Árbók skálda - 01.12.1956, Síða 20

Árbók skálda - 01.12.1956, Síða 20
18 kctssa í bás í fjósi undir Snæfellsjökli annó 1880. Hundamundi sagði mér það. — Hann var viðstaddur mitt fyrsta kapphlaup við milljónirnar. — Þá sigraði ég. — Við sigrum allir fyrst, síðan töpum við, sumir alltaf — eins og ég." Matsveinninn stútaði sig aftur á flöskunni og leit flýrulega á mig. Síðan leit hann út í buskann og augu hans Ijómuðu eins og hann sæi þar eitthvað guðdómlegt. Og það kom einhver ókyrrð í lappimar á honum eins og hann langaði til að fljúga. „Hann var þarna í fjósinu þessa Jónsmessunótt," hélt hann áfram, „uppi á mæninum og hafði ágætt útsýni yfir upphaf lífs míns og fyrstu snertingu móður minnar við pendúl sem allt snýst um á himni og jörð." Augu matsveinsins lýstu af andagiftinni sem fylgir íslenzkum Svartadauða. „Það sprakk gúmmí, sérú. Ég er sígilt dæmi um hvað hefst uppúr svona fikti í meinum." „Já," sagði ég. Matsveinninn ropaði löngum ropa, veifaði síðan flöskunni og hrópaði há- stöfum: „Hæ, hæ Óli fiðla!" Tilvonandi yfirmaður minn breiddi út faðminn og þusti burt á fund Óla fiðlu, en ég skundaði upp á Hótel Hjálpræðishersins eftir dótinu mínu. Að hálftíma liðnum var óg aftur kominn niður á bryggju með aleigu mína í sængurveri — bleiku. Ég heyri skip flauta; það er Thule, skipið mitt, hundgamall flutningakláf- ur, sem nú hefur verið dubbaður upp til að fara á síld. Ég hika andartak meðan ég er að velta því fyrir mér, hvort svona skip muni geta flotið, það ar svo ólíkt þeim skipum sem ég sá á póstkortum í sveitinni. Síðan staulast ég um borð, og meðan ég er að bauka við sængurverið verð ég var við, að það horfir kona á mig úr brúarglugganum, og ég get ekki betur séð en hún hafi skemmtun af vandræðaskap mínum og klæðaburði. Ég virði fyrir mér sauðskinnsskóna, sem voru síðasta verk móður minnar heitinnar, margþæfða ullarsokkana og heimatilbúnu brækurnar, lít síðan aftur á konuna, roðna af blygðun og skunda aftur eftir dekkinu með sængurverið. É'g er nærri dottinn í fuminu og konan hlær í brúarglugganum. Ég fæ kökk í hálsinn, en þríf aftur til sængurversins til að halda áfram för minni. Ég hef ekki stigið nema fáein skref, er ég hrekk við — hörfa hratt, og blygðun mín hverfur skyndilega fyrir öðrum sterkari geðhrifum. Út um hurð aftan til á skipinu hendist beinagrind skrýdd stromphúfu og svuntu. Allir angar eru á lofti, og þessi stormsveipur í mannslíki stefnir á mig hraðbyri gegnum rökkrið: framrétt hönd, brennivínsblautar varir og óða- got í hverjum lim. Ég kenni þar Nikolja matsvein, legg frá mér sængurverið og tek í snatri ofan húfuna að sveitamannasið — og bíð. En það varð ekkert úr venjuleg- um kveðjum. Orð matsveinsins steypa stömpum út í veður og vind eins og útvarpstruflun, og tennurnar úr honum, báðir gómarnir, gusast á dekkið. Og áður en ég næ andanum hefur hann fleygt sér á fjóra fætur til að hand- sama þetta ómissandi verkfæri úr andliti sínu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Árbók skálda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.