Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Side 27
DV Helgarblað Föstudagur 10. ágúst 2007 27 lega svalir og góðir! (Hlær.) Nei, við náðum bara réttu blöndunni. Við treystum bara sjálf- um okkur og ef hljómurinn var ekki nógu góð- ur hentum við honum út og sögðum: „Þetta er rusl.“ Það góða við að vera í fjögurra manna hljómsveit þar sem allir hugsuðu mjög líkt var að það var alltaf einhver tilbúinn að segja: „Mér finnst þetta ömurlegt,“ ef eitthvað virk- aði ekki alveg. Þú gætir hins vegar sjálfur sagt: „Sko, þetta virkar næstum alveg. Ég get þetta ennþá.“ Það var alltaf einhver sem gat sagt: „Heyrðu, þetta er rusl.“ Þannig að hvað sem við gerðum var það eitthvað miklu meira en sjálf- hverft og það varð bara að virka. Og svo höfð- um við auðvitað George Matin, ekki gleyma því, sem átti síðasta orðið. Við vorum eins kon- ar yfirmaður. Við vorum eins og fjórhöfða yfir- maður en George var upptökustjórinn okkar og allt sem við gerðum þurfti að standast kröf- ur hans líka. Svo við höfðum fimm ágæt höfuð í öllu sem við gerðum. Það var bara góða efnið sem komst í gegnum sigtið.“ Í heimildarmyndinni Anthology viður- kenndi Ringo að hann hefði lært skák meðan þið tókuð upp Sgt. Pepper vegna þess að hann þurfti að bíða mestan hluta tímans. Finnst þér að þið hafið útilokað hann frá ævintýrinu í stúdíóinu eða gat hann ekki – eða vildi ekki – halda í við ykkur? „Ég veit ekki hvers vegna það var en ég var í dálitlu stuði þegar við gerðum Sgt. Pepper. Ég bjó í London og fylgdist með öllu sem var að gerast. Maður talar um að fara á klúbba, að maður komist ekki út, nú við vorum augljóslega miklu frægari, miklu vinsælli, þá en ég fór samt á allt. Ég fór á tilraunatónleika, avant garde dót, alls konar dót. Þannig að ég var líka fullur orku svo að þegar kom að því að gera plötuna talaði ég um þetta allt við félaga mína (talar hratt og hljómar spenntur) og ég held að strákarnir, sem voru úr úthverfunum, ég var einnhvern veginn á miklu meiri hraða en þeir. Þannig að ég get skilið að ef þetta hefði verið hinsegin og Ringo hefði verið á fullri ferð hefði ég kannski sagt: „Ó, ókei. Nú, hvað viltu að ég geri, maður? Hvernig viltu að ég trommi? Ókei, ég geri það þá!“ Ég held að Ringo hafi ekki tekið jafnmikinn þátt í þessu. Ég held það hafi samt bara verið líkamlegt. Það var ekki út af neinu öðru en því að hann fór ekki að sjá allt það sem ég sá. Að sjá Cornelius Cardew (enskt avant garde raftónskáld) í University of London, fara í Wigmore Hall til að sjá Luciano Berio (ítalskt tilraunatónskáld), kaupa Stockhausen- plötur, ná í skrýtnar bækur – Flann O’Brien... Bara fullt af hlutum, verða fyrir áhrifum frá sumum af vinum mínum í avant garde senunni. Einn náungi, Barry Miles, sem skrifaði síðar ævisögu mína, átti íbúð sem var full af bókum og plötum og öðru dóti og í hvert skipti sem ég fór til hans sagði hann: „Hefurðu heyrt þetta?“ og kom mér á bragðið með eitthvað. Þannig að ég fékk fullt af svona, ég fékk mikinn innblástur. Þannig að ég hef sennilega verið í stuði og þess vegna hefur Ringo fundist: „Sko, allt í lagi (hlátur) þú getur gert þetta.“ Ég meina, ég veit ekki, vegna þess að ég gerði bara það sem ég gerði en sennilega var þetta svona.“ George sagði líka að hann hefði ekki lagt sál sína í plötuna, hún væri enn í Indlandi og honum hefði þótt þetta verða meiri vinna en áður og að hann hefði ekki sama áhuga fyr- ir Bítlunum. Er óhætt að segja í þessu ljósi að Sgt. Pepper hafi fyrst og fremst verið þín plata fyrst George var áhugalaus, Ringo lagði lítið til og John var andvígur konseptplötu? „Ég veit það ekki. Ég byrjaði eiginlega á konsepthugsuninni – veistu? Við kölluðum það samt aldrei konseptplötu, rétt eins og við kölluðum hana aldrei merseytakt; Veistu, þetta eru bara orð. „Þetta er konseptplata.“ Ó, er það? Nei, þetta var hugmynd. Og ég held að þú gætir sagt það sama um nýju plötuna. Memory Almost Full. Þetta er ég að reyna að kveikja neista í sjálfum mér mestallan tím- ann, sem ég held vel að merkja að sé það sem flestar hljómsveitir, tónlistarmenn og lista- menn reyna að gera, reyna að ná til fólks með hugmyndum sínum. En þegar þeir gera það reyna þeir um leið að gæða það lífi. Þannig að konseptdæmið... ég fékk bara þessa hug- mynd að við ættum að láta sem við værum einhver önnur hljómsveit. Þetta var svo ein- falt. Við fengum hugmyndina – eða ég fékk hugmyndina – að Sgt. Pepper og sannfærði svo strákana um hana. Ég sagði: „Hvað ef við gerum þetta allir saman?“ Og þeir sögðu: „Ókei, þetta hljómar spennandi.“ Veistu? En ég þurfti að halda hugmyndinni að þeim. Ég held að það að sundurgreina hana og skoða hver gerði hvað skili engu. Við unnum þessa plötu allir og þetta var galin hugmynd og það var sumar og við vildum allir gera þetta. Fjölmiðlarnir sögðu: „Þeir eru orðnir uppis- kroppa með hugmyndir. Bítlarnir eru orðnir uppiskroppa með hugmyndir. Þeir eru búnir að vera.“ Við vorum samt enn eins og dverg- arnir sjö – dvergarnir fjórir – í námunni að grafa eftir demöntum og sungum: „Hehe. Veistu, við erum ekki búnir að vera.“ Veistu, við vissum hvað við vorum að gera? Við viss- um hvað ætti eftir að koma frá okkur. Svo kom það. BANG! Hásumar í London, dagur eins og í dag, og veistu, maður, það varð allt vitlaust. Við gáfum Sgt. Pepper út á föstudegi og á sunnudegi byrjaði Jimi Hendrix tónleika með Sgt. Pepper. Hann var búinn að læra hana – Jimi Hendrix var búinn að læra hana? Svona maður. Gefist upp. Ekki slæmt. Veistu hvað, þetta var mín hugmynd, en við hrint- um henni allir í framkvæmd og við vorum all- ir hluti af henni.“ Tónleikarnir á Glastonbury 2004 voru meiriháttar endurnýjun á ferli þínum. Hvað flaug í gegnum huga þinn þegar þú varst beð- inn um að spila? Mig hafði lengi langað til að spila á Gla- stonbury af því að hátíðin er engri lík. Þannig að ef maður er í tónlist á annað borð er það nokkuð sem maður verður að hafa í huga að gera. Maður veltir því fyrir sér hvort ekki væri gaman að spila á Glastonbury. Ótrú- lega margir vina minna og svo margir sem ég þekki láta verða af þeirri pílagrímsför. En það var eitthvað við hátíðina sem ég hafði efasemdir um. Kannski var þetta ekki vett- vangurinn fyrir mig. Það sem gerðist var það að fólk sem ég þekkti hafði spilað þarna eitt árið og ég spurði hvernig það hefði verið. Þau sögðu að það hefði verið alveg frábært, þetta væri geggjuð hátíð og einhver sagði: „Veistu hvað, við vorum á heimleið á miðnætti eftir að hafa verið að hlusta á... „ Hver sem það var, ég held að það hafi verið Radiohead, „...og allir sátu í kringum varðelda og sungu Bítla- lög.“ Og eitthvað gerðist innra með mér og ég hugsaði með mér: „Ég get gert það!“ Þannig að ég ákvað bara að ég gæti það vel og að ég ætti að láta verða af því. Og þegar bandið var komið á fullt – við vorum á tónleikaferðalagi um Rússland og nokkra aðra staði í þeim dúr, og við vorum í banastuði. Við fengum tilboð og tókum því. Michael Eavis spurði hvort ég vildi spila á Glastonbury og ég sagði já. Og það var frábært maður, alveg geggjað.“ Þú grættir fullorðna menn – á jákvæðan hátt, auðvitað! Sumir nefna þessa tónleika þína enn sem uppáhaldstónleikaatriðið sitt í öllum heiminum. Hafðir þú ráðgert að gera eitthvað sérstakt eða vissir þú að lögin sjálf myndu ná í gegn? „Já, við ætluðum bara að koma fram á Gla- stonbury. Við völdum lögin að einhverju leyti með tilliti til þess, sérstaklega vegna þess að atriðið var styttra en það sem við erum van- ir að gera. Við völdum einfaldlega lög sem við héldum að myndu ganga. Og svo fórum við bara og höfðum gaman af. Þetta var bara eitt af þessum skiptum, við sögðum við okk- ur sjálfa: „Hvað sem við gerum, verum ekki stífir. Þetta er Glastonbury. Förum á flug með stemningunni.“ Þetta var frábært kvöld, það var æðislegt, og áhorfendur virtust skemmta sér vel. Það var auðvitað rigning en það var eins og að horfa yfir vígvöllinn á Agincourt með öllum þessum fánum og slagorðum. Maður hugsaði: „Geðveikt, fólk hefur náð saman!“ Það var frábært. Mjög upplyftandi.“ Svona að lokum, Bítlarnir gerðu ýmsar tilraunir, bæði í stúdíóinu og utan þess. Þeir gerðu svo miklar tilraunir með tónlistina að það er eins og það sé ekkert eftir sem þið haf- ið ekki þegar reynt. Heldurðu að þið hafið skemmt fyrir öðrum hljómsveitum hvað varð- ar að færa út mörkin í tónlistinni? „Sko, þú veist, eiginlega ekki (hlær). Mað- ur gerir bara það sem maður gerir. Það var tímabil, kannski undir lok áttunda áratug- arins fram í byrjun þess níunda, þegar fólk spurði sig hvað meira væri hægt að gera því búið væri að reyna allt. En maður hugsaði sitt, en núna... Það er alltaf fullt eftir að gera. Það er til fólk sem vottar Bítlunum virðingu sína, eins konar erfingjar Bítlanna, og enn aðrir sem kasta því algerlega fyrir róða og fara í allt aðra átt. Þannig að ég held ekki að við höfum tæmt alla möguleika á að gera tilraun- ir með eitthvað nýtt, þeir sem vilja gera það verða bara að finna upp á því sjálfir, það er allt og sumt. Og hey, hvað varðar nýju plöt- una mína, þá varð ég sjálfur að finna upp á því líka. Hið sama gildir um alla hina. En það er gamanið, það er spennan; maður verður að finna það. Maður getur ekki bara setið og beðið eftir því að það komi til manns. Ef mað- ur er í þessu á annað borð verður maður að finna upp á einhverju sem er spennandi. Það er allt þarna. Málið er bara að finna það.“ Þýtt og endursagt nýtt viðtal tímaritsins Clash sem kom út á dögunum. McCartney og Lennon Það var bara góða efnið sem komst í gegnum sigtið, segir Paul þegar hann hugsar til baka og um samvinnu Bítlanna. Langur ferill – mörg atvikPaul hefur sérstöðu í mörgu. Hann hefur átt mikilli velgengni að fagna og hefur á löngum ferli reynt margt, bæði í tónlist og einkalífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.