Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 2
Pyntingar til
saksóknara
Rannsókn er lokið á pynting-
um sem áttu sér stað í byrjun
júní í Fáfnishúsinu. Þá bjargaði
sérsveit lögreglunnar manni úr
klóm mótorhjólagengisins Fáfnis
MC. Maðurinn hugðist segja sig
úr mótorhjólaklúbbnum sem
hann var aðili að. Það þótti öðr-
um félagsmönnum ótækt.
Unnusta mannsins kallaði á
lögregluna, lögreglumenn hafa
margsinnis verið kallaðir til og
hafa haft afskipti af atburðum
í húsnæði Fáfnis. Alls voru tíu
menn handteknir, sjö þeirra voru
svo hnepptir í gæsluvarðhald.
Málið liggur hjá saksóknara sem
tekur ákvörðun um hvort ákært
verði í málinu.
föstudagur 10. ágúst 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Annar maður hefur greinst hér
á landi með hermannaveikina. DV
sagði frá því fyrr í sumar að starfs-
maður Kárahnjúka hefði smitast af
þeim sjúkdómi. Nú er ljóst að ann-
ar maður hefur einnig greinst með
sjúkdóminn. Þetta staðfestir Harald-
ur Briem, sóttvarnalæknir hjá Land-
læknisembætti Íslands. Málin eru al-
gjörlega aðskilin en talið er að seinni
maðurinn hafi smitast í Skandin-
avíu líkt og sá fyrri. Þá var um Svía
af pólskum uppruna að ræða. Hann
greindist í lok júní og var lagður inn
á Landspítalann í byrjun júlí. Eng-
in önnur tilvik hafa greinst á Kára-
hnjúkum eftir það.
Íslenskur maður greindist með
hermannaveiki í júlí þegar hann
kom aftur til landsins eftir að hafa
ferðast um Evrópu. Veikin getur
í verstu tilfellum dregið menn til
dauða. Talið er að maðurinn hafi
smitast af veikinni á hóteli í Skand-
inavíu en ekki var gefin upp ná-
kvæm staðsetning þar sem maður-
inn á að hafa dvalið.
Líkt og fyrra tilfelli hermanna-
veiki á Íslandi sem DV greindi frá er
atvikið talið algjörlega einangrað.
Það tekur tíu daga að sjá einkenni
sjúkdómsins og ef engin önnur til-
felli koma upp stuttu eftir þann tíma
er talið að um einangrað tilfelli sé að
ræða.
„Við fáum eitt til tvö tilfelli á ári,
en þau geta orðið allt að fimm,“ seg-
ir Haraldur. Hann segir engan við-
búnað vegna slíks hér á landi nema
grunur leiki á að smitberinn sé
ákveðið vatn hér á landi. Sjúkdóm-
urinn smitast ekki á milli fólks. Veir-
an heitir legionella pneumophila og
leggst á lungu manna. Menn hafa
látist af völdum veirunnar en enginn
hér á landi hefur dáið vegna hennar.
Starfsmaður Kárahnjúkavirkjunar er
kominn af spítala. valur@dv.is
Annað tilfelli hermannaveiki þegar Íslendingur veiktist í Skandinavíu:
Sýktist af hermannaveiki á ferðalagi
Landspítalinn annar
maður var lagður inn á
Landspítalann eftir að hafa
veikst af hermannaveiki.
Stefnir í StærSta
gjaldþrotið
Prentsmiðjan Íslandsprent hefur farið fram á greiðslu-
stöðvun vegna slælegrar fjárhagsstöðu. Stærstur hluti
skuldanna er við erlenda birgja sem leita nú leiða til
innheimtu. Rekstraraðilar fyrirtækisins hafa
áður lent í gjaldþroti upp á 700 milljónir, þá
undir heitinu Prisma-Prentco. Samkvæmt
heimildum DV blasir gjaldþrot upp á
milljarð við sem yrði stærsta
gjalþrotið í prentiðnaði.
Íslandsprent hefur fengið greiðslu-
stöðvun fram til 22. ágúst til að
freista þess að ná samningum vegna
mikilla skulda. Erlendir birgjar sitja
einkum í súpunni þar sem aðilar
á innanlandsmarkaði hafa sumir
hverjir forðast viðskipti við fyrirtæk-
ið vegna fyrri samskipta.
Skuldir Íslandsprents eru sagðar
nema hundruðum milljóna, stærst-
ur hluti þeirra er vegna vélakaupa
í gegnum erlent fjármögnunarfyr-
irtæki. Samanlagt er talið að skuld-
ir Íslandsprents séu nærri milljarði
króna og ef til gjaldþrots kemur yrði
það stærsta gjaldþrot prentiðnaðar-
ins hér á landi.
Sömu rekstraraðilar höfðu áður
farið á hausinn með prentsmiðju
sem bar heitið Prisma-Prentco.
Samkvæmt heimildum DV voru þeir
sem ráku fyrirtækið farnir að stíla
reikninga þess í nafni Íslandsprents
nokkru áður en til gjaldþrotsins kom.
Það var gert í þeim tilgangi að koma
tekjum undan gjaldþrotinu sem á
endanum nam nærri 700 milljónum
króna.
Birgjar á leiðinni
Skuldir Íslandsprents eru við
birgja víða erlendis, til dæmis í Pól-
landi, Hollandi og Danmörku, og er
um að ræða tuga milljóna skuldir í
hverju tilviki fyrir sig. Stærsta skuld-
in er við fyrirtækið KBA Nordic
sem fjármagnaði tækjakaup prent-
smiðjunnar að öllu leyti. KBA er
fjármögnunarfyrirtæki í líkingu við
Lýsingu hér á landi. Þar á bæ feng-
ust þær upplýsingar að síðustu þrjú
ár hafi Íslandsprent einvörðungu
greitt vexti vegna fjármögnunar og
enn hafi því ekki komið til niður-
greiðslu höfuðstóls lánanna. Sam-
kvæmt heimildum DV eru yfirmenn
KBA að setja saman vinnuhóp til að
senda hingað til lands og taka niður
vélar í prentsmiðjuhúsnæði Íslands-
prents. Öðrum erlendum birgjum
hefur verið gert viðvart um slæma
fjárhagsstöðu Íslandsprents og fram-
undan hjá fyrirtækinu er að reyna að
ná samningum við lánardrottna sína.
Áður hafði Hilmar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsprents, hafn-
að því alfarið að prentsmiðjan væri
á leið í gjaldþrot þar sem viðræður
um nýtt fjármagn í félagið stæðu yfir.
Jafnframt sagði hann kennitöluskipti
fyrirtækisins ekki yfirvofandi og neit-
aði því að nýja fyrirtækið, Eldur og ís,
stefndi í sama rekstur.
Húsnæði í Reykjanesbæ
Hjá Fyrirtækjaskrá ríkisskatt-
stjóra hefur nú þegar verið stofnað
nýtt fyrirtæki á nýrri kennitölu, sem
ber heitið Eldur og ís, og er einnig
skráð undir starfsemi offsetprent-
unar líkt og Íslandsprent. Á bak
við það fyrirtæki eru sömu aðilar
og eiga Íslandsprent. Samkvæmt
heimildum DV hafa þeir sóst eftir
stærðar lóð í Reykjanesbæ. Pétur
Jóhannsson, framkvæmdastjóri at-
vinnu- og hafnarsviðs Reykjanes-
bæjar, staðfestir að rekstraraðilar
prentsmiðju hafi lagt fram beiðni
um lóðina. „Þetta hefur ekki ver-
ið tekið formlega fyrir hjá okkur en
spurt hefur verið eftir lóð hjá okk-
ur undir prentsmiðju. Það eru því
uppi hugmyndir um prentsmiðju-
starfsemi á lóð hjá okkur en ég get
hvorki staðfest nú útilokað að um
þessa ákveðnu prentsmiðju sé að
ræða,“ segir Pétur.
TRausTi HafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Samanlagt er tali��
a�� skuldir Íslands-
prents séu nærri millj-
ar��i króna og ef til
gjaldþrots kemur yr��i
þa�� stærsta gjaldþrot
prenti��na��arins hér
á landi.
stefnir í gjaldþrot
Íslandsprent hefur hlotið greiðslustöðvun fram til 22. ágúst þar sem leitað verður
samninga við birgja og lánardrottna fyrirtækisins. Erlendum birgjum hefur verið
gert viðvart og von er á vinnuhópi til að rífa niður vélar í húsnæði prentsmiðjunnar.
drukkinn á
ljósastaur
Ölvaður ökumaður missti
stjórn á bíl sínum og hafnaði á
ljósastaur í Reykjanesbæ í fyrri-
nótt. Ökumaðurinn var á ferð á
Hafnargötu þegar hann missti
stjórn á bíl sínum með þessum
afleiðingum. Ökumaðurinn
slapp þó án meiðsla en var látinn
sofa úr sér í fangageymslu þegar
lögreglan komst að því hversu
ölvaður hann var.
Kranabíll var kallaður til svo
draga mætti bílinn af vettvangi.
Annars voru níu ökutæki boðuð
í skoðun. Þá mega eigendur sex
bifreiða eiga von á sektum fyrir að
leggja á röngum vegarhelmingi.
rannsókn á
lokastigi
Rannsókn á meiriháttar lík-
amsárás á hinn dæmda morð-
ingja Hákon
Eydal er á
lokastigi hjá
lögreglunni á
Selfossi.
Þrír sam-
fangar Há-
konar á Litla-
Hrauni réðust
á hann í byrjun júlí og gengu al-
varlega í skrokk á honum. Hann
fótbrotnaði við árásina. Ástæðan
er sú að Hákon stundaði heima-
brugg innan fangelsismúranna.
Málið verður sent til ríkissak-
sóknara þar sem litið er á atvikið
sem alvarlega líkamsárás.
innbrot og
eldur í bíl
Mikil afbrotahrina hefur geng-
ið yfir í Hafnarfirði en óprúttnir
aðilar hafa brotist inn í sex bíla
við miðbæ Hafnarfjarðar síðustu
þrjár nætur. Aðallega er stolið
geisladiskum og geislaspilurum.
Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins. Þá eyðilagðist bíll
við Ártúnshöfða í gærmorgun
eftir að eldur kviknaði í honum
á ferð. Slökkviliðið kom á stað-
inn og gekk greiðlega að slökkva
eldinn. Ökumaðurinn slapp
ómeiddur. Eldsupptök eru ókunn
en talið er að kviknað hafi í út frá
rafmagni að sögn lögreglu.