Félagsbréf - 01.07.1956, Síða 26
24
FÉLAGSBHÉF
mennsku", sem Sovét-stjómin gæti
ekki lagt hönd að styðja.
Þriðja október var endi bundinn
á uppreisnina og hina hetjulegu vörn
Pólverja. Warsjá var öll í rústum og
250.000 af íbúum hennar dauðir, þar
á meðal mcirihlutinn af hinni harð-
fengu mótspymuhreyfingu. Bor hers-
liöfðingi var fangi nazista.
Með einhverjum átakanlegustu
svikrnn, sem sagan getur um, hafði
Moskvu tekizt að ná sínu upphaflega
markmiði. Henni hafði telcizt aS
gjöreySileggja duglegasta hlutann af
heimavamarliði Póllands og koma því
til leiðar, að ötulasti foringi þess var
orðinn fangi. Þrátt fyrir þessar ægi-
legu aðfarir leyndust enn frelsisunn-
andi vamarsveitir víðsvegar um Pól-
land, og nú varð það hlutverk Bauða
hersins með aðstoS kommúnistískra
handbenda sinna að ganga milli bols
og höfuðs á þeim.
Eftir aS styrjöldinni lauk, töldu
Sovét-yfirvöldin það yfirleitt Pól-
verjum til dauðaglæps aS hafa verið
í pólsku andspyrnuhreyfingunni, eða
hafa átt nokkur mök við hana til
liðsinnis. Dómum inn líflát, þræla-
flutninga úr landi eSa ævilangt
fangelsi rigndi yfir þetta vesalings
fólk og hvem þann, sem eitthvert
Moskvuþý hirti um að ákæra.
31. desember 1944 lýsti Lublin-
nefndin því yfir, að hún væri bráSa-
birgðastjóm Póllands og var þegar
í stað viðurkennd af Sovét-stjórn-
inni þann 5. janúar 1945.
A Yalta-ráðstefnunni í febrúar
komu „hinir þrír stóm“, Stalin,
Roosevelt og Churchill, sér saman
um yfirlýsingu, sem meSal annars
hafði þetta inni aS halda:
„Bráðabirgðastjóm þá, sem nú fer
með völd í Póllandi, skal þessvegna
skipuleggja á breiðari grandvelli með
þátttöku leiStoga lýSræðisflokkanna
í Póllandi sjólfu og Pólverjum er-
lendis. Þessi nýja stjórn skal nefn-
Yalta — Stalín til hœgri tilbúinn að
svíkja sáttmálann.
ast: Bráðabirgða þjóðeiningarstjórn
Póllands.
Þessi stjórn skal skuldbundin til
þess að láta fara fram frjálsar og
óháðar kosningar með almennum
kosningarétti. Kosningarnar séu
leynilegar. í þessum kosningiun skulu
allir andnazistiskir flokkar hafa leyfi
til aS taka þátt og hafa menn í
kjöri“.
Þegar tími kom til þess aS fara að
framkvæma þessa samþykkt, kom
það brátt í Ijós í endalausu málþófi
Sovét-yfirvaldanna, undanbrögðum,
svikum, vanefndum og blekkingum,
að Moskva vildi ekki þola neinar
breytingar á Lublin-nefndinni. nema