Árbók skálda - 01.12.1956, Qupperneq 106
*
Viðbót við höfundatal Arbókar '54 og '55
Stuðzt við upplýsingar frá höf. sjálfum.
BJARNI SÓLMUNDUR BENEDIKTSSON er fæddur 25. apríl 1922 að Egilsstöðum í Vopnafirði, en
ólst upp í Hofteigi á Jökuldal. Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1944, blaða-
maður við Þjóðviljann frá 1951, en hefur skrifað ritdóma að staðaldri í það blað frá 1948.
„Gekk með skáldóra hér á árunum, en lagði þá af í júlí 1950. Lét ritstjóra Arbókar hafa
þetta gamla sögubrot út úr sér; heitir að birta aldrei framar sögu á prenti."
FRIÐJÓN STEFANSSON er fæddur 12. okt. '11. Komið hafa út tvö smásagnasöfn eftir hann, 1946 og
1953. — Margar af smásögum hans hafa verið þýddar á erlend tungumál. Meðal annarra
hafa norrænu bókmenntatímaritin „Ord och Bild" og „Vinduet" birt sögur eftir hann, svo
og ameríska tímaritið „The American Scandinavian Review".
JÓN EIRÍKSSON er fæddur 25 okt. 1927 í Reykjavík. Ólst upp á Hrafntóftum í Rangárvallasýslu.
Lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík haustið 1947. Lauk adjunktprófi (cand.
mag.) í þýzku, ensku og uppeldisfræði frá háskólanum í Oslo vorið 1952. Hlaut styrk til
framhaldsnáms í þýzku frá háskólanum í Kiel 1952—53. Kenndi þýzku við Verzlunarskóla
Islands og Námsflokka Reykjavíkur 1953—'55. Starfar nú á skrifstofu verðgæzlustjóra í
Reykjavfk.
MAGNÚS MAGNUSSON. Fæddur 12. okt., 1929 í Reykjavík, en fluttist ári síðar til Edinborgar
með foreldrum sínum, Sigursteini Magnússyni núverandi ræðismanni íslands í Skotlandi og
Ingibjörgu Sigurðardóttur. Stundaði nám við Edinburgh Academy og Oxford (enskar bók-
menntir). Er nú blaðamaður við Scottish Daily Express í Glasgow. Hefir skrifað smásögur
á ensku, þýtt Gunnlaugssögu og gert útvarpsleikrit upp úr Hrafnkelssögu. Er að vinna að
þýðingu á Njálssögu fyrir Penguin Series. Sagan, sem hér birtist, %ar upphaflega rituð á
ensku „eftir of mikinn Freudlestur of seint á kvöldin". Halldór Jónsson, mag. þýddi söguna
fyrir Árbók.
ÓLAFUR Þ. INGVARSSON. Fæddur 13. jan. 1923 að Stórólfshvoli í Rangárþingi, en fluttist snemma
til Reykjavíkur. Hefir lagt stund á margvísleg störf. Skrifaði um skeið mikið í Unga Island
og Æskuna. Síðan hafa birzt eftir hann sögur og ljóð í ýmsum öðrum tímaritum.
STEINAR SIGURJÓNSSON. Fæddur 9. marz, 1928 á Sandi, Snæfellsnesi. Foreldrar: Sigurjón Kristj-
ánsson, skipstjóri og Sigríður Ólafsdóttir. Bók, útgefin 1955: Hér erum við. Setjari að iðn.
Að öðru leyti vísast til Árbókar 54 og 55 um æviatriði höfunda.