Sagnir - 01.06.1994, Page 90
lega sagnfræði og nefnir Teflir hver um tvo
kosti að tapa cða vinna. LJm Einar Brands-
son og afrek hans. Fylgir hún alþýðlegri
frásagnarhefð, skrifar góða frásögn og
tekur fyrir afrek hversdagshetju 19. aldar
úr Mýrdal, en óvenjulegt er að sjá grein
af þessu tagi í Sögnum.
Sverrir Jakobsson á einu greinina sem
fjallar um miðaldir og fer hann í saumana
á valdabaráttu 15. aldar í greininni Heim-
sókn hirðstjórans. Um Reykhólareið Einars
og Bjarnar Þorleifssona 1445; baksvið henn-
ar, ajleiðingar og sögulega þýðingu. Varpar
hann þar fram mörgum áhugaverðum
spurningum um völd íslenskra höfðingja
gagnvart konungsvaldinu og Englend-
ingum.
Fimmhundruð árum eftir að Guð-
mundur ríki og Björn ríki riðu um hér-
uð settu rauðsokkur upp hnefann. Ragn-
hildur Helgadóttir fjallar á greinargóðan
hátt um sögu rauðsokkahreyfingarinnar á
Islandi í greininni „Selur þú þig í kvöld?"
LJr sögu Rauðsokkahreyfmgarinnar á Islandi.
Hefst sagan um 1970 og setur hún störf
og stefnumál hreyfingarinnar í samhengi
við það sem var að gerast í þjóðfélaginu á
þessum tíma. Hreyfingin var formlega
lögð niður árið 1982.
Að lokum er að nefna fýrstu grein rits-
ins sem er eftir Sigríði Matthíasdóttur og
heitir Hvað er þjóð? Nokkur orð um islenska
þjóðarimynd. Er þetta grípandi bygun á
ritinu og snertir efni sem á mikið erindi í
samtímanum. Tengir hún efnið við sam-
tímaviðburði og nær að skapa gott sam-
spil milli textans og myndefnisins sem er
mjög áhugavert og nánar verður fjallaö
um hér aftar.
I heild má segja að í greinum sagn-
fræðinemanna sé víða reynt að velta upp
nýjum liliðum á gömlum sannindum og
tekið á sögunni á greinandi og gagnrýn-
inn hátt. Flestar greinanna byggja á
frumheimildum og er verulegur fengur
að mörgum þeirra. Flestar eru unnar sem
námskeiðsritgerðir, en nokkrar tengjast
einnig BA-ritgerðum höfunda. Gera þær
því flestar fleira en að miðla þegar
þekktu efni til almennings, heldur fleyta
fræðunum einnig skrefi lengra á sinu
sviði og varpa fram nýjum spurningum.
Greinilegt er að höfundar hafa gert sér
far um að vanda textann og reyna að
leiða inn í efnið með frumlegum hætti.
Tekst það oft með ágætum, eins og t.d. í
grein Nikulásar Ægissonar þar sem hann
talar um hve mikil bókaþjóð íslendingar
hafi alltaf verið, ekki látið sér nægja að
skrifa bækurnar heldur einnig nýtt þær í
fæði og klæði.
Myndnotkun og útlit
Myndaval og útlit er að mörgu leyti
nýstárlegt og hressandi. Myndir skipa
veglegan sess í ritinu að vanda og er hér
farið inn á nokkuð nýjar brautir í þeim
efnum. Mikið af myndefninu er sérstak-
lega unnið fyrir þetta hefti Sagna. Þótt
það hafi verið gert áður felst munurinn i
að það er meira áberandi og er eitt helsta
einkenni í myndanotkun þessa árgangs
Sagna. Þannig eru frumteiknaðar myndir
við efni sem er innan „ljósmyndaaldar",
þar sem möguleiki hefði verið á ýmsum
öðrum lausnum. Þetta er athyglisverð til-
raun í mörgu, en tekst ekki alltaf jafnvel.
Lítum nánar á myndnotkunina í heild.
Forsíðan er það sem flestir taka eftir
fyrst. Hún hefði getað verið betri. Þama
eru settar saman níu annars ágætar
myndir og sumar þeirra eru verulega
góðar. Hönnun forsiðunnar hefði þurft
að vera vandaðri til að þær fengju notið
sín til fulls og kápan orðið meira aðlað-
andi. Það er líka álitamál hvað fólki
fmnst um hlutverk forsíða yfirleitt. Eiga
þær að gefa mynd af umijöllunarefni ár-
gangsins, vekja forvitni, vera sölukápur
eða þutfa þær kannski ekkert að tengjast
þeim sögulega veruleika sem fjallað er
urn í ritinu? Þessi kápa gefur hugmynd
um að ritið sé helgað sögu kvenna af
ýmsum stéttum, hópum og aldri, hugs-
Skúli tynrðsson
Höfu m VjV3
gengið til Róðs
g’ nUbmak]oðIelagos ... , °
& °g truin á fnirifarir
'ÍÍÍ'J
. lu*eynd að er *ð
h,J°»»*«runn hu .]„, fim1Ur
Wcit» svo ° '1S,"<1» oe f,L ■
W. , ■'« «u~J. “*»
I Wcna svo ° 1I,"‘Í» oe f,L ■
ihtnir siiic B‘cuu cm ckl , i
uinMo / í? " "** ■« J)«-
rZZ""01
Fitt l
t. *iopllcr
'"Kuin 'i!!!^ bc,Uf Þci"> pfurlctn, k
‘c"1 onMó Jua ** brcYt-
"I "UnnfrJ ^ ^n^gn-
Voundj inn, níf*ð*"'ur. j\ „ö 9
-r tSSL4*-'«2£?
r*6** °S nunnfrj tfe
.tJh mlbu,,, <■ Hn» ho
os SS'UmUi^
sacnih m
88 SAGNIR