Sagnir - 01.06.1994, Side 28

Sagnir - 01.06.1994, Side 28
Reykjavík. Breytingin var lítil í sjálfu sér, en „þótt eigi væri annað en nafnið eftir, var þó alþingi í sjálfu sér eins konar sjálf- stæðisvottur og sameiginleg miðstöð þjóðernisins, auk þess sem það hafði nokkurs konar fornhelgi á sér“. Fyrir þessu telur Jón að Magnús hafi enga til- finningu haft og einungis litið á „nytsemi málsins" og látið það ráða. Bendir Jón síðan á að Magnús og bræður hans hafi borið „vænan hlut frá borði í byltingum þessum, því Magnús var skipaður háyfir- dónrari, Stefán bróðir hans fyrsti dómari og dómstjóri í forföllum hans, og Björn bróðir þeirra yflrdómari“.2', Það er ekki laust við að örlítillar vand- lætingar gæti í þessum orðurn Jóns, en annað er uppi á teningnum þegar Jón Sigurðsson berst fyrir að halda alþingi í Reykjavík í stað þess að færa það aftur til Þingvalla. Þá átelur Jón Aðils Fjölnis- menn, sem töldu að alþingi væri ekkert alþingi nema á Þingvöllum, fyrir að halda um of tilfinningasemi rómantíkur á lofti. Hann tekur undir orð Jóns Sigurðssonar þegar hann rökstyður að „aðsetursstaður landstjórnarinnar væri sjálfkjörinn fund- arstaður alþingis . . . hið forna skipulag gæti eigi átt við lengur . . . enda [hnígi] þar öll skynsamleg rök að. . ,“30 Það er líkt og að örlitil „skynsemi" læðist inn í þjóðernisrómantík Jóns þegar hann fjallar um nafna sinn og sjálfstæðisbaráttu hans. Jón Aðils kemst í raun í inótsögn við sjálfan sig. Ekki það að rómantik sé í eðli sínu „óskynsamleg", en því verður ekki neitað að aðalsmerki hennar var upp- hafning tilfmninga á kostnað kaldrar rök- hygg)u- Með tilkomu Jóns Sigurðssonar taldi Jón þjóðernisvitund og sjálfstæðisþrá is- lensku þjóðarinnar að fullu vaknaða. Einnig hafi sundrungin verið kveðin nið- ur á þjóðfundinum 1851 og því gæti fátt komið í veg fyrir áframhaldandi sókn ís- lendinga til blómlegra lífs í framtíðinni. Jón lýkur riti sínu Dagrenningu á eftirfar- andi orðum til hvatningar landsmönnum í sjálfstæðisbaráttunni og ræktun þjóð- ernisvitundar: Þeir Eggert Olafsson, Skúli fógeti, Magnús Stephensen, Baldvin Einars- son, Fjölnismenn allir ogjón Sigurðs- son eru dánir og horfnir fyrir löngu, en þó lifa þeir enn og starfa mitt á meðal vor. Upp af starfi þeirra hefir þegar sprottið andlegur vorgróður með íslensku þjóðinni. Alt ber svip af þeim og ættarmót. Hugsjónir þeirra, ósérplægni og ættjarðarást eru enn lif- andi fyrirmynd þjóðarinnar. Og sé jafn einhuga á eftir fylgt, eins og þeir hafa markað sporið, þá mun uppskeran verða auður og gnótt á allar lundir.31 Rómantísk stílbrögð og tilfmningar Eitt af einkennum rómantíkur eru há- fleyg stílbrögð, þar sem orðgnótt og myndræn framsetning eru óspart notaðar til að auka þungann í textanum. Þessi einkenni eru mjög rikjandi í skrifum Jóns, sérstaklega þegar fyallað er um þjóðernishyggju og það sem henni teng- ist. Af nægu slíku er að taka, enda eru fyrirlestrar Jóns fyrst og fremst tileinkaðir þjóðernishyggjunni. Skýrt dæmi um þetta er umfjöllun hans um skáldin og hlutverk þeirra í þjóðarvakningunni: Þau eru eins og eldstólpinn, sem lýsir þjóðinni og vísar henni veg. Þau laða og teygja með blíðmælum, þau vekja og örfa með snjallróma sigursöngvum, þau hrópa og hvetja til framsóknar með karlmannlegum djörfungarorð- um, — og þá er vel, ef þjóðin lætur á endanunr skipast við orð þeirra og festir þau sér í rninni. Skáldin „af guðs náð“ eru því einhver hin mesta happa- sending, sem þjóðunum getur hlotnast af forsjónarinnar hendi.32 Náttúran skipar jafnan stóran sess í lýs- ingunr Jóns á hinunr ýnrsu fyrirbærum. Þegar hann dregur upp nrynd af ættjarð- arást þeirra Eggerts Olafssonar og Hann- esar biskups Finnssonar farast honum svo orð: Ættjarðarást Hannesar biskups efar enginn, en hún var alt annars eðlis, en ættjarðarást Eggerts. Ast Eggerts er ást elskhugans, heit og brennandi, óþreyjufull og afbrýðissönr, eins konar ofurást, senr ryður öllunr tálmunum úr vegi eins og straumhörð á í vorleys- ingunr. Ast Hannesar er aftur á móti róleg og hægfara eins og lygn straum- ur, sem leitar fyrir sér að öruggum far- vegi og sneiðir hjá torfærunum.33 Viða nrá fmna dænri unr rónrantísk stílbrögð í verkunr Jóns og skal eitt til- tekið enn. Þetta dænri er úr Njálu, sem Jón vitnar óspart í þegar fjallað er um fomöld, og er lýsing á deilum Marðar Valgarðssonar og Eyjólfs Bölverkssonar á þinginu 1012. Er engu líkara en hér eigi sér stað lýsing á íþróttakappleik: Þeir hafa strangar gætur hvor á öðrum, því hér er um inikið að tefla. Hin minsta yfirsjón getur haft áhrif á úrslit málsins. . . En á bak við er eins og sjá- ist iðandi mannQöldinn, sem stendur á öndinni af spenningi, því aldrei hefir stærra mál verið til meðferðar á al- þingi. Það er svipað eins og að horfa á háskalegt einvígi. Eftir því sem lengra dregur í sókninni og vörninni, eftir því eykst glímuskjálftinn og æsingur- inn. Áheyrendurnir ráða eigi lengur við sig. Þeir fara að taka þátt í málun- um og láta tilfinningar sínar í ljósi. Þegar öðrum hvorum málsaðilanna þykir vel mælast, er gerður að því góður rómur. Þegar annarhvor er sleg- inn af laginu, verður óp mikið og kall, og þegar eitthvað þykir athugavert, er kallað að farið sé með lögleysur og rangindi.34 Nátengd þessum háfleygu stílbrögðum er áhersla rómantíkur á vægi tilfinning- anna. Með viðlika orðgnótt og leikrænni framsetningu hefur Jón eflaust leitast við að hræra upp í tilfinningum áheyrenda og síðar lesenda. Með því að höfða til til- finninga og tengja þær þjóðernisræktinni var mikill sigur unninn, því að mati Jóns voru tilfinningarnar sterkasta aflið í gjörvallri sögu mannkyns: „Þegar þær rísa í almætti sínu og knýja fram bylting- ar í lífi þjóðanna, þá eru þær í verkum sínum þúsund sinnum sterkari en bæði rafmagnið og gufan í sameiningu."35 Og sterkust allra er þjóðernistilfinningin: Lífskjör þjóðarinnar hafa staðið og standa enn í órjúfanlegu sambandi við þjóðernis tilfmninguna. Og sem betur fer, hefur þessi tilfinning aldrei dáið út með öllu, þótt stundum hafi verið hætt komið. Annars stæðurn vér ekki uppi enn í dag og stærðum oss af voru einkennilega íslenzka þjóðemi og vorri fornu og fögru tungu. Það hefur stöðugt lifað einhver neisti af henni inst í hjarta þjóðarinnar. Það er hún, sem hefur haldið við lífskrafti þjóðar- 26 SAGNIR

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.