Árbók skálda - 01.12.1956, Side 78

Árbók skálda - 01.12.1956, Side 78
76 En að morgni reistu úr rekkju og gekkst keikur fyrir auglit húseigandans, náttúrulaus maður beilagur. Þau undur gerðust um jólin, að tvö börn komu að austan yfir fjall og gistu höfuðborgina. Þau komu seint um kvöld og var smyglað inn í litla íbúð í húsi óbyrjunnar. Og dýrðlegur fagnaður upphófst og var fólginn í því að horfa þögul á sofandi börn. Nokkur dægur liðu í vímu, en þá kvað við hlátur barns. Húseigandinn kom og heimtaði skýringu og talaði um rofinn samning, en afsökun þín var að engu höfð. Hjón með börn í eftirdragi, fólk með almennar hvatir, — hvílík firra. Annað hvort út, eða burt með börnin. Þú leizt á konu þína og stofan var björt og hlý og vistleg. Samt sagði hún: — Við verðum að fara. — Hvert? spurðir þú snöggt. — Við verðum að fá okkur annað húsnæði. Við getum farið austur til pabba og mömmu á meðan. En þú varst harður sem tinna. Þú varst orðinn maður hinnar köldu skyn- semi. Þú sagðir: — Það er varla rúm fyrir börnin fyrir austan, hvað þá heldur okkur í ofan- álag. Það græðir enginn á því að við förum að flytja til gömlu hjónanna. Það er víst nóg að biðja þau fyrir drengina. Svo getum við séð til í vor. Og þú bjóst böm þín í kuldann og labbair með þau út í sortann og komst þeim í bíl, sem fer yfir fjall. Þau sátu við hlið þér eins og brúður, dúðuð í treflum, og strókur stóð úr vitum þeirra, hélugrár. Þú varst að bera börn þín út. Hver var að kalla? Þú vaknaðir að morgni og það var myrkur úti og regnið streymdi niður og það var hrollur í þér, því að klukkan var aðeins sex. Einhversstaðar langt í burtu heyrðirðu langdreginn, ráman són, og þú læddist að glugganum og sviptir tjaldinu frá, en hvað var það sem þú sást? Þú þrýstir fölu andliti að rakri rúðu og starðir út í geigvænlegt myrkrið, þar sem svartir fuglar svifu fram og aftur og blökuðu blóðtypptum vængjum. Þú hvarfst frá glugganum og stuna brauzt yfir varir þínar, og hvenær skyldi nú daga eftir þessa löngu, löngu miðsvetrarnótt. Það seig á þig mók þar til morgunskíman litaði súðina kuldagráa. Þá reistu á fætur og leizt út á nýjan leik, og einmana sálir ráfuðu í bæinn, því götumar vaka þó húsin sofi. Handan vegarins stóðu víðitré, sem teygðu granna arma í loft upp og veifuðu til þín, og þú veifaðir á móti. Birkikrækla lamdi mjóum fingrum gráan stein. Gamall maður haltraði upp brekkuna og stúlka tifaði á stöðul, en hvergi sást barn á stjái, hvergi ungbarn á vappi. Hvenær skyldi ég næst sjá börn mín? Þú varpaðir spurningunni út í svarr- bláan kólgugeim og bjóst ekki við svari, því að rismálastundin er hljóð og dauð, en þá kvað við org í sortanum, og svartur djöfull hrafni líkur stefndi með ofsahraða beint á andlit þér og æpti hásum rómi hreimsfræg orð:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Árbók skálda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.