Sveitarstjórnarmál - 01.10.1993, Blaðsíða 56
STJÓRNSÝSLA
sig. Með þessu markar Evrópu-
bandalagið ákveðna stefnu um að líta
fram hjá minni háttar málum, en láta
einungis til sín taka þegar um er að
ræða mál sem miklu varða fyrir
sameiginlega hagsmuni aðildarríkj-
anna.
Þá er með Maastrichtsamningn-
um komið á fót fulltrúasamkomu
héraðs- og sveitarstjórnarmanna.
Hún mun gefa álit á lögum og reglum
og væntanlega halda stíft fram kröf-
unni um dreifræði. Þetta má skilja
sem svar aðildarríkjanna við auknum
kröfum heima fyrir unr aukið vald lil
handa héraðs- og sveitarstjórnum. Þá
má ntinna á að framkvæmdastjórn
EB hefur lagt mikla áherslu á að eiga
gott samstarf við héraðs- og sveitar-
stjórnir í því skyni að minnka tak
ríkisstjórnanna á Evrópusamstarf-
inu.
Sum meginlandsríkjanna innan
EB vildu með Maastrichtsamn-
ingnum veita héraðs- og sveitar-
stjórnum enn meiri aðild að Evrópu-
samstarfinu en andstaða annarra
ríkja, sérstaklega Bretlands, kom í
veg fyrir það. Afstaða Breta í þessu
efni byggir á sömu flokkspólitísku
viðhorfunum innanlands og fyrr var
lýst.
Sveitarstjórnirnar: Fulltrúar
lýóræðis í sinni bestu mynd?
Það er athyglisvert í þessu sam-
hengi að sveitarstjórnarmenn innan
Evrópubandalagsins hafa rökstutt
kröfur sínar um aukin áhrif sveitar-
stjórnunum til handa með því að vísa
til þess að sveitarstjórnirnar séu í
goggunarröð vaidakerfisins næstar
íbúunum og því sé lýðræðinu best
þjónað með því að styrkja vald lægri
stjórnsýslustiganna. Þessi röksemd
er góð svo langt sem hún nær, en
formleg staða í þreparöð stjórnsýsl-
unnar segir ekkert um hver raun-
veruleg áhrif borgaranna eru á mála-
tilbúnað í stjórnsýslu sveitarfélaga
eða ríkis. Fyrir lýðræðið skiptir höf-
uðmáli hvernig töku ákvarðana er
hagað og hver umsagnarréttur íbú-
anna er um einstök mál.
Það virðist vera allt of algengt að
ntenn falli í þá gryfju að setja sama-
semmerki milli stærðar og lýðræðis.
Oft er því þannig haldið fram að
smærri ríki séu, af einhverri rök-
bundinni nauðsyn, æskilegra form en
stór ríki og af því dregin sú ályktun
út frá stærðinni einni saman að lýð-
ræði hljóti að vera öflugra og al-
Dæmi um verð, 1 eða 3 fasa, verð með VSK:
PK alhliöa dælur 40 l/min 40 m.v.s. 6.870,-
PK 70 70 21.665,-
JSW neysluvatnsdaelur 160 60 29.429,-
SV brunndælur 600 12 48.207,-
RAFKNÚNAR DÆLUR
0,37 til 15 kw
Hringrásardælur, brunndælur,
sjódælur úr kopar, neyslu-
vatnsdælur með jöfnunarkút,
djúpvatnsdælur og fleiri
útfærslur.
o
o
cn
c
cn
3
<
SS"** VÉLASALAN HF.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122.
302