Alþýðuhelgin - 24.12.1949, Side 39
JÓLAHELGIN
37
Tvær af frægustu myndum E1 Greco. — Til vinstri:
Greftrun Orgazar greifa. — Til hægri: Píslarvætti
heilags Mauriusar.
liðin er síðan hann var uppi, hefur
naumast komið fram nokkur jafn-
oki hans að þessu leyti, nema ef
vera skyldi Cézanne.
7.
Með fáum og fátæklegum orðum
verður nú lýst nokkrum myndum
eftir E1 Greco, og bent á lielztu
einkenni þeirra.
Píslarvætti heilags Mauriusar,
sem nefnd hefur verið hér að fram-
an, er ein af allra frægustu mynd-
um hans. Málverkið er gert út af
eftirfarandi helgisögu: Maurius
hershöfðingi frá Þebu hafði, ásamt
hersveitum sínum, snúizt til krist-
innar trúar, en var eftir sem áður
í herliði rómverska keisarans. Þess-
ir kristnu hermenn fengu fyrirskip-
un um að færa hinum heiðnu goð-
um í Róm fórnir og tilbiðja þau.
Þeir ákváðu þá, undir forystu Maur-
iusar, að neita fyrirskipan þessari,
þar eð þeir væru skuldbundnir
Kristi, en öðrum eigi. Þar með kusu
þeir píslarvættisdauðann.
E1 Greco skiptir mynd sinni í þrjá
hluta. Neðst á myndinni miðri sést
Maurius skýra foringjum sínum -frá
því, hvernig komið sé, og eggjar
þá á að deyja fyrir trú sína. Til
vinstri, nokkuð í baksýn, sést Maur-
ius standa rólegur og horfa á, með-
an hermenn hans, einn af öðrum,
beygja höfuð sit undir öxi böðuls-
ins. Hinir bíða þess þólinmóðir, að
röðin komi að þeim, og sveigist fylk-
ingin eins og slanga upp eftir mynd-
fletinum. Efsti hluti myndarinnar
sýnir engla, er taka á móti sálum
píslarvottanna og flytja þær í hinar
eilífu tjaldbúðir. Mynd þessi er
geysistór. Listamaðurinn leggur
megináherzlu á það, að túlka helga
kyrrð og trúartraust píslarvottanna,
svo að aftakan breytist raunveru-
lega í fagnaðarhátíð.
Greftrun Orgazar greifa, Þessi
mynd er af mörgum talin frábær-
asta verk E1 Greco. Greifinn hafði
verið mjög ástsæll og trúaður aðals-
maður í Toledo. Helgisagan segir, að
dýrlingar tveir, heilagur Stefán og
heilagur Ágústín, hafi stigið niður
af himni, þá er greifinn var lagður
í grafhýsi ættar sinnar, og tekið að
sér stjórn helgiathafnarinnar. Iíin
stórfenglega mynd E1 Greco sýnir
20 spænska aðalsmenn, sem horfa á
þá er greifinn er lagður í grafreit-
inn. Þeir mynda eins konar vegg
að baki heilögum Stefáni og heilög-
um Ágústín, sem halda uppi líkama
hins látna, annar undir höfuð hans,
hinn undir hnén. Efri hluti mynd-
arinnar sýnir engla, sem bera sál
greifans til himna, þar sem Kristur
og María mey bíða hennar.
Einkenni myndarinnar eru helgi
og alvara. Þeirri túlkun lýtur hvert
atriði þessarar geysistóru myndar.
Þótt aðalsmennirnir hafi allir sín
einstaklingseinkenni, svo að engir
tveir eru eins, mynda þeiv eina