Sagnir - 01.04.1985, Page 92
KRAFA UM RÁÐHERRAÁBYRGÐ
Hvers konar
stjórnskipulagi vildi
Jón Sigurðsson breyta?
Á fyrri hluta seinustu aldar var þjóö-
höfðinginn, Danakonungur, ein-
valdur. Afleiöing þess var ma. sú aö
hann valdi sér ráögjafa og setti af
eftir sínu höföi. Ráðherrarnir voru
ekki stjórnmálalega ábyrgir fyrir
öörum en konunginum.
Frá því Alþingi var endurreist
1845 haföi það ráögjafaratkvæöi
um málefni íslands. Löggjafarvaldið
var meö öörum orðum ekki í hönd-
um þess, eins og nú, heldur einvalds
konungs sem var einnig handhafi
framkvæmdavaldsins. Þótt Alþingi
færi ekki meö löggjafarvaldiö átti
það hlutdeild í löggjafarstarfinu.
Flestöll lagafrumvörp eru vöröuð
ísland eingöngu voru lögö fyrir Al-
þingi.2
Þótt löggjafinn, þe. konungurinn,
legði lagafrumvörp fyrir ráögjafar-
þing íslendinga var hann ekki bund-
inn af því aö fara eftir tillögum þess.
Þannig var vald konungs á engan
hátt takmarkað af ráögjafarþinginu í
Reykjavík. Honum var í sjálfsvald
sett hvort hann fór eftir oröum Al-
þingis eöa ekki.
Áriö 1849 gengu í gildi ný grund-
vallarlög í Danmörku.3 Ráögjafar-
þingin fjögur, svokölluö stéttaþing,
voru þá lögö niður en löggjafarþingi
í tveimur deildum komið á fót. Þaö
hafði löggjafarvaldið í sínum hönd-
um meö konungi. Konungur valdi
sér ráðherra og var framkvæmda-
valdiö í þeirra höndum og konungs.
í kjölfar þessara stjórnskipunar-
breytinga í Danmörku var kallað
saman stjórnlagaþing á íslandi,
Þjóöfundurinn 1851, til aö þinga um
ný stjórnskipunarlög fyrir ísland.
Engin niöurstaöa fékkst á þeim
fundi um framtíðarstjórnskipun
landsins því honum var slitið áður
en nokkurt frumvarp var samþykkt.
Alþingi hélt því áfram aö vera ráö-
gjafarþing og áhrifalaust um val og
setu þeirra sem fóru með fram-
kvæmdavaldið, þe. dönsku ríkis-
L..jd. Eij' iuL.
Grundvallarlagaþingið í Danmörku sem
fundaði um ný stjórnskipunarlög fyrir
Danaveldi 1848-49. Á efri myndinni
sést yfir salinn sem þingið var haldið
í. Neðri myndin er grunnteikning af
sama sal og sýnir sætaskipan fulltrú-
anna. íslendingar áttu fimm fulltrúa á
þessu þingi og var Jón Sigurðsson
einn þeirra. Fjórir íslensku fulltrú-
anna sátu við innsta bogann. Brynj-
ólfur Pétursson i sæti 144, Konráð
Gíslason 145, Jón Sigurðsson 146 og
Jón Johnsen 147. Það er óvíst hvar
Jón Guðmundsson hefursetið.
90 SAGNIR