Árbók skálda - 01.12.1956, Síða 18
Jóhannes Helgi:
Nikolja
Það var tekið að rökkva.
Ég hafði reikað góða stund um kirkjugarðinn og stefndi á hliðið. Það var
þá sem ég rakst á leiðið í suðausturhorni garðsins. Það var á engan hátt
kynleg tilviljun að mér varð starsýnt á það. Allir sem þarna áttu leið hlutu
að veita því athygli.
Trékrossinn, umvafinn arfa og rusli, fúinn og morknaður orðinn af vind-
um loftsins og vatni himinsins, var að falli kominn ofan í rotnaðan blómsveig
með upplituðu slitri af silkiborða, sem einhverntíma fyrir löngu hafði verið
blár.
Leiðið gat ekki borið því Ijósara vitni að enginn dauðlegur maður hirti
um beinin sem þarna hvíldu. Og nafnið, það eina sem virtist vera eftir af
þeim dauða, var svo óskýrt orðið og máð, að eftir nokkur ár verður það líka
horfið með öllu.
Það virðist vera sameiginleg ástríða með öllum, sem reika um kirkjugarða,
að mega ekki reka augun í illlæsilega grafskrift án þess að hefja þegar í stað
glímu við máða stafina. Og þolinmæði manna við þessa iðju eru lítil tak-
mörk sett; jafnvel bráðlyndustu menn sýna í þessu efni þolinmæði, sem
jaðrar við að vera yfirnáttúruleg. Stundum er engu líkara en lífshamingja
kíkjandans sé fólgin í nafni hins dauða. Og eins fór fyrir mér. Ég gleymdi
brátt stund og stað og byrjaði að stauta mig fram úr stöfunum, fyrst í stað
án nokkurs árangurs, en ég gafst ekki upp. Ég gerði hverja tilraunina á fæt-
ur annarri, þolinmóður og þrautseigur eins og allir kíkjendur á undan mér.
Loks uppskar ég laun erfiðis míns — og las
NIKOLJA JÓNSSON MATSVEINN
Mér varð ónotalega við, líkt og ég hefði verið staðinn að ámælisverðu at-
hæfi, því að nafnið hljómaði kunnuglega •' eyrum mínum, þótt ég kæmi því
ekki strax fyrir mig. En svo rann allt upp fyrir mér í einni svipan og ónota-
tilfinningin jókst. Ég vissi, að það var aðeins mannleg forvitni — ef til vill
blandin einhverjum öðrum óskýranlegum kenndum, sem þó eru öllum mönn-
um sameiginlegar — sem rak mig til að leggja slíkt kapp í að lesa úr graí-
skriftinni. Samt gat ég ekki varizt þeirri hugsun, ag ég væri hér kominn á
vit annarlegra hluta. Hér gat ekki verið um nema einn Nikolja að ræða. Mér
hafði ekki komið hann í hug áratugum saman; ég hafði sannast að segja
gleymt honum fyrir löngu, en nú þegar ég rakst svo óvænt á þetta sjaldgæfa