Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 27

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Síða 27
VERKASKIPTING RÍKIS OG SVEITARFÉLAGA Skólar þurfa aö koma til móts viö æ fjölbreyttari hóp nemenda bæði hvaö námsgetu og áhuga varöar. Ljósm. Ljósmyndarinn, Jó- hannes Long. á viðhorfum almennings til hinna ýmsu stofnana í þjóðfélaginu árið 1989, leiddi í ljós að skólakerfið á undir högg að sækja. Aðeins 39% fólks töldu að grunnskólinn sinnti hlutverki sínu vel og um 42% töldu að framhaldsskólinn gerði það.) Krafan um valddreifingu áleitnari Á sama tíma og stjórnvöld standa frammi fyrir auknum kröfum um markvissa stefnu í menntamálum vaxa kröfur um valddreifingu í opinberri stjórnsýslu. Sú krafa verður sífellt áleitnari að færa beri ákvörðunar- valdið í meira mæli út úr ráðuneytunum og nær starfs- vettvanginum sjálfum til að tengja betur völd og ábyrgð. í menntamálum hefur þetta þýtt dreifingu valds frá ráðuneytunum til sveitarstjórna, fræðsluumdæma og skóla. En valddreifing hefur undantekningarlítið ýtt undir kröfur um ábyrgðarskyldur skólastjórnenda og opinbert gæðaeftirlit með skólastarfinu. Sú hætta er ávallt fyrir hendi að framkvæmdaaðilar standi ekki undir þeirri ábyrgð, sem þeim er falin, eða að sérstakar aðstæður geri þeirn erfitt að uppfylla þá ábyrgð. Þá á sú skoðun vaxandi fylgi að fagna að nemendur og að- standendur þeirra, kennarar og almenningur eigi rétt á því að skólastarf fullnægi ákveðnum lágmarkskröfum og að gripið sé til viðeigandi ráðstafana, ef þróun mála gefur tilefni til. Ýmislegt bendir því til þess að hlutverk ríkisvaldsins í valddreifðu menntakerfi verði fyrst og fremst fólgið í setningu skýrra markmiða með skóla- starfi og endurskoðun menntastefnunnar, útgáfu við- miðunarstundaskrár og eftirliti með því að þessum reglum sé fylgt. Ég gat þess áður að sveitarfélögin ættu að eiga hvað auðveldast með að yfirtaka frá ríki verkefni grunnskól- ans. Þessi fullyrðing byggir á því að sveitarfélögin hafa drjúga reynslu af rekstri grunnskólans, ýmist ein sér eða í samvinnu, þar sem fámenn sveitarfélög hafa gert samning um sameiginlegan rekstur skóla. I annan stað má nefna að í 14. kafla gildandi laga um grunnskóla er ótvírætt kveðið á um þá meginreglu að sveitarfélögin greiði rekstur og stofnkostnað grunnskóla en ríkissjóð- ur greiði á hinn bóginn tiltekna launaliði. Því liggur beinast við að gera meginregluna að allsherjarreglu og fela sveitarfélögunum að fullu rekstur grunnskólans. Þá má ennfremur færa fram þau rök að rekstur grunnskóla er dæmigert staðbundið verkefni, og trúr því markmiði að sveitarfélögin eigi einkum að hafa með höndum verkefni, sem ráðast af staðbundnum þörfum, og þar sem ætla má að þekking á aðstæðum ásamt frumkvæði heimamanna leiði til skilvirkari þjónustu, þá tel ég 273

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.