Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Side 41
Agnar Bogason, ritstjóri Mánudags-
blaðsins, var um langt árabil einn
af þekktustu borgurum Reykjavík-
ur. Hann var sonur Boga Ólafssonar
menntaskólakennara og k.h., Gunn-
hildar Jónsdóttur frá Akranesi. Agn-
ar ólst fyrst upp á Sólvallagötunni
þar sem foreldrar hans bjuggu á
númer 15, en Árni í Múla var þá á
númer 12 og þeir Jón Múli því æsku-
vinir. Bogi byggði síðan mikið og
reisulegt steinhús á horni Tjarnar-
götu og Skothúsvegs, Tjarnargötu
39, þar sem fjölskyldan og fjölskylda
Agnars átti síðan heima.
Agnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1940.
Hann sigldi til Bandaríkjanna og
sparaði sér fargjaldið með því að
ráða sig sem léttadrengur á Goða-
foss. Hann hóf undirbúningsnám í
tannlækningum við Southern Met-
hodist University í Dallas í Texas,
en hætti því námi, kom heim með
fjöldann allan af nýjum jazzplötum,
en hóf síðan nám og lauk prófum í
fjölmiðlafræði og stjórnmálafræði í
Chicago 1946. Mun hann vera fyrsti
Íslendingurinn sem lauk háskóla-
prófum í fjölmiðlafræði.
Agnar stofnaði Mánudagsblað-
ið 1947 og starfrækti það meðan
honum entust heilsa og starfskraft-
ar. Með Mánudagsblaðinu braut
hann blað í sögu íslenskrar blaða-
mennsku. Blaðið var oft flokkað
sem gul pressa en seldist yfirleitt vel
og fletti oft ofan af ýmsum spilling-
armálum þess tíma.
Agnar var bráðgreindur, vel
menntaður, áhugamaður um Ís-
lendingasögur og íslenskt mál, rit-
fær, drátthagur frá því á unglingsár-
unum og mikill hestamaður. Hann
var manna skemmtilegastur, orð-
heppinn og hrókur alls fagnaðar á
góðra vina fundum og sat löngum
í síðdegiskaffi á Hótel Borg, ásamt
fleiri fastagestum þar, s.s. Albert
Guðmundssyni, Hauki Óskarssyni
rakara og Þorkeli Valdimarssyni
(Kela Valda) svo aðeins örfáir séu
nefndir.
Agnar var kvæntur Jóhönnu Páls-
dóttur sem var stoð hans og stytta
við útgáfu blaðsins og eignuðust
þau þrjá syni, Boga, Pál og Sturlu.
Bogi er nú einn þekktasti flugmaður
landsins, ekki síst fyrir björgunaraf-
rek sín frá því hann var þyrluflug-
maður hjá Landhelgisgæslunni.
Agnar veiktist hastarlega 1973
og missti þá mátt að hluta en hélt
þó áfram að gefa út Mánudagsblað-
ið. Heilsu hans hrakaði síðan í lok
áttunda áratugarins uns hann lést
haustið 1983, langt fyrir aldur fram.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík 10.2.
1955. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1975, BS-prófi í stærðfræði frá HÍ
1978, MSc-prófi í hagfræði frá Lond-
on School of Economics 1980 og
hlaut réttindi til verðbréfamiðlunar
1998.
Ólafur starfaði hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum 1985-87, var efnahags-
ráðgjafi ríkisstjórnar Þorsteins Páls-
sonar 1987-88, stýrði alþjóðasviði
Seðlabankans 1991-2001 og var að-
alsamningamaður ríkisins um lán-
tökur erlendis. Hann sat í stjórn Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins á árunum
2002-2003 og hefur verið lektor við
Háskólann í Reykjavík frá 2003.
Ólafur kenndi við Háskóla Ís-
lands 1981-85, var dálkahöfundur
um efnahagsmál á Morgunblaðinu
1988-89, sat í samkeppnisráði 1993-
94 og var formaður Krónunefndar
Viðskiptaráðs Íslands 2005-2006.
Ólafur hefur setið í orðanefnd
hagfræðinga, í stjórn Listvinafélags
Hallgrímskirkju og var formaður
stjórnar Stofnunar Sigurðar Nordals.
Fjölskylda
Sonur Ólafs og fyrrum eiginkonu
hans, Daggar Pálsdóttur, hrl. og
varaþm., er Páll Ágúst, f. 26.2. 1983,
meistaranemi í lögfræði við HR.
Bræður Ólafs eru Jóhann, f. 12.3.
1947, fyrrv. forstöðumaður víxla-
deildar Iðnaðarbankans; Örn, f. 7.8.
1956, flugmaður hjá Atlanta.
Foreldrar Ólafs: Ísleifur A. Páls-
son, f. 27.2. 1922, d. 14.12. 1996,
skrifstofustjóri Skreiðarsamlagsins
og framkvæmdastjóri eigin fyrirtæk-
is, og k.h. (skildu) Ágústa Jóhanns-
dóttir, f. 10.12. 1922, húsmóðir.
Ætt
Ísleifur var sonur Páls, kaup-
manns í Vestmannaeyjum Odd-
geirssonar, pr. á Ofanleiti, bróð-
ur Margrétar Andreu, móður Árna
Pálssonar prófessors. Séra Odd-
geir var sonur Þórðar, sýslumanns
og alþm. Guðmundssonar. Móð-
ir Þórðar var Sigríður Helgadóttir,
systir Árna biskups í Görðum. Móð-
ir Sigríðar var Guðrún Árnadóttir,
pr. í Gufudal Ólafssonar, ættföður
Eyrarættar Jónssonar. Móðir Odd-
geirs var Jóhanna Andrea Knudsen,
systir Kirstinar, móður Sveinbjörns
Sveinsbjörnssonar tónskálds og höf-
undar þjóðsöngs Íslendinga. Önnur
systir Jóhönnu var Kristjana, þeirrar
er Jónas Hallgrímsson orti til ljóð-
ið Söknuður. Jóhanna Andrea var
dóttir Lauritz Michaels kaupmanns,
ættföður Knudsensættar. Móð-
ir Páls var Anna Guðmundsdótt-
ir, prófasts í Arnarbæli, bróður séra
Ólafs, afa Alexanders Jóhannesson-
ar háskólarektors. Séra Guðmund-
ur var sonur Einars, kaupmanns í
Reykjavík, föðurbróður Jóns forseta
og Jens rektors, langafa Jóhannes-
ar Nordals. Systir séra Guðmundar
var Ingibjörg, eiginkona Jóns for-
seta. Móðir Önnu var Guðrún, dótt-
ir Péturs, b. á Helgavatni Hjaltested,
hálfbróður Magnúsar, föður Björns
M. Olsens, fyrsta rektors Háskóla
Íslands. Móðir Guðrúnar var Guð-
ríður Magnúsdóttir, pr. í Steinnesi
Árnasonar, biskups á Hólum, Þórar-
inssonar. Móðir Guðríðar var Anna,
systir Kristjáns, langafa Þórarins á
Tjörn, föður Kristjáns Eldjárns for-
seta. Anna var einnig systir Hall-
gríms, föður Jónasar skálds. Anna
var dóttir Þorsteins, pr. á Stærra-Ár-
skógi Hallgrímssonar og Jórunnar
Lárusdóttur Scheving klausturhald-
ara Hannessonar sýslumanns. Móð-
ir Lárusar var Jórunn Steinsdóttir,
biskups á Hólum Jónssonar.
Móðir Ísleifs var Matthildur, dóttir
Ísleifs, b. á Kirkjubæ í Vestmannaeyj-
um Guðnasonar, b. í Hallgeirseyjar-
hjáleigu Guðnasonar, b. á Arnarhóli
Ögmundssonar. Móðir Guðna á Arn-
arhóli var Guðrún Þorsteinsdóttir,
systir Þorvalds, afa Guðnýjar, ömmu
Halldórs Laxness. Móðir Matthildar
var Sigurlaug, dóttir Guðnýjar, syst-
ur Páls, forföður Harðar forstjóra
Einarssonar, föður hagfræðinganna
Yngva, Magnúsar og Páls. Guðný var
dóttir Páls, prófasts og þjóðfundar-
manns í Hörgsdal Pálssonar, af ætt
Síðupresta.
Ágústa er dóttir Jóhanns Þ., alþm.
og ráðherra, Jósefssonar, skipstjóra
í Vestmannaeyjum, launsonar séra
Jóns prófasts í Reykholti Þorvarðar-
sonar, pr. í Holti undir Eyjafjöllum,
bróður Friðriks, langafa Ólafs Hjart-
ar, afa Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands. Bróðir séra Jóns var
Skúli alþm., langafi Ólafs Skúlasonar
biskups. Móðir Jóhanns Þ. var Guð-
rún Þorkelsdóttir. Móðurætt Guð-
rúnar verður rakin í Vestmannaeyj-
um allar götur aftur á miðja 18. öld
svo langt sem kirkjubækur ná.
Móðir Ágústu var Magnea Dag-
mar Þórðardóttir, sjómanns í Reykja-
vík Þórðarsonar. Móðir Þórðar var
Steinunn Stefánsdóttir, b. í Vestri-
Kirkjubæ, bróður Guðmundar á
Keldum, langafa Jóns Helgasonar,
prófessors og skálds. Guðmundur
var einnig langafi Lýðs, langafa Þórð-
ar Friðjónssonar, forstjóra Kauphall-
arinnar. Stefán var sonur Brynjólfs
í Vestri-Kirkjubæ Stefánssonar, b. í
Árbæ, bróður Ólafs, b. á Fossi, lang-
afa Odds, hreppstjóra á Sámsstöð-
um, langafa Davíðs Oddssonar, for-
manns bankastjórnar Seðlabanka
Íslands. Stefán var sonur Bjarna,
ættföður Víkingslækjarættar Hall-
dórssonar. Móðir Magneu var Ver-
ónika, dóttir Einars, b. á Skrauthól-
um Magnússonar. Móðir Veróniku
var Guðrún Jónsdóttir, b. á Miðengi
Erlendssonar og Ingibjargar Sæ-
mundsdóttur, systur Gróu, ömmu
Einars, ráðherra Íslands og hæsta-
réttardómara Arnórssonar, föður
Loga hæstaréttardómara.
DV Ættfræði föstudagur 10. ágúst 2007 41
Merkir Íslendingar:
MaÐUr VikUnnar
Ólafur Ísleifsson
lektor við Háskólann í Reykjavík
Agnar Bogason
f. 10. ágúst 1921, d. 26. september 1983
Ólafur Ísleifsson, hagfræðing-
ur og lektor við Háskólann í
Reykjavík, hefur löngum verið
í fréttum og tekið þátt í umfjöll-
un um efnahagslíf og fjármál
þjóðarinnar. Hann hefur ekki
síst verið í sviðsljósinu nú síð-
ustu daga vegna gagnrýni Den
Danske Bank og fleiri aðila á
íslenska útrás og efnahags-
ástand.
DV mynd Ásgeir