Sagnir - 01.04.1985, Page 46
JÓN LEIFS
Þetta er sá versti djöfulgang-
ur,... sem ég fyrir mitt leyti hef
heyrt eina hljómsveit framleiöa í
einu og formleg uppbygging
verksins var eins og storkið
hraun.
Finnski hljómsveitarstjórinn
Jussi Jalas stjórnaöi leikhús-
hljómsveitinni og slapp lifandi.
Áheyrendur skemmtu sér stór-
kostlega þó að það hafi nú eigin-
lega alls ekki verið ætlunin.1
Þannig komst tónlistargagnrýn-
andi Aftenposten að orði eftir að
hafa hlustað á Sögusinfóníuna eftir
Jón Leifs, sérkennilegasta og frum-
legasta tónskáld sem ísland hefur
alið, en um leið það umdeildasta.
Jón Leifs fæddist árið 1899 að
Sólheimum í Húnavatnssýslu en
fjölskyldan flutti til Reykjavíkur
þegar hann var eins árs gamall.
Faðir hans, Þorleifur Jónsson,
bóndi og alþingismaður, gerðist
póstafgreiðslumaður og varð
seinna póstmeistari í Reykjavík.
Móðir hans, Ragnheiður Bjarna-
dóttir, rak klæðaverslun sem síðar
gerði henni kleift að kosta menntun
drengsins.
Á unga aldri lærði Jón á píanó og
eitthvað á fiðlu. Hann fékk snemma
áhuga á tónsmíðum og ákvað að
helga sig tónlist. Árið 1916, að lokn-
um fjórða bekk Menntaskólans hélt
Jón til Leipzig, 17 ára gamall til tón-
listarnáms. Þar lærði hann í fimm ár
og útskrifaðist árið 1921.
Jón hreifst mjög af Þýskalandi og
því sem það hafði upp á að bjóða.
Hann virðist frá upphafi hafa verið
ákveðinn í að ,,meika það“ og þess
vegna ílentist hann þar að námi
loknu, enda lítið fyrir tónlistarmann
að gera á íslandi árið 1921.
í Þýskalandi
Næstu 28 árin dvaldi Jón meira og
minna í Þýskalandi og virðist hafa
haft ofan af fyrir sér með því að
stjórna hljómsveitum og skrifa
greinar um tónlist í blöð og tímarit.
Á þessum 28 árum sem Jón var í
Þýskalandi, stjórnaði hann þrjátíu
hljómsveitum og virðist lengst af
hafa verið nokkuð eftirsóttur, sér-
staklega til þess að stjórna verkum
Beethovens sem var hans uppá-
haldstónskáld. Greinarnar fjölluðu
flestar um íslensku þjóðlögin og
túlkunarmáta á verkum Beet-
hovens. Á því sviði virðist hann
einnig hafa haft nóg að gera og að
því er hann segir sjálfur, var hann
mjög eftirsóttur.
„íslensk“ tónlist
Ekki gleymdi Jón íslandi þó hann
hafi haft nóg að gera úti. Honum
rann til rifja sú steinaldarmenning
sem ríkti í íslenskum tónlistarmál-
um á þessum tíma. Dansk- og
þýskættuð dægurlög riðu húsum,
einföld létt lög með píanóundirleik
þar sem allir gátu sungið með. Jón
taldi hin svokölluðu íslensku tón-
skáld einungis vera lítið menntaða
lagasmiði sem gerðu ekki annað en
að stæla þessi útlendu lög af því að
þeir þekktu enga aðra tónlist. Sýn-
ishorn af svona menningu heyrum
við í útvarpinu þegar kynntir eru
„íslenskir einsöngvarar og kórar“,
svo ekki sé talað um „síðasta lag
fyrir fréttir". Þessi erlendu dægurlög
voru vel á veg komin með að útrýma
íslensku þjóðlagatónlistinni sem nú
var óðum að gleymast. Og hin
„æðri tónlist'1 komst hvergi að,
bæði vegna þess að stökkva þurfti
yfir rúmlega hundrað ára tónlistar-
þróun og ekki síst vegna skorts á
hæfum hljóðfæraleikurum.
Hvað var til ráða?
Þó að Jón Leifs stefndi á frægðar-
feril erlendis, var hann staðráðinn í
að lyfta íslensku tónlistarlífi á hærra
plan.
Skömmu eftir að námi lauk, leit
hann við hér heima og virðist helst
hafa ætlað að gera einhverskonar
menningarbyltingu. Það átti að
stofna Tónlistarskóla íslands sem
síðan átti að verða Tónlistarháskóli
íslands. Til að byrja með átti að fá
kennara frá Þýskalandi, þar var nóg
af fyrsta flokks hljóðfæraleikurum
sem voru atvinnulausir í kreppunni
eftir fyrri heimsstyrjöldina. Utan um
skólann átti að stofna tónlistarfélag
sem skyldi reka hann og standafyrir
tónleikum. Jón hafði lítið álit á ís-
lenskum tónlistarmönnum. Ef nota
ætti þá íslendinga sem fyrir voru
„væri allt betur óframkvæmt".2
Þessi tónlistarskóli myndi svo í fyll-
ingu tímans leggja til mannskap í
sinfóníuhljómsveit sem átti að flytja
landsmönnum heimsins bestu tón-
list.
En harður dómur Jóns um ís-
lenska tónlistarmenn og tónlistar-
unnendur virðist hafa fælt þá frá
þátttöku í öllu sem tengdist nafni
hans. Tillögur Jóns voru því þagðar
í hel. Þó ekki til eilífðar, því níu árum
seinna, árið 1930, var stofnað Tón-
listarfélagið í Reykjavík sem fram til
þessa dags hefur staðið fyrir tón-
leikahaldi heimsfrægra listamanna
og rekið Tónlistarskólann í Reykja-
vík.
Jón Leifs, tvítugur námsmaður í Leipzig.
Myndin er tekin áriö 1919, um það
ieyti sem hann var að byrja að láta að
sér kveða i tónlistarmálum íslend-
inga.
44 SAGNIR