Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2007, Page 48
föstudagur 10. ágúst 200748 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella og Ása Ottesen. Netfang: tiska@dv.is
Tíska
Stórglæsileg að vanda
Claire danes er elegant pía sem á stóran hóp af trítilóðum aðdáendum. Eftir að hafa slegið allrækilega í gegn í
þáttunum My so called life hefur Claire leikið í hinum ýmsu myndum. stíllinn hennar er vel úthugsaður sem og
myndir og annað sem hún tekur sér fyrir hendur.
Heimasíðu-
kóngurinn
Nafn? „guðmundur Óskar
guðmundsson.“
Hvað ert þú að gera? „Þessa
dagana er ég að njóta þess sem
eftir er af sumrinu í atvinnuleysi
mínu, spila tónlist og vinna að
plötu með hljómsveitinni minni,
Hjaltalín.“
Hverju mælir þú með? „Ég
mæli eindregið með uppáhalds-
kaffihúsinu mínu, tíu dropum
sem er til húsa á Laugavegi 27.
Ég fæ mér alltaf samloku með
öllu og kaffi á meðan ég les
blöðin eða vinn í skjölum.“
Í Reykjavík er gott að vera
útaf því að? „ástæðurnar eru
fjölmargar, en til að nefna það
helsta þá má nefna
menningarlífið, næturlífið og
allt skemmtilega fólkið.“
Heimasíða vikunnar?
„alluc.org. Bráðsniðug síða sem
inniheldur meðal annars
ógrynni af bíómyndum,
sjónvarpsþáttum og
heimildarmyndum til áhorfs án
endurgjalds. af fenginni reynslu
mæli ég með að fólk láti síðuna
eiga sig í miðjum prófum.“
nennir ekki
tískusenunni
rachel Bilson er svolítið undir
smásjánni þessa dagana þar
sem hún hefur verið frekar
drusluleg til fara undanfarið.
Vanalega er hún vel klædd og í
samræmi við nýjustu tísku-
straumana. Liggur eitthvað und-
ir eða er hún bara ekki í stuði?
dressið er svo sem allt í lagi,
vantar kannski bara smáglingur
en alveg róleg á „flippflopper“-
unum.
Allir regnbogans litir
Nú fer hver að verða síðastur til að vera sumarlegur og það í öllum regnbogans litum. Njótið þess að klæða ykkur
upp í hinum og þessum litum. Það er nóg um að vera enda tilefni til að fagna.
JosHua er svo Heppinn
diane Kruger er rosa flott gella og þá er sama hvar hún er og hvert
hún fer. Hún er svo töff og á töff mann. Það er sjarmatröllið og
glæsimennið Joshua Jackson sem er svo lukkulegur að fá að
faðma og kyssa þessa þokkadís. flott og fengilegt par, en þá sér-
staklega vinkona okkar, hún Kruger.
Hér eru þau
saman á
pólóleik, vá,
spennandi!
sæt á
einkasýningu
hjá giorgio
armani.
HHH
KronKron, 5.900 kr.
KronKron, 8.900 kr.
glamúr, 1.750 kr.
glamúr, 840 kr.
glamúr, 1.000 kr.
rokk og rósir, 2.850 kr.
Nakti apinn, 4.900 kr.
trílógía, 5.200 kr.
trílógía, 26.400.-