Sagnir - 01.06.1997, Side 38

Sagnir - 01.06.1997, Side 38
gangslitlar í því tómi sem á endanum mun ná okkur öllunr. En þegar grannt er skoðað er hún ekki ein frekar en mann- eskjan á mynd númer eitt.Aftur eru þrír diskar staðsettir i kringum hana og það sem meira er að til hægri við hana eru lóðréttar línur sem miðla tilfmningu festu og stöðugleika. Þetta virðist vera fortjald við fyrstu athugun, tjald sem hylur áhorf- andann einhverju, einhverju sem skiptir máli. Kannski manneskju eða einhverju leyndarmáli sem manneskjan á ein. Leyndarmál sem enginn veit, ekki einu sinni málarinn sjálfur. Ef hugsað er til Mondrians gætu þessar lóðréttu línur sem fortjaldið myndar táknað karlmann. Lóð- rétta tjaldsins myndar of skipulagða and- stæðu við láréttu kvenmannsins til að maður geti komist undan þeim vangavelt- unr. Það er síðan varla tilviljun að litli glugginn sem veitir birtu og von inní myndina er staðsettur í fortjaldinu. I for- tjaldinu sem hylur leyndardóminn eða er tákn karlmannsins, annarrar manneskju, er leiðin til handanheimsins fólgin. Það er eitthvað annað en þetta tóm, það hlýtur að vera, það verður að vera, öðruvísi er baráttan og bægslagangurinn í þessu tómi of stór harmleikur til að geta umborið hann. A mynd númer fimm hefur Jón mál- að tvær manneskjur á dökkbrúnan bak- grunn. Það er jarðar- litur og lárétt bakvið manneskjurnar hefur hann málað tré sem ekki sést hvort hafi rætur í bakgrunnin- um eða sé í lausu lofti einsog mann- eskjurnar sem mynda lóðréttu í mynd- inni. Þær halla á móts við hvora aðra einsog þær eigi erfitt nreð að ná jafnvægi í dinnnu umhverfmu. Því þó brúnt sé jarðarlitur, stafar ekki mikilli hlýju eða ör- yggi frá honum. Ekki frekar en þessari jörð sem við stöndum á sem virðist vera föst undir fótum okkar, en ef trúa má eðl- isfræðingunum er hún það alls ekki. Samt er enginn ótti sem skín úr augum þeirra, þau eru vön óstöðugleikanum, jafnvel litla stúlkan á myndinni horfir frekar öruggum augum franr á við. Kannski ekki furða því rétt einsog Heidegger talaði um, lærum við að lifa áður en við lær- um að efast og velta fyrir okkur hvern fjandann við erurn að gera hérna.16 Fyrir kunnuga eru andlitin þekkjanleg, því þau virðast vera Jón Axel sjálfur og dóttir hans, Brynja. Jón Axel sagði magn- aða sögu af þessu tréi, sem var á þá leið að „Ef hugsað er til Mondrians gætu þessar lóðréttu línur sem fortjaldið myndar táknað karlmann. Lóðrétta tjaldsins myndar of skipu- lagða andstæðu við láréttu kvenmannsins til að maður geti komist undan þeim vangaveltum." 36 SAGNIR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.