Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Side 18
Það er ekki rétt af Vísi og það er ekki rétt af veitingamanni að bera það upp
á dómsmála-
ráðherrann
að hann vilji
loka miðborg
Reykjavíkur.
Björn Bjarna-
son er ekki
þannig maður.
Það er ekki rétt af
Vísi að láta misskilning sinn verða til
þess að blaðamenn séu sendir um
allan bæ og látnir spyrja asnalegra
spurninga, spurninga sem ekkert
er á bak við nema misskilningurinn
einn. Þetta er ekki heppilegt. Það er
þó bót í máli að fórnarlamb misskiln-
ings var dómsmálaráðherrann, Björn
Bjarnason.
Hann kann að svara fyrir sig, hann Björn. Hann hefur meiri reynslu af því en aðrir
menn. Björn hefur
skrifað meira á net-
ið en almennt ger-
ist, jafnvel meira
en flestir aðrir og
kannski meira
en nokkur annar,
allavega meira en
Össur Skarphéðins-
son og þá hlýtur hann að hafa skrif-
að meira á netið en nokkur annar
stjórnmálamaður. Þannig er Björn,
hann liggur ekki á skoðunum sínum.
Hann segir það sem hann meinar.
Björn er maður orðanna. Þetta vita
allir núorðið.
Samt á Vísir ekkert með að vera að misskilja ráðherrann og segja
að hann vilji loka miðborg
Reykjavíkur eins og Akureyri
var lokað. Björn er ekki skræfa,
Björn er maður áskorana og átaka
þegar þeirra er þörf. Það sýnir sagan
og segir. Björn er ekki þannig maður
að hann vilji banna allt og loka
öllu. Nema kannski stund-
um, en það er annað mál
og kemur Vísi og miðborg-
inni barasta ekkert við.
Miðborgin á að vera opin
öllum, bæði ungum og
gömlum, stórum og litlum
og það allt saman.
Hitt er aftur rétt að Björn hefur svo sem bannað. Hann hefur ekki bannað fólki að koma
í miðborgina. Eins og áður segir er
Björn ekki þannig maður og það skal
haft í heiðri. Björn er allt annars kon-
ar maður. Hann vill eðlilega að mið-
borgin sé öllum opin, alltaf. Það er
annað sem Björn vill banna og hef-
ur bannað og fyrir það verður hans
minnst. Björn er staðfastur maður og
hefur með starfi sínu og þreki komið
málum á þann veg að eftir hefur ver-
ið tekið.
Frjálslyndi hefur á sér margar
myndir. Frjáls-
lyndir stjórn-
málamenn eru
í mörgum flokk-
um. Sumir þeirra
eru svo frjálsyndir að
þeir amast ekki við því hvaða fólk og
á hvaða aldri er í miðborginni. Svo
víðsýnir geta þeir verið, blessaðir.
Það hefur ekkert með frjálslyndi og
víðsýni Björns dómsmálaráðherra að
gera að hann vill ríkisafskipti af ráða-
hag ungs fólks. Hann hefur komið því
þannig fyrir, og ekki að ástæðulausu,
að ungt fólk má ekki án ríkisafskipta
giftast fólki frá öðrum löndum og
stofna með því heimili. Þannig ráð-
herra er Björn, hann skiptir sér ekki af
því hvort ungt fólk komi í miðborgina,
hann skiptir sér bara af því hverjum
þetta unga fólk giftist, eða giftist ekki.
föstudagur 10. ágúst 200718 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúMer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
áskriftarsíMi 512 7005, auglýsingar 512 70 40.
Lok, Lok og Læs
Grímþór
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Fræðin nemur hann í fangelsinu að Litla-Hrauni, glæpaskóla ríkisins.
Glæpaskóli ríkisins
Leiðari
Þarna lærir maður meira um glæpi og hvað maður á ekki að gera,“ sagði ungur síbrotamaður við blaðamann DV í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni. Þar er fanginn ungi að tala um Litla-Hraun þar sem hann segist læra
til afbrota og hvað afbrotamönnum ber að forðast. Fullyrðing-
ar fangans koma sennilega ekkert á óvart. Flest höfum við haft
grun um að á Litla-Hrauni læri ungir afbrotamenn af þeim eldri
og það verði til þess að ungir fangar komi harðari og ákveðnari
úr fangelsi en þeir voru áður en til refsivistarinnar kom.
Stúlka, nýorðin sextán ára, er fréttaefni þessa dagana. Hún
var tekin með kókaín í Leifsstöð. Hún var í fylgd með nán-
ast tvöfalt eldri manni, manni sem er sagður hafa ítrek-
að komist í kast við lögin, og eflaust lítur hún upp til
mannsins og er að læra af honum glæpina, en hann
hefur ekki náð að kenni henni það sem á ekki að
gera, eins og ungi fanginn á Litla-Hrauni er að læra
í glæpaskólanum á Litla-Hrauni.
Með aukinni fíkniefnaneyslu ungs fólks leiðast fleiri
ungmenni út á glæpabrautina. Ungi fanginn réðst að
næsta manni og rændi þegar hann vantaði pening
til að kaupa fíkniefni. Saklausir borgarar eru í meiri
hættu en áður var. Vandasamt er að finna leiðir til
refsingar ungum afbrotamönnum. Greinilega er ekki
rétt að þeir séu innan um útlærða og þaulreynda glæpamenn.
Eins eru rök fyrir að ekki sé heppilegt að ungir afbrotamenn séu
í sérfangelsi þar sem tengsl myndast og klíkur verða til. Vand-
inn er til staðar og það er yfirvalda að finna lausnina. Lítil von
eða engin er í að ungt afbrotafólk nái áttum meðan málum er
háttað eins og nú er. Sú er von okkar að ungt fólk nái að vinna
sig af braut afbrota og finni eðlilega lífshamingju og lífsfyllingu.
Til að það verði mögulegt þarf að bregðast við.
Í DV í dag er fjallað um ungt fólk í afbrotum. Þetta er alvarlegt mál
sem má ekki vanmeta. Fylgifiskar óreglu eru meðal annars af-
brot og teikn eru um að þau verði sífellt grófari og miskunn-
arlausari. Unga fanganum sem DV ræddi við fannst ekkert
að því að leggja fyrir sig lærdóm í afbrotum og því sem
afbrotamenn eiga ekki að gera. Fræðin nemur hann
í fangelsinu að Litla-Hrauni, glæpaskóla ríkisins.
Það er aðeins eitt sem hann fann að vistinni
á Hrauninu, maturinn mætti vera
betri. Þetta viðhorf fangans
lýsir hroka.
DómstóLL Götunnar
Hvað á að gera í málum ungra afbrotamanna?
„Börnum sem ekki hafa náð lögaldri og
eru flækt í fíkniefnaneyslu þarf að
hjálpa. Það er ekki vænlegt til árangurs
að stinga þeim á litla-Hraun.“
Kristín Einarsdóttir,
á eftirlaunaaldri og hætt að vinna
„Það er skelfilegt að sleppa börnum á
götuna sem komist hafa í kast við lögin
án þess að reyna að veita þeim aðstoð,
til dæmis hjá barnaverndaryfirvöldum.“
Guðlaug Elísa Kristjánsdóttir,
á eftirlaunaaldri og hætt að vinna
„sextán ára gömul eigum við víst að
hafa vit á því að geta alið upp börn og
samkvæmt því ættu krakkar á þeim
aldri að hafa hugmynd um muninn á
réttu og röngu.“
Kristín Sigurðardóttir,
stílisti, 28 ára
„Mér þykir ekki rétt að setja sextán ára
unglinga í fangelsi. fólk sem hefur náð
sextán ára aldri þarf engu að síður að
byrja að axla ábyrgð á eigin lífi með
einhverjum leiðum.“
Jóna Kristín Jónsdóttir,
hárgreiðsludama, 28 ára
sanDkorn
n Hæfileikakeppni fræga fólks-
ins, sem til stóð að hafa sem
sjónvarpsefni á Stöð 2 í vetur,
hefur verið
slegin af.
Keppnin,
sem ganga
átti undir
nafninu
Celebrity
X-Factor,
hafði verið
í undirbún-
ingi fram eftir vori, en eitthvað
var áhugi á keppninni dræmur
á íslenska stjörnuhimninum.
Reyndar hefur því verið velt
upp hversu margar hæfileika-
keppnir íslenskir sjónvarps-
áhorfendur þoli á einum
vetri. Það á nefnilega eftir að
finna náunga í hljómsveit fyrir
Bubba Morthens auk þess sem
fjórðu Nylonskvísunnar verður
leitað.
n Sá kvittur gekk í Bretlandi
fyrr á árinu að til stæði að
skipta Eggerti Magnússyni,
framkvæmdastjóra West Ham,
út fyrir annan ónefndan Ís-
lending.
Jamie Jack-
son, íþrótta-
fréttarit-
ari breska
blaðsins
The Observ-
er, hefur
dvalið hér á
landi til þess
að kanna
málið. Hann hefur komist að
því að sagan var ekki á rökum
reist. Hann fékk hins vegar
viðtal við Björgólf Guðmunds-
son og Eggert Magnússon og
situr sáttur við sinn keip. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem
breska pressan tekur ítarlegt
viðtal við Björgólf.
n Sumarfrí innan raða lögregl-
unnar koma oft ekki vel við
fjölmiðlafólk í leit að svörum.
Á efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra
er til að
mynda ótrú-
lega rólegt
þessa dag-
ana. Helgi
Magnús
Gunnarsson
saksókn-
ari efna-
hagsbrota
er í fríi, það sama á við um
staðgengil hans Björn Þor-
valdsson. Grímur Grímsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn er
sömuleiðis frá vinnu og því eru
fáir eða réttara sagt enginn eft-
ir til að svara spurningum um
efnahagsbrotamál. Sumarið er
tíminn.