Árbók skálda - 01.12.1956, Page 104

Árbók skálda - 01.12.1956, Page 104
102 . Þegar Pierre kom út úr búningsklefanum fann hann hana ekki í mann- fjöldanum og hugsaði: Kannski þekki ég hana ekki aftur í sundfötunum; og þóttist ekki vera að leita heldur horfa á marglitar sólhlífarnar en ekki fólk. Þegar hann hafði synt í sjónum sem var eins og elexír guða kom hann aftur að og lagðist í hita sandsins blautur og lét milljón sandkorn festa sig á hans mennska hörundi. Hann lá með lokuð augu og fann sólina á augnalokunum og sá roða af henni, og horfði á þau litbrigði sem hugur hans nennti að leika sér að unz hann fann að hún var aftur komin, fann hana sitja í sandinum og horfa á sig. Þegar hann opnaði augun leit hún undan. Talaðu, sagði hún, og horfði á þúsund höfuð hafsins sem voru eins og litlir boltar að hossast á sjónum. Nei, sagði hann, og lokaði augunum aftur. Hann fann sandinn undir sér eins og jörðin væri búin að fá nóg af öllu lífi og hefði frið í sinni miklu jarð- arsál og ekkert þyrfti að vaxa framar og allt væri svo ekkert þyrfti að verða. Ekkert vakti honum óró. Kannski var þetta eins og að sofa en hafa vitund vökunnar. Konan horfði á þennan mann sem hafði svo skyndilega komið og henni fannst þá að hann hefði komið inn í líf hennar. Hún horfði á hann liggja svo nakinn og guðdómlegur og hvítur á grannan skrokkinn innanum atvinnu- brúningja baðstrandarinnar og kæra sig ekkert um að velta sér á bakið og magann á víxl og bera á sig olíu til að verða brúnn. Hana langaði allt í einu til að lúta yfir hann og kyssa hann á augnalokin og finna með vörunum dul augu hans undir með því dapra ljósi sem hafði horft svo undarlega á heiminn. Að sjá þennan mann sofa. Að vakna um nótt hjá þessum manni og vita að hann hefur sundrað þér og vakna svo heil og sameinuð um nótt og rísa til að horfa á hann sofa. Horfa á hann eins og núna. Og þó ekki eins og núna heldur meira. Og þó kannski ekki meira bara öðruvísi. Hún horfði á hann liggja með augun aftur og þráði svo djúpt og viðkvæmt að hann slæi eign sinni á hana, ætti hana, tæki hana. 'En hvað var hægt að segja? Gera hvað? Koma, fara: þegja. Þegja þó mað- ur tali. Það fann hún. Kliðurinn á ströndinni hækkar því falleg unglingsstúlka kemur gangandi, og ekki barn og ekki fullorðin þó heldur það sem maður veit ekki hvað maður var né hvað í ósköpunum maður er að verða, sízt af öllu hvað mað- ur er. Og þegar strákar með hár ofan í augu sjá hana kasta þeir sandi. Hún formælir þeim, þeir hlægja og kasta meiri sandi. Maðurinn sem lá í sandinum opnar augun og horfir á reiði stúlkunnar og á þennan líkama sem óx svo mikið í nótt. Og á enn eftir að vaxa svo það megi horfa. Sko, segir hann. Sko, segir hann til að fela hugsun sína. Hvað? segir konan sem situr í sandinum, hjá honum og horfir út á hafið svo langt, og svo breitt og vítt. Pierre þegir, snöggvast finnur hann kaldan skugga fara yfir sig af vængj-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Árbók skálda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók skálda
https://timarit.is/publication/1056

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.