Árbók skálda - 01.12.1956, Side 100

Árbók skálda - 01.12.1956, Side 100
98 Svefnhúsdymar voru að lokast þegar hann vaknaði með öndina í hálsinum og ópið ekki dáið út í munni hans, hljóðið hlaut ennþá að bæra loftið í grá- tjölduðu herberginu. Ný klukka tifaði knálega á náttborðinu og hjá henni lá umslag. Tímóteus reif það upp, og í því var tíu skildinga seðill og spjald. „Tíu ára gamall," stóð þar, „hálf-fullorðinn maður." Faðir hans var kominn út í baðið. Tímóteus reis á fætur og sótti pakkann sinn í skyrtuskúffuna, laumaðist útúr herberginu, nam staðar og hlustaði hálf- smeykur á hin kunnuglegu hljóð sem vom undanfari athafnarinnar, rennslið úr krananum og taktföst skrefin frá skál að skáp. Hann barði að dyrum. Fótatakið nálgaðist og lásinn small frá. Faðir hans stóð í dyrunum í nærbol og buxum. „Kom inn," sagði hann. Tímóteus mjakaðist innfyrir. „Þakka þór kærlega fyrir klukkuna og hitt .. „Til hamingju með afmælið Tímóteus," sagði faðir hans og laut niður til að kyssa hann á vangann. „Ég er með gjöí handa þér pabbi," sagði Tímóteus. „Ekki á ég afmæli í dag," sagði faðir hans brosandi og opnaði pinkilinn. „Nú jæja, þetta er raksápuhylki. Ég var einmitt að ljúka við það gamla." Það var glampi í gráum augum hans er hann leit á drenginn skjálfandi fyrir framan sig, og tók stórt handklæði af henginu og vafði að herðum hans. „Þú skelfur af kulda," sagði hann. „Viltu kannski staldra við og horfa á mig bera sápuna fyrsta sinn á kjammann? Einhvern tíma kemur að því að þetta verðir þú að gera sjálfur og það sakar ekki að læra það núna." Hann lét aftur hurðina og Tímóteus varð kyrr. Dyrunum var læst en Tímó- teus varð eftir og fylgdist með allri þessari dásamlegu athöfn sem hann hafði aðeins getið sér til um af hljóðunum, slípun, sápun, rakstri, þvotti, hann horfði á andlit föður síns koma hreint og ferskt úr eldrauninni, hvítt mjúkt og angandi. „Þetta er stór dagur," sagði faðir hans þegar þeir gengu saman útúr bað- herberginu, og Tímóteus greikkaði spor sinna litlu beru fóta til að verða sam- stiga taktföstum skrefum föður síns.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Árbók skálda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.