Árbók skálda - 01.12.1956, Page 25

Árbók skálda - 01.12.1956, Page 25
23 Ljósi hártoppurinn upp úr hnakka Hlölla dillar íjörlega. „Ég? Það er ekk- ert í veginum með mig; það er vélin, hún vill ekki trítla með." „Ha?" Skipstjórinn opnaði munninn betur, en lokaði honum svo snögglega, snerist á hæl og skundaði upp í brú til konu sinnar. Hann var þó ekki hættur við eftirlitið, því uppi í brúnni lagðist hann á gægjur, þrýsti andlitinu upp að brúarglugganum, látandi öllum illum látum á meðan, kreppandi hnefann og skælandi sig framan í mótoristann. Þá kvað skyndilega við vélagnýr og nef skipstjórans varð flatt á rúðunni. Mótoristinn hneigði sig hirðmannlega í áttina til skipstjórans og konu hans, fleygði sér síðan með sígarettustubb ofan á herpinótina. Ég lagði frá mér skolpfötuna og klifraði upp á bátadekkið til hans, því hann var alltaf fús til að segja sögur, allar af sjálfum sér. Og hvílíkar sögur gat hann ekki sagt manni þessi þrítugi æfintýramaður, sögur sem áttu fyrir vettvang næstum öll lönd jarðkringlunnar. Einu sinni lagði hann upp frá Bombay með ávexti og virðulegt föruneyti á fund Yoga nokkurs í þorpi þar hjá og fékk blessun að launum, og þust hafði hann yfir sólbakaða sanda Egyp.talands til að heilsa upp á píramída Kúfu. Hann var hreinasta gullnáma, óþrjótandi náma af skemmtilegri lýgi. Sá heimssögulegi atburður var ekki til, þar sem hann hafði ekki komið eitthvað við sögu, það afrek ekki verið unnið í friði eða stríði, að hann væri þar ekki fremstur í flokki vaskra drengja. Hann var með í pólför Scotts 1912 og viðstaddur krýningu Georgs V. 1911, gott ef hann léi ekki kór- ónuna á hinn ágæta kóng með eigin hendi. „Hvernig var það á Súrabæja eða Tokkópillu?" spyr ég. Mótoristinn blæs frá sér bláum reykjarstrók og toppurinn dillar, bjartur sem platína í sólskininu. En það er einhvern veginn ekki hægt að endursegja sög- urnar hans Hlölla. Þessi stórbeinótti maður með ungbarnsásjónuna talaði líka með andlitinu, höndunum, öllum fingrunum — jafnvel með toppnum líka. En þegar hann byrjar að segja frá, þá er ég ekki lengur skítugur hjálpar- kokkur á herpinót. Ég er prúðbúinn kavaler á hvítum stuttbuxum með sól- hjálm á höfði í fylgd með Hlölla um götur Valparæsó á leið til húss nokkurs við ströndina, þar sem eru pálmar, safírblár sjór og fallegar brúnar stúlkur, klæddar aðeins í þetta eina dásamlega laufblað eins og Eva . . . „Fíra bátunuml I ! " Það er eins og blásið hafi verið í herlúður. Skipið nemur staðar í freyðandi röst. Skipshöfnin bregður skjótt við og bátarnir skella með gusugang í hafið. Skipsmenn hlaupa fyrir borð, ofan í bátana, hver maður á sinn stað, og niður á dekkið hlunkast nú Grímsi eins og loftsteinn af himnum ofan, gustmikill og knálegur, klæddur skinnskreyttri úlpu og með kúrekastígvél skrautleg á fót- unum, konu sinni til heiðurs. Nú á að gera stóra fígúru, því það er tru sjo- manna að fyrsta kastið á veiðunum spegli í smækkaðri mynd veiðiárangur sumarsins í heild. Og þetta var skemmtilegur dagur. Kona Grímsa stóð á brúar- vængnum með kíki í hendi. Hún þekkir aðeins af spurn hvernig síld sé veidd, en hún hefur heyrt að maður sinn sé mikill bassi, og nú er tilhlökkunin slík, að það er eins og hún viti ekki í hvora löppina hún eigi að stíga. Andlit hennar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.