Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Qupperneq 12
UMHVERFISMÁL
Lagstúfur Náttúruvemdarárs Evrópu 1995 liér á landi
Höfundur lags: Melkorka Ólafsdóttir, 10 ára
Höfundur texta: Sigrún Helgadóttir
ar og aðstandendur vilja tengja
náttúruvemdarárinu.
Hvaö hefur veríö gert í
tilefni ársins?
Lag ársins
I kjölfar setningar ársins hafa
verið haldnir nokkrar ráðstefnur
sem hluti af Náttúruverndarári
1995 og má þar fyrst nefna
Siöfræöi náttúrunnar
Þann 4. mars var haldin eins
dags ráðstefna á vegum Þjóðkirkj-
unnar, Siðfræðistofnunar Háskól-
ans og umhverfisráðuneytisins
sem var liður í Náttúruvemdarári
Evrópu 1995. Ráðstefnan fjallaði
urn siðfræði náttúrunnar. Síðar á
árinu er síðan ætlunin að hafa
lengri ráðstefnu þar sem fleiri
þættir umhverfis, náttúru og sið-
fræði verða til umfjöllunar.
Þá var einnig kynnt lag náttúruverndarársins hér á
landi. Lagið er eftir Melkorku Ólafsdóttur, sem samdi
það 10 ára, en textinn eftir Sigrúnu Helgadóttur. Barna-
kór þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði söng lagið við setningu
ársins og nú er unnið að hljóðritun lagsins í flutningi
kórsins til dreifingar til útvarpsstöðva og þeirra sem
vilja nota það í tengslum við þátttöku sína í árinu.
Dagskrá Náttúruverndarárs Evrópu 1995
Dagskrá um aðgerðir í tilefni náttúruvemdarársins er
ekki tilbúin en undirbúningsnefndin vinnur þessa dag-
ana að henni í samvinnu við ýmsa aðila sem hafa þegar
lýst áhuga á að taka þátt í aðgerðum Náttúruvemdarárs
Evrópu 1995.
Aðgerðum hel'ur í megindráttum verið skipt í tvennt,
annars vegar
• aðgerðir sem ráðuneytið í samvinnu við undirbún-
ingsnefndina eða aðra aðila stendur sérstaklega fyrir í
tilefni ársins, og hins vegar,
• aðgerðir sem skipulagðar eru af félögum, áhuga-
mannasamtökum, fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfé-
lögum. Undirbúningsnefndin samþykkir þá að viðkom-
andi aðgerðir falli undir markmið ársins og heimilar við-
komandi aðilum að nota merki, slagorð, ímynd og lag
ársins í kynningum og fellir þær inn í dagskrá ársins.
Þannig er ætlunin að reyna að fá sem flesta aðila til þess
að taka þátt í aðgerðum ársins hér á landi. A næstunni
verður sent bréf til hugsanlegra þátttakenda þar sem
þeim verður formlega boðið að taka þátt í Náttúruvemd-
arári Evrópu 1995 og þeir beðnir um að gera tillögu um
það hvemig þátttöku þeirra yrði háttað. Hér undir geta
fallið aðgerðir sem þegar eru í undirbúningi eða ákveðn-
Umhverfiö í okkar höndum
I samvinnu við umhverfisráðuneytið stendur Ung-
mennafélag Islands fyrir hreinsunarátaki á árinu þar sem
lögð verður áhersla á umgengni við hafið, strendur, ár og
vötn landsins. Atakið var kynnt fyrir fréttamönnum þann
22. febrúar og sett formlega 27. febrúar með ráðstefnu.
A vegum ungmennafélaganna um allt land verða haldnar
ráðstefnur um umhverfismál á tímabilinu frá apríl til maí
og í sumar verður gengist fyrir víðtækri hreinsun á fjör-
um. ám og vatnsbökkum. I lok átaksins er ætlunin að
taka saman hver árangur hreinsunarinnar hefur verið og
hversu mikið og hvers eðlis ruslið var. Atakið „Um-
hverfið í okkar höndum" er sérstakt átak umgmennafé-
laganna og umhverfisráðuneytisins sem tekur þátt í nátt-
úruverndarárinu. Undirbúningsnefnd náttúruvemdarárs-
ins hefur aðeins viðurkennt verkefnið sem hluta aðgerða
í tengslum við árið, en skipulagning, framkvæmd og um-
sjón verkefnisins er í höndum framkvæmdanefndar þar
sem sitja fulltrúar Ungmennafélags Islands og umhverf-
isráðuneytisins, en styrktaraðilar eru Samband íslenskra
sveitarfélaga og Bændasamtök Islands.
Umhverfismál fyrirtækja
Ráðstefna sem umhverfisráðuneytið stóð fyrir í sam-
starfi við fjögur fyrirtæki um umhverfismál fyrirtækja
var haldin 7. mars undir merkjum Náttúruverndarárs
Evrópu 1995. A ráðstefnunni hélt fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri ESB á sviði umhverfismála erindi um um-
hverfisstefnu fyrirtækja og nokkur fyrirtæki kynntu hvað
þau hafa gert til þess að bæta umhverfismál fyrirtækj-
anna og jafnframt veitti umhverfisráðherra Gámaþjón-
ustunni, Kjötvinnslunni og Umbúðamiðstöðinni viður-
6