Árbók skálda - 01.12.1956, Síða 58

Árbók skálda - 01.12.1956, Síða 58
56 Hctnn leiðir hann upp stigann og gamla konan, bakarinn og eiginkonan víkja til hliðar. Bakarinn segir við konurnar: Merkilegt — mig dreymdi alveg fyrir þessu í nótt. Og þau eru komin upp í stofuna með afbrotamanninn, og enn er útvarps- maðurinn að þylja drýldnar spurningar eins og ekkert hafi í skorizt — og bækurnar á rúi og stúi. Unglingurinn reynir að bera sig mannalega, bölvar og glottir, en það fylgir engin sannfæring ragninu, og hann þagnar. En nú færist eiginmaðurinn aftur í aukana þegar hann er kominn upp til sín. Hann ber hiklaust þjófnað upp ó piltinn, heldur yfir honum þrumandi ræðu og heimtar, að hann meðgangi sekt sína. En strákurinn þrjózkast við: þú getur ekkert sannað — sannaðu það. Loks hrópar frúin: Hringdu í lögregluna maður. Það skiptir engum togum, að eiginmaðurinn er búinn að hringja í lögregl- una. Hann kallar í símann: Er það lögreglan — lögreglan — fljótt — hér er grunsamlegur maður — mörgu verið stolið — já fljótt ... Ákafinn var svo mikill að hann hafði alveg gleymt að segja fyrst, hvar þetta væri, þangdð til lögreglan gat komizt að til að spyrja hann. En í þeim svifum fara konurnar að hrópa hver í kapp við aðra: Hann henti einhverju þarna undir — hann henti einhverju undir dívaninn. Bakarinn beygir sig stynjandi niður og kemur fram með lyklakippu. Gamla konan kannast óðar við þá. — Þetta eru lyklarnir mínir, segir hún, ég geymi þá í kápuvasanum í for- stofunni. — Sönnunargagnið, sönnunargagnið, hrópar eiginmaðurinn og er nú orð- inn svo ákafur, að hann ræður sér varla. Hann veður að piltinum, steytir framan í hann hnefa og hrópar: þjófur — þjófur — nú loksins hef ég hand- samað þig. Þarna loks var þjófurinn fundinn, sem öllu hafði stolið frá þeim, smáu og stóru. Og eiginmaðurinn minntist nú ekki aðeins svarta náttkjólsins, hringsins með græna safírsteininum og gullarmbandsins, heldur ótal hluta annarra sem bæði hann og kona hans höfðu saknað. Það var engu líkara en að þessi bólugrafni innbrotsþjófur hefði verið út- setinn með að stela helzt því sem þeim var mest eftirsjá í og hafði persónulegt gildi fyrir þau: smáhlutir, tryggðapantar og jafnvel það sem þau vissu ekki sjálf hvað var. Ofsinn og sigurvíman höfðu svo gagntekið eiginmanninn, að þegar lögreglan kom gat hann ekki annað en bent og hrópað: þama — þarna er þjófurinn. Pilturinn sýndi engan mótþróa og lögregluþjónamir leiddu hann á milli sín út í jeppann. Þeir báðu eiginmanninn að koma niður á stöð til að gefa skýrslu. Eiginmaðurinn fór í vetrarfrakka og frúin kom með trefil. — Þú verður ekki lengi, sagði hún líkt og hún væri hrædd við að vera andartak vemdarlaus og skildi nú fyrst til fulls, hve mikið skjól og hlíf maður hennar væri. — Nei, góða, ég skal vera fljótur, sagði eiginmaðurinn og fann líka, að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Árbók skálda

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.