Sagnir - 01.06.1997, Page 76
Svartidauði á íslandi
í marsmánuði 1997 stóð Félag sagnfræði-
nema fyrir ráðstefnu um plágur þær sem
herjuðu á Islandi á 15. öld. Þær hafa lengi
verið eitt helsta deiluefni sagnfræðinga
jafnt sem annarra fræðimanna á Islandi.
Um fátt eru menn samnrála, hvort sem
það er eðli sjúkdómsins, virkni hans eða
eftirköst.
UmQöllun um áhrif farsótta á íslenska
miðaldasamfélagið er kjörið tækifæri fyrir
fræðimenn úr ólíkum greinum til að bera
saman bækur sínar. Nauðsynlegt er að
kynna sér ýmis atriði úr dýra-, læknis- og
faraldsfræði til að geta sett fram tilgátur
um mannfall af völdum pestanna sem
herjuðu hér á fimmtándu öld. Því var
leitast við að fá sérfræðinga úr sem flest-
um áttum á ráðstefnuna.
Fjölmörgum spurningum varðandi
þetta efni er ósvarað. Var þetta önnur
mynd þeirrar plágu sem geisaði í Evrópu,
það er að segja lungnapest eins og Qöl-
tnargir íslenskir fræðimenn hafa haldið
fram? Eða var þetta ef til vill allt önnur
drepsótt en sú sem nefnd hefur verið
svartidauði: skæð inflúensa, taugaveiki eða
jafnvel bólusótt? Nú á allra síðustu árum
hafa nokkrir fræðimenn haldið því fram
að hér hafi einfaldlega verið á ferðinni
kýlapest - sú tegund pestarinnar sem strá-
felldi Evrópubúa á miðri fjórtándu öld.
A meginlandi Evrópu var svartidauði
faraldur sem einkum barst í menn frá
flóm nagdýra, er þá sérstaklega bent á
svartrottuna sem hýsil í því sambandi. Nú
efast margir um tilvist rotta á Islandi á
miðöldum og því vakna spurningar um
sérstöðu þeirrar plágu sem hér geisaði.Var
mögulegt að pestin hafi borist með flóm
músa sem sannanlega voru til staðar?
Hver er erfðafræðilegur rnunur á rottum
og músum? Er ennfremur hugsanlegt að
mannaflær hafi getað borið bakteríuna á
milli einstaklinga? Ef ekki - hvað gerir
rottuflærnar svo sérstakar í því sambandi?
Er plágan sem slík ef til vill sönnun þess
að hér voru rottur og er hægt að útiloka
að þær hafi öðru hvoru borist til landsins
með erlendunr kaupskipum rétt eins og
enn þann dag í dag?
Frá sjónarhóli fólksíjöldafræðinnar er
athyglisvert að velta því fýrir sér hvernig
og hve. lengi íbúatalan var að ná fyrri
Plágan heijar á íbúa Napólí.
stærð. Hafði plágan og mikið mannfall af
hennar völdum þau áhrif að þeir sem eft-
ir voru höfðu nreira til að spila úr og því
haft ráð á að eignast mörg börn? Eða var
sjúkdónrurinn alvarlegur afturkippur á þá
fólksfjölgun sem staðið hafði yfir, hugsan-
lega linnulítið frá landnánri? Hindraði
hann þannig að hér nryndaðist sú mann-
þröng sem oft er litið á sem frumforsendu
nývæðingar?
Hér á eftir eru birt framlög einstakra
fýrirlesara. Flest eru þau lítið breytt frá því
þau voru flutt á ráðstefnunni en í einstök-
unr tilvikunr hefur verið bætt við erind-
in. Einnig er birt samantekt úr unrræðunr
sem fóru franr eftir að fyrirlestrunr lauk.
Aðstandendur ráðstefnunnar vilja konra á
framfæri þakklæti til fyrirlesara senr allir
voru reiðubúnir til að leggja á sig nrikla
vinnu við undirbúning fyrirlestra og
greina. Sérstaklega viljum við þakka Har-
aldi Brienr veitta aðstoð.
Agúst Hauksson
og Pétur Hrafn Arnason
74 SAGNIR