inn á lyflækningadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri til rannsókna vegna tvísýni- og
fjarrænukasta sem staðið höfðu í fimm mánuði, auk
þess sem nýlega hafði vaknað grunur um hlutaflog
í þessum köstum. I fyrri heilsufarssögu eru meðal
annars kirtilæxli í fjórum kalkkirtlum og illkynja
fituæxli í holhönd.
Líkamsskoðun var ómarkverð, einkum var tauga-
skoðun eðlileg. í blóðrannsóknum kom í ljós vægt
lækkaður blóðsykur og í framhaldi af því var gert
fastandi blóðsykurpróf, sem leiddi í ljós blóðsykur-
fall ásamt háum insúlínstyrk í blóði, samfara því að
sjúklingur fékk einkenni sem svipaði til þeirra sem
áður voru nefnd. Tölvusneiðmynd af kviðarholi
vakti grun um æxli í brisi, en það var síðan staðfest
með æðamyndatöku. Að auki sýndi tölvusneið-
myndarrannóknin æxli í nýrahettu. Tölvusneið-
mynd af heiladingli sýndi einnig æxli.
Hluti brissins var fjarlægður með skurðaðgerð,
auk æxlis í nýrahettu og varð einkennanna ekki vart
eftir aðgerðina. Við meinafræðirannsókn kom í ljós
í halahluta brissins eitt stórt eyja-æxli og fimm
samskonar æxli en minni, með einsleita frumugerð.
Nýrahettuæxlið reyndist vera góðkynja kirtilæxli.
Sjúkdómsgangurinn samsvarar í öllu æxlageri í
innkirtlum (multiple endocrine neoplasia type I,
MEN I), með dæmigerðum kirtilæxlum í kalkkirtl-
um, brisi og heiladingli, auk góðkynja kirtilæxlis í
nýrahettu og illkynja fituæxlis, sem hvort tveggja
eru sjaldgæfari birtingarform sjúkdómsins.
Stuttlega eru reifuð fræðin um heilkenni æxla-
gers í innkirtlum, sem er ættgengur sjúkdómur með
ríkjandi erfðir og er talinn tengjast stökkbreytingu í
æxlis-bæligeni staðsettu á litningi 11.
V-6. Áhrif geðlyfja á vensl leptíns í sermi
og body mass index (BMI)
Leifur Franzson*, Steinunn Astráðsdóttir*, Magn-
ús Haraldsson**
Frá *rannsóknadei!d og **geðdeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur
Inngangur: Hormónið leptín myndast í fitu-
frumum og er magn þess í sermi í hlutfalli við fitu-
magn líkamans og body mass index (BMI) (kg/m2).
Hlutverk leptíns er meðal annars talið það að gefa
stjórnstöðvum heilans upplýsingar um fitubirgðir
líkamans. Með flóknu samspili hormóna taugakerf-
isins leitast líkaminn við að minnka/auka fitubirgð-
irnar í samræmi við þarfir hans meðal annars með
því að hafa áhrif á matarlyst og orkunotkun. Til-
gangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif ýmissa
geðlyfja á samband S-leptíns og BMI hjá kvensjúk-
lingum á geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, en ým-
islegt bendir til að sum geðlyf tengist þeim viðtök-
um í taugakerfinu, sem hafa (óbein) áhrif á líkams-
þunga. Rannsóknin var framkvæmd að fengnu
samþykki siðanefndar Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Efniviður og aðferðir: Sjúklingum var deilt í
þrjá hópa og fengu þeir eftirfarandi lyfjameðferð:
Hópur 1 (n=7) tók sérhæfða serótónín endurupp-
tökuhamla (SSRI); hópur 2 (n=8) tók þríhringja
geðdeyfðarlyf; hópur 3 (n=10) tók sterk sefandi
geðlyf. í samanburðarhópi voru 40 konur á sam-
bærilegum aldri og þyngd og sjúklingahópurinn. S-
leptín var mælt með geislavirkri mótefnamæliað-
ferð (RIA).
Niðurstöður: Að meðaltali reyndist hópur 1 vera
10 kg léttari en aðrir hópar. Fylgni S-leptíns og
BMI var ekki marktæk í hópi 1 (r=0,36); p=0,2); á
mörkunum í hópi 3 (r=0,56; p=0,057), en mjög
marktæk í hópi 2 (r=0,935; p<0,01) og viðmiðunar-
hópi (r=0,72; p<0,01). Við samanburð á hallatöium
og skurðpunktum sker hópur 2 sig úr öðrum hóp-
um, en magn S-leptíns eykst mun meira með hækk-
andi BMI, þrátt fyrir að líkamsþunginn sé svipaður.
Alyktanir: Niðurstöður þessarar forkönnunar
benda til að þríhringja geðdeyfðarlyf hafi áhrif á
vensl S-leptíns og BMI, sem þyrfti að rannsaka bet-
ur með fleiri einstaklinga í hverjum hópi.