Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Síða 22
Föstudagur 10. ágúst 200722 Hin hliðin DV
xxxxxx
HIN HLIÐIN
n Nafn:
„Páll Óskar Hjálmtýsson.“
n atvinna:
„Tónlistarmaður, söngvari, plöstusnúður og lífskúnstner.“
n Hjúskaparstaða:
„Á laflausu.“
n Fjöldi barna:
„Ekkert.“
n áttu gæludýr?
„Pass.“
n Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund vildirðu þá vera og
hvers vegna?
„Porsche af því hann byrjar á P.“
n Hefurðu komist í kast við lögin?
„Ég var handtekinn 1992 fyrir að halda splatter-
myndasýningu í MH. Grunur lék á að myndbrotin
væru á bannlista kvikmyndaeftirlitsins. Myndbrotin
voru gerð upptæk en ég brosti út í annað. Þetta voru
nefnilega bara kópíeríngar af upprunalegu myndbrot-
unum sem ég á ennþá.“
n Borðar þú þorramat?
„Já, ég fíla kjamma og kók á BSÍ.“
n Hefurðu farið í megrun?
„Nei, ég trúi ekki á svoleiðis. Ég trúi á að halda
jafnvægi milli mataræðis og hreyfingar.“
n græturðu yfir minningargreinum um ókunnuga?
„Nei.“
n Hefurðu tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, oft.“
n Lestu blogg?
„Nei, ég forðast það eins og heitan eldinn.
Bloggið hefur misst marks vegna allra slæmu
bloggaranna sem menga internetið.“
n trúirðu á framhaldslíf?
„Já.“
n Er líf á öðrum hnöttum?
„Já, það væri fáránlegt að halda því fram að við
værum ein að þvælast hérna.“
n Kanntu dónabrandara?
„Já, fullt af þeim.“
n Kanntu þjóðsönginn?
„Já, og ég næ meira að segja hæstu tónunum.“
n Kanntu trúarjátninguna?
„Já, ég lærði hana utanbókar þegar ég var lítill í KFUM.“
n spilarðu á hljóðfæri?
„Ef söngur telst hljóðfæri, þá já.“
n styðurðu ríkisstjórnina?
„Nei.“
n Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Jákvæðni að morgni og þakklæti að kvöldi.“
n Hvaða fræga einstakling myndirðu helst vilja hitta og af hverju?
„George Clooney því ég er svo skotinn í honum.“
n Hefurðu eytt peningum í vitleysu – þá hvaða?
„Já, ég hef keypt ýmislegt á eBay sem hefur valdið mér vonbrigð-
um þegar pakkinn loksins kemur til landsins.“
n Heldurðu með einhverju íþróttafélagi?
„Mér liði betur ef þú myndir spyrja mig um Eurovision.“
n Hefurðu ort ljóð?
„Já, textarnir mínir eru ljóð. Stanslaust stuð að eilífu og Allt fyrir
ástina eru fín ljóð.“
n Eru fatafellur að þínu mati listamenn?
„Eins í öllum öðrum brönsum eru atvinnumenn og fúskarar og er
nauðsynlegt að greina þarna á milli. Því miður sinna fæstar fatafellur starfi
sínu að eigin frumkvæði.“
n Eru briddsspilarar að þínu mati íþróttamenn?
„Nei.“
n af hverju stafar mannkyninu mest hætta?
„Miðaldra hvítum karlmönnum með of mikil völd.“
n á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei.“
n stundarðu íþróttir?
„Já, það fyrsta sem ég geri þegar ég vakna er að fara í ræktina.“
n Hefurðu látið spá fyrir þér?
„Já, en ég læt bara bestu vinkonur mínar spá fyrir
mér. Við spáum í spilin einu sinni á ári til að fá
smáyfirsýn.“
Páll Óskar
Hjálmtýsson
tÓnlistarmaður