Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Blaðsíða 36
34
JÓLAHELGIN
E1 Greco: Hinn heilagi Jakob.
E1 Greco: Guðspjallamaðurinn.
þeim, er eftir hann liggja. Málverk-
in eru saga hans. Sú saga er stór-
fengleg og vitnar öllu rituðu máli
betur um það, hversu mikill per-
sónuleiki og stór andi hann var.
Nokkur brotabrot af dómum sam-
tíðarmanna hafa einnig geymzt, og
geta hjálpað til við að skýra mynd
hans. Hann hefur verið manna fjöl-
hæfastur. Pacheco, tengdafaðir
Velasquez, lýsti E1 Greco á þessa
leið: „Hann var ekki við eina fjöl-
ina felldur. Hann fékkst við heim-
speki, höggmyndasmíð og bygging-
arlist Og ég held, að í öllum þessum
greinum hefði hann getað komizt
jafnlangt og í málaralist“. Hann
var strangur gagnrýnandi, bæði við
sjálfan sig og aðra. En stolt hans
hefur stundum orðið að hofmóði.
Einhverju sinni var hann spurður,
hvaða álit hann hefði á Michel-
angelo. Hann svaraði þegar: „Mic-
helangelo er góður maður, en hann
kann ekki að mála“. Á höggmynd-
ir hans minntist hann ekki.
Þótt E1 Greco dveldi á Spáni um
nálega 40 ára skeið, samdi hann sig
aldrei til fulls að siðum Spánverja.
Hann var hreykinn af því að vera
Grikki, og virðist hafa litið niður
á Spánverja, talið þá siðlitla og úr-
kynjaða. Svo lítið þótti honum koma
til spænskrar menningar, að hann
hirti aldrei um að læra mál þjóð-
arinnar til neinnar hlítar. Þegar
hann fór úr jafnvægi á skapsmun-
um, og það bar ósjaldan við, hellti
hann yfir mótstöðumenn sína langri
bunu af grískum skammaryrðum,
sem enginn skildi. Og ræður hans
— en E1 Greco var ræðumaður með
afbrigðum voru ævinlega krydd-
aðar grískum orðum og setningum.
En afstaða E1 Greco til landsins
Spánar var öll önnur en viðhorf
hans til spænsku þjóðarinnar. Feg-
urð Spánar hreif listamannssál E1
Greco. Þar sá hann línur og liti,
sem kornu anda hans á flug. Lands-
lagsmyndir hans, sem eru ekki
margar, eru sumar stórfengleg lista-
verk, hafa veitt honum fullan þegn-
rétt meðal fremstu málara Spán-
ar, enda hefur einn listdómari um
hann sagt: „Þótt E1 Greco væri
grískur að uppruna og fæddur a
eynni Krít, er hann eigi aðeins i
hópi spænskra málara, heldur er
liann máske spænskastur þeirra
allra“.
5.
Málaraskóli sá, sem E1 Greco
myndaði á fyrstu árunum eftir
komu sína til Toledo, varð hvorki
fjölmennur né langær. Lærimeist-
arinn var of sérstæður og fjarn
alfaraleiðum til þess að margir fet-
uðu beint í fótspor hans. En áhrif
hans á liina ungu málarakynslóð
Spánar voru eigi að síður mikil,
svo að almennt er hann talinn fað-
ir spænskrar málaralistar. Áður
hafði myndlist á Spáni fvrst og
fremst verið aðkeypt list. Þegar
konungurinn eða aðallinn vildi
skreyta hallir sínar með listaverk-
1
k