Sagnir - 01.06.1994, Síða 22

Sagnir - 01.06.1994, Síða 22
semin ætti sínar takmarkanir sem afleið- ingar byltingarinnar sýndu glögglega. I andsvari rómantískra hugsuða kemur fram annað höfuðeinkenni rómantísku stefnunnar; áherslan á tilfmningar og innblástur i stað kaldrar rökhyggju og vísindalegra skilgreininga. Undirstaða þessarar nýju áherslu var útlistun þýska heimspekingsins Immanuels Kants á því hvernig skynsemi mannsins og hugsun störfuðu. Kant telst reyndar til upplýs- ingarmanna, en hann freistaði þess að finna leið út úr ógöngum þeim sem trúin á rökhyggju og reynslu var komin í. Samkvæmt kenningu Locke er hugur manna óskrifað blað við fæðingu og öll hugsun byggð á reynslu manna og skynj- un. Ut frá þessari kenningu dró skoski heimspekingurinn Hume þá ályktun, að maðurinn gæti ekki náð tökum á veru- leikanum með skynjun einni saman. Veruleikinn byggðist óhjákvæmilega á skoðun (opinion) hvers einstaklings og því væri vísindaleg úttekt á veruleikan- um ómöguleg. Kant andmælti Hume til varnar rökhugsuninni, en lagði um leið grunninn að megineinkenni rómantíkur- innar. Samkvæmt niðurstöðum Kants er hugurinn skapandi, en ekki hlutlaus, og kemur skipulagi á reynslu manna. Skyn- semin kæmi ekki til vegna reynslu, held- ur væri til staðar frá upphafi.4 Af þessu leiddu rómantískir hugsuðir þá ályktun að tilfmningarnar væru í nánasta sam- bandinu við skynsemina. Því væri til- finningalegt innsæi mikilvægara en rök- hyggja. Af þessum megineinkennum róman- tísku stefnunnar eru önnur einkenni sprottin. Frelsi einstaklingsins, áherslan á fortíðina og tilfmningarnar voru efnin sem rómantíkin byggði á. Rómantíkin var að ýmsu leyti afturhvarf, sérstaklega hvað varðar fortíðarhyggjuna. Aðdáun á miðöldum náði fótfestu en miðaldirnar voru jafnan forsmáðar af upplýsingar- mönnum sem niðurlægjandi tímabil, þar sem rökhugsun og skynsemi hafi verið úthýst. Einnig bar á afturhvarfi til náttúr- unnar og má þar nefna hugmyndina um hinn „náttúrulega mann“ sem Rousseau gerði vinsæla. Maðurinn væri í eðli sínu góður og dyggðugur ef hann losnaði undan fjötrum siðmenningarinnar. Sam- kvæmt því var bóndinn hinn sanni mað- ur vegna tengsla sinna við náttúruna og fjarlægðar frá borgarmenningunni. Vert er að hafa þessa hugmyndafræði í huga, því hún varð ekki einungis bakgrunnur rómantíkurinnar, heldur einn mest áber- andi hleypidómur nítjándu og tuttugustu aldar.5 Frelsið var sem fyrr segir fýrirferðar- ntikið í rómantísku stefnunni. I Englandi og Frakklandi hlaut hugmyndin um ein- staklingsfrelsið hljómgrunn en i Þýska- landi varð til annars konar hugmynd um frelsi; þjóðfrelsi byggt á þjóðernishyggju. Rómantíska stefnan með áherslu sína á fortíðina hafði mikil áhrif á þjóðernis- hyggjuna, því hún var fýrst og fremst grundvölluð á fortíðinni. Þjóðveijar leit- uðu aftur í söguna til að finna eitthvað sem sameinaði þýsku þjóðina, því þeir voru ekki samstæð heild líkt og Frakkar og Englendingar. Þvert á móti hafði stjórnmálasaga sundraðs Þýskalands skilið lítið eftir nema vonbrigði sem þýskir rómantíkursinnar voru meðvitaðir um, auk þess sem landið var vanþróað í iðn- aði.6 A þessu dökka skeiði í sögu landsins var helsta úrræðið að leita að einhveiju því haldreipi í fortíðinni sem leitt gæti þjóðina til sameiningar og sóknar í fram- tíðinni. Hér er eftir að minnast á enn eitt ein- kenni rómantísku stefnunnar, en það er tjáningarmáti rómantískra hugsuða. I verkum sínum í listum og bókmenntum létu menn gamminn geysa og reyndu á engan hátt að halda aftur af tilfinningum sinum. Stílbrögð rithöfunda urðu mjög hátíðleg, iburðarmikil og leikræn. Atti það einkum við á blómaárum rómantík- urinnar á fýrstu þremur áratugum 19. aldar, en þessi einkenni dofnuðu þó fljótlega eftir það. Rómantískir hugsuðir á fimmta og sjötta áratug 19. aldar álitu frumherja rómantíkur full tilgerðarlega og gættu meira hófs í sínum framsetn- ingamiáta.7 Sagnaritun í anda rómantíkur Áhrif rómantísku stefnunnar á sagna- ritun voru mörg og margvísleg eins og gefur að skilja. Rómantískir hugsuðir vom ákaflega uppteknir af fortíðinni og því hlaut endurskoðun sögunnar að vera mikilvæg í augum þeirra. Rómantisk söguritun var að mörgu leyti andsvar eða andóf gegn kenningum og áherslum upplýsingarmanna. Áherslan á ntiðaldir var sérstaklega áberandi, en upplýstir söguritarar höfðu jafnan óbeit á því tíma- bili. Aftur á móti hófu rómantískir sagn- fræðingar miðaldirnar til skýjanna. Ástæðunnar fýrir því er að leita í áhersl- unni á þjóðarsögu sem aftur tengist þjóð- ernishyggjunni. Þeir töldu að á miðöld- um hafi sá jarðvegur myndast sem ev- rópskar þjóðir og menning þeirra væru sprottnar úr. Þjóðernið hafi náð fótfestu á miðöldum og alla menningu sé hægt að rekja til þeirra tíma. Tungumálið var samkvæmt þessari kenningu talið sérlega mikilvægt, því tungan ákvarðaði og undirstrikaði séreinkenni hverrar þjóðar. Þessi kenning náði mestri hylli í Þýska- landi þar sem tungumálið var helsta sam- einingartáknið.s Nýjar áherslur á tímabil voru ekki það eina sem fýlgdi rómantískri söguritun. Eðli sagnfræðinnar breyttist og ný sögu- speki ruddi sér til rúms. Upphaf þessara breytinga er að finna í Þýskalandi en þýskir heimspekingar og sagnaritarar höfðu veruleg áhrif á framþróun sagn- fræðinnar. Þeirra á meðal var Georg Wilhelm Friedrich Hegel, sem kom fram með þá byltingarkenndu söguspekilegu kenningu að líta bæri á söguna sem þró- un mannsandans í átt til sjálfsvitundar og frelsis. Þessi þróun skiptist í þijú megin- skeið, þar sem Andinn, „The Spirit", færðist sífellt nær sjálfsvitund og frelsi manna. Þessi framrás gengi líkt og sólin frá austri til vesturs þar sem hún næði takmarki sínu. Þýskir þjóðernissinnar gripu þessa kenningu á lofti og töldu hana fela í sér að eftir siðaskiftin bæru þýskir menn hin guðdómlegu klæði frelsara mannkynsins.7 Hegel breytti hinni aldagömlu trú að sagan væri ekki hæf til að fást við kjarna tilverunnar, hinn varanlegasta og dýpsta sannleik al- heimsins.10 Samkvæmt kenningu hans var sagan og Andinn eitt hið sama og því væri skilningur á sögunni æðri heim- spekinni, í henni fælist sannleikurinn. Jón J. Aðils og áhrifa- valdar hans Jón fæddist þann 25. apríl 1869. Hann missti foreldra sína snemma og ólst þvi upp hjá ættingjum sinum. Þrettán ára hóf hann nám til undirbúnings fýrir 1. bekk Lærða skólans i Reykjavík, sem hann gekk í ári seinna. Stúdentsprófi lauk hann 1889 með aðra einkunn, en lagði 20 SAGNIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.