Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Síða 23

Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Síða 23
JÖLAHELGIN 21 son rammkaþólskur, því hann trúir cins og Þorlákur helgi, liíi Jón Guð- mundsson, liíi Þjóðólfur, skál, surs- um corda, sursum, laus dco semper, minn Jón, minn einasti Jón, sursum! Jón: Ja, ég.trúi ekki á páfann og ekki á helga menn. Dj.: Enginn trúir á páfann og cng- inn á helga menn. Jón: Altso er ég kaþólskur. Dj.: Já! Jón: Lad goae! Dj.: Dominus tecurn, Jón Guð- mundsson! Jón: Ég er altso kaþólskui'? Dj.: Já, kærðu þig bölvaðan og drekktu, Jón! Jón: Ætli ég komi þá í himnaríki? Dj.: Þá þekki ég illa Finnstein, ef þú kemur ekki þar, Jón. Sancta Birgitta (úr himninum): Djúnki, þú ert vi'övlari. (Einn Finnlappi með fimm grað- hreina.) Dj.: Ecce, Jón Guðmundsson, þetta er einn af mínum lærisveinum. Jón: Það er so, sá er gáfulegur! Ég vil ekki tala við þennan dóna. Lappinn: Sælir nú, Djúnkófskur minn, ég hef verið að leita að yður í þrjá daga. Dj.: Hvað cr nú, sursum corda? Lappinn: Ja, ég hef nú engin önn- ur ráð en að biðja yður að umvenda þessum graðhreinum, þeir láta mer- arnar aldrei í friði og það er þvílíkt andskotans drasl heima hjá okkur af þessu stóði, að það tekur ekki tali. Dj.: Rekið graðhreinana hingað. Lappinn: Ja, cinn snýr rassinum að, cn hann slær ekki. Dj .: Dominus vobiscmn, bai’a hann slái ekki fret framan í mig. Lappinn: Það gerir ekkert til. Dj.: Das sind böse Thicren, man mutz sie convertieren. Hvar er bibl- ían mín, ekki vænti ég þér hafið séð hana hér, þér eruð svo glöggskyggn. Ég gef yður náttúrlega konjak. Lappinn: *Ja, ætli graðhreinarnir batni þá? Dj .: Já, en biðjið þér fyrir þeim. Lappinn: Ja, ég held það hjálpi lítið. Dj .: Þa’ var satans. Hvar cr biblían mín? Lappinn: Hún liggur þarna á hvalnum. Dj.: Mikill ræfill Jón Guðmunds son, komdu nú með liækjuna til að krækja í biblíuna. Lappinn: Á ég að ná hækjunni, hún liggur hérna á hrosshveli? Dj.: Já, lapm. Lappinn: Það kostar einn pela. (Nær hækjunni.) Jón: Nú ætla ég að leggjast flatur og ná biblíunni. (Nær biblíunni.) Dj.: Taktu nú einn konjak og so skulum við ríða hvölunum austur að Kirkjubæjarklauslri og ég skal vcrða þar ábóti. Jón: En hvað á ég að vera? Dj.: Og þú getur ekki verið nema Jón Guðmundsson. Jón: Já, við skulum fara heim. Dj.: Já, og so skulum við senda Sveinbirni Iiallgrímssyni öll verkin mín. Jón: Nei, hann vill ekki hafa þau. (Stíga á hvalina.) Hvalatvísöngur. Nú berum við báðir Djúnka og Jón! Vive la compagneia! Ánnar er heilagur, annar er Ijón! Vive la compagncia! Vive la, vive la, vive la! Va! Vivc la, vivc la, hopsasa! Vive la compagncia! Sveinbjörn og Lúter og Sigurður sýr! Vive la compagneia! Og Karlamagnús keisarinn dýr! Vive la compagneia! Vivc la, vivc la, vive la! Va! Vive la, vive la, hopsasa! Vivc la compagncia! Venus og Bacclius og stúlkur og staup' Vive la compagneia! Brennivínsflöskur og höfrunga- hlaup! Vivc la compagncia! Vive la, vive la, vive la! Va! Vive la, vive la, hopsasa! Vive la compagneia! Kirkjubæjarklaustur og krofin og smér! Vivc la compagneia! Miðnætursólin og marsvína hcr! Vive la compagneia! Vive la, vive la, vive la! Va! Vive la, vive la, hopsasa! Vive la compagneia! Þetta eru nú originalitetin, og vona ég að þú, sem ert af forlögun- um forskánaður frá því að hafa and- ast af þínum malheur, munir lesa það með þeim sama anda og það er gcrt. Komi Jón Guðmundsson aftur — strax eftir að ég var farinn, þá réðist hann á mig, eftir að hafa þókst vera vinur minn. Þér hefur gróflega íarið fram að skrifa siðan í skóla; ég hcf ekki séð höndina þína síðan fyrr en nú, en mér .held ég fari aftur. Lík- lcga nennirðu að skrifa mér aftur, svo ég eigi citt document frú Rúka, frá þeim rauða, eineygða og harð- svíraða Rúka, en hvað ætlar þú að skrifa mér — ja, hvurnin á ég að vita það? Þú veizt það náttúrlega ekki sjálfur. Skrifaðu mér eitthvað um Lauga Þórðarson, mig interesser- ar hans Existence, og so vona ég þú skrifir mér eitthvað annað, ég lifi allur í norðri og þangað vill hugur- inn helzt, sem hvítir tindar rísa í glaðri himinsól, að gömlu landi ísa — nescio virtus erat. Það er leiðin- legt fyrir þig að púla í þessu lexi- coni og fá ekkert fyrir það — það er hreint desperat. Láttu ekki líða langt áður en þú skrifar mér, maður er hér eins og soltinn, glorhungrað- ur hræfugl, sem mænir helþrungnu auga írá ófrjávri öldu upp að bros- andi grund — hér fer nú bréfið að minnka, ideerne halda þó töluvert áfram, ef menn nenntu að skrifa allan þann sæg, sem fyrir hugann ber; heimurinn er stór, myndirnar margar og sálin djúp; nú cr farið að dimma hér, platanarnir og akasíu- trén kasta dimmum skuggum á grundirnar, og kóngurinn af Belgíu hvílir í ólympiskri ró undir gamalli eik, eins og gömul, ossiansk hetja, íhugandi langar stundir frægðar- glaðrar ævi, þegar kapparnir sveifl- uðu blámönnum og illþýði á sveiflu- háum klofbrögðum niður til helvítis, og Sigurður Jórsalafari hræddi Kir- jalax svo hann grét og fékk Jóhann Sólskjöld til að kveða Bernótusar- rímur fyrir Sigurði Jórsalafara. Lifðu vel, Rúki, ég lcgg bréfið innaní til annars manns, af því ég veit ekki hvar þú býrð. Hin norræna Babýlon er stór, en maðurinn lítill. Þinn B. Gröntlal*

x

Alþýðuhelgin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.