Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Side 14
NÝJUNGAR í ATVINNULÍFINU
Verkefniö Lifrænt samfélag kynnt umhverfisráöherra á fundi 20. júli sl. Á myndinni eru,
taliö frá vinstri, Aöalsteinn Guömundsson, forstööumaöur Grænmetis hf., Stefán
Gunnarsson, bóndi á Dyrhólum, greinarhöfundur, Gunnar Ágúst Gunnarsson, Jón H.
Karlsson, aöstoöarmaöur heilbrigðisráöherra, Össur Skarphéöinssn umhverfisráö-
herra, Hafsteinn Jóhannesson sveitarstjóri, Benedikt Sigurbjörnsson, verkefnisstjóri
Átaksverkefnis Mýrdælinga, og Guömundur Elíasson, oddviti Mýrdalshrepps. Björn
Pálsson i Hraömyndum tók myndina fyrir Sveitarstjórnarmál.
rekstur á snyrtiaðstöðu vestan undir
Reynisfjalli en þangað koma þús-
undir ferðamanna á hverju sumri.
Nokkrir aðilar hafa komið upp
myndarlegri aðstöðu til móttöku
ferðamannna. Má þar sérstaklega
nefna ferðaþjónustu bænda á Höfða-
brekku og í Sólheimahjáleigu og
gistihúsið Ársali í gamla sýslu-
mannsbústaðnum í Vík. Á vegum
Lífræns samfélags er að hefjast
skipulagt starf að upplýsingaöflun og
stefnumótun fyrir vistvæna ferða-
þjónustu á svæðinu enda er verulegur
áhugi á því fyrir hendi meðal for-
ráðamanna í þessari grein.
Lífræn ræktun grænmetis
Þróun umhverfis- og atvinnumála
í Mýrdal ræðst þó fyrst og fremst af
framvindu landbúnaðar í héraðinu.
Hann er undirstaða atvinnulífsins, sá
kjarni sem önnur starfsemi byggist á
árið um kring. Á því sviði eru þegar
hafnar áhugaverðar tilraunir í sam-
bandi við skjólbeltaræktun, áburðar-
framleiðslu, áburðarnotkun og líf-
rænar ræktunar- og eldisaðferðir í
nokkrum greinum en lengst er þetta
starf komið í grænmetisræktuninni.
Nokkur hópur bænda hefur þegar
hafið óformlegt samstarf og skoð-
anaskipti fyrir tilstilli Lífræns sam-
félags um þessi mál. Athuganir í
sambandi við ræktunaraðferðir,
vöruþróun, markaði og framleiðslu-
staðla eru komnar vel á veg og hefur
fjöldi sérfróðra aðila lagt þar hönd á
plóginn. Alltof snemmt er að fullyrða
um möguleika og hagkvæmni lífræns
landbúnaðar þótt niðurstöður þessara
athugana lofi góðu. Frumkönnun á
forsendum slíkrar framleiðslubreyt-
ingar, sem gerð var að tilhlutan Líf-
ræns samfélags, bendir til þess að ís-
lenskir bændur, sem hyggja á lífræna
ræktun, þurfi að jafnaði að yfirstíga
lægri þröskuld en erlendir starfs-
bræður þeirra því álag á bústofn og
lendur er hér minna og efnanotkun
mun minni en í nágrannalöndunum.
En þessu er ugglaust misjafnt farið
eftir greinum, svæðum og einstökum
bújörðum. Það sem ræður þó úrslit-
um um horfur lífrænnar ræktunar eru
sölu- og markaðsmöguleikar fram-
leiðslunnar. Lífrænt samfélag og að-
standendur þess munu leggja megin-
áherslu á að sinna markaðsstarfi
bæði hérlendis og erlendis. Um leið
og það hlýtur að teljast mikið hags-
munamál fyrir íslenska neytendur að
þekkja og eiga kost á gæðafram-
leiðslu úr eigin landi er einnig mikil-
vægt fyrir framleiðendur að brjótast
úr viðjum hins þrönga heimamark-
aðar.
Kynningarfundur í Vík 2. sept-
ember
Haldinn var glæsilegur kynning-
arfundur um Lífrænt samfélag og
lífrænan landbúnað í Vík þann 2.
september sl. Auk heimamanna sóttu
þennan fund fulltrúar ráðuneyta um-
hverfis- og landbúnaðarmála, leið-
togar og starfsmenn bændasamtaka,
sérfræðingar, vísindamenn og
áhugamenn um umhverfismál og líf-
rænan landbúnað. Gestir fundarins
voru forystumenn alþjóðahreyfingar
lífrænna landbúnaðarsamtaka
(IFOAM) og gerðu þeir grein fyrir
stöðu og þróun lífræns landbúnaðar
í heiminum um þessar mundir. Fram
kom eindreginn vilji stjórnvalda til
að sú tilraun, sem hafin er í Mýrdal,
haldi áfram. Sú umræða, sem Lífrænt
samfélag hefur hrundið af stað, snýst
um framtíð byggðanna og tilveru-
grundvöll íslensks landbúnaðar. Hin
neikvæða mynd, sem byggðastefna
og landbúnaður tengjast nú í hugum
manna, á sér eðlilegar skýringar.
Rætur hennar liggja í skorti á aðlög-
un að breyttum skilyrðum og kröfum
- kröfum um valddreifingu í stað
miðstýringar, um arðsemi atvinnu-
reksturs í stað ríkisforsjár, um
áherslu á gæði og hollustu í stað
magns, um tillitssemi við umhverfið
í stað drottnunar yfir því. Lífrænt
samfélag hyggst leita nýrra leiða til að
bregðast við þessum breyttu skilyrð-
um. Vistvæn atvinnustarfsemi og líf-
rænn landbúnaður eru kostir sem vekja
vonir um að þetta sé mögulegt. Eigi
þær vonir að geta ræst þarf hins vegar
að sinna rannsóknum, tilraunum, þró-
unar- og markaðsstarfi áður en ráðist
er í fjárfestingu og framkvæmdir.
260