Árbók skálda - 01.12.1956, Page 44

Árbók skálda - 01.12.1956, Page 44
42 Mér fannst þessi gamli skrækróma maður satt að segja hlálegur, ef ekki beinlínis aumkunarverður; og nú bjóst ég við, að mannfjöldinn myndi hlæja í kór. En þar brást mér spádómsgáfan. Skemmst er frá að segja, að þeir sem næstir mér stóðu, þeirra á meðal verkamaðurinn í samfestingnum, veittust nú allir að mér í senn, gripu mig höndum, kórsungu syndir mínar við þjóð- félagið, alvöruleysi mitt, heimsku mína og skilningsleysi gagnvart öldinni, og sekt mína sem ég hefði ekki þorað að mótmæla. Og þeir lyftu mér upp, er fremstir stóðu. Ég var nauðugur borinn á háhesti eins og sigurhetja. En það var ekki farið með mig sem sigurvegara að öðru leyti. Múgurinn vék iil hliðar, svo menn kæmust með mig í gegn, þangað sem ég átti að fara. — Um miðja nótt, nánar tiltekið skömmu eftir miðnætti, var ég dreginn fyrir lög og dóm. Aldrei áður í sögu þessa bæjarfélags hafði réttur verið settur um hánótt. Nú lá mikið við. Ég var leiddur fyrir aldurhnigna menn í dökk- um kuflum og með silfurgráar hárkollur. Til beggja handa sátu virðulegir borgarar; sumir höfðu þegar letrað nafn sitt stórum stöfum í sögu mann- kynsins. Það var kviðdómurinn. En engan sá ég lengur úr mergð þeirra, sem staðið höfðu á torginu. Þeim hafði ekki verið hleypt inn. Þeir höfðu afhent mig húsráðendum, síðan horfið á brott og farið heim að sofa. Það er nokkuð kindugt að sjá yður hér, sagði dómarinn og glotti niður í púltið. Já, þetta er allt byggt á misskilningi, sagði ég. Eiginlega skil ég ekki, hvernig þetta hefur farið svona. Nei, það er ekki von, sagði hann og hélt áfram að glotta. Þessir menn sem komu með mig hingað, þeir eru í rauninni vinir mínir og samherjar, sagði ég. Þeir meina ekkert með þessu. Þeir — Þeir hafa samt komið með kæru á yður, þessir — vinir yðar, sagði hann og leit nú á mig í fyrsta sinn; glottið líkt sigurbrosi. Þeir segja, að þóir misnotið aðstöðu yðar til að spotta Karl Marx. Niðurbældur hlátur kviðdómenda; enginn kórhlátur meir. Æjá, sagði ég. Grín hlýtur að vera meinlaust, einkum lélegt grín. Marx- isminn stendur undir sínu, hvað sem ég kann að segja. Þér teljið yður semsagt marxista? spurði dómarinn. Já, svaraði ég. Dómarinn þagði um stund, leit nú aftur niður í borðplötuna glottandi, fitl- aði við skjöl og var hinn rólegasti. Svo sagði hann: Það vill nú svo til, að það hefur ekki enn verið gerð bylting í þessu landi. Þér verðið því aldrei strangt dæmdur fyrir að hafa spaugað með Marx karlinn. Öllu heldur: ég sýkna yður af þeirri kæru. En-i, vinir yðar hafa nú einusinni komið með yður hing- að, og mér finnst óþarfi að menn fari fýluför um hánótt, hvort heldur það eruð þér eða aðrir. Ég leyfi mér því að ákæra yður sjálfur, hérmeð, af hálfu Hins Opinbera, þess valds sem enn er ráðandi í frjálsu þjóðfélagi. Fyrir hvað? spurði ég. Ja, við getum sagt: fyrir það, sem þér hafið þegar játað: að þér eruð bylt- ingarsinni. Ósamstilltur hlátur á kviðdómendabekkjunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.