Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 13
UMHVERFISMAL
Sigrún Helgadóttir, höfundur texta lags náttúruverndarársins hér á landi, Melkorka Ólafsdóttir,
höfundur lagsins. Sigrún Stefánsdóttir, sem hlaut fyrstu verölaun í Ijósmyndasamkeppni
Evrópuráösins i tilefni Náttúruverndarárs Evrópu, og Össur Skarphéðinsson umhverfisráðher-
ra. Ljósm.: Ljósmyndastofa Kristjáns Magnússonar sf.
kenningu fyrir framlag þeirra
til betra umhverfis.
Hvaö er á döfinni?
Landshlutaráöstefnur
A árinu hyggst umhverfis-
ráðuneytið, í samvinnu við
landshlutasamtök sveitarfélag-
anna, standa fyrir kynningar-
fundum í landshlutunum um
málefni sem tengjast náttúru
og náttúrulegum svæðum í ná-
grenni byggðar.
Frímerki og póst-
stimpill
Evrópuráðið fór þess á leit
við allar póst- og símamála-
stjórnir í Evrópu að í tilefni
ársins yrði gefið út sérstakt
frímerki. Umhverfisráðuneyt-
ið hefur jafnframt óskað eftir
því við Póst og síma að þetta
verði tekið til athugunar. Póst-
ur og sími hefur áður gefið út
sérstök náttúruverndarfrí-
merki, þ.e.a.s. í tilefni Náttúruvemdarárs Evrópu 1970
og vegna Votlendisárs Evrópu árið 1977. Póstur og sími
hefur tekið mjög vel í þessa málaleitan og líklega verða
gefin út sérstök frímerki í tilefni ársins og í tengslum við
það póststimpill með íslenska merki Náttúruvemdarárs
Evrópu 1995.
Ritgeröasamkeppni
Umhverfisráðuneytið áfomiar að beita sér fyrir því í
samvinnu við menntamálaráðuneytið að haldin verði rit-
gerðasamkeppni í grunnskólum landsins um efni sem
tengist megináherslum náttúruvemdarársins, t.d. náttúru-
legum svæðum í nágrenni skóla eða heimili. Hugmyndin
er að koma þessu í framkvæmd á haustönn 1995.
Annaö
Fyrir utan það sem að ofan er talið er fjöldinn allur af
atburðum sem eru í athugun hjá undirbúningsnefndinni
og ekki er tímabært að fjölyrða um á þessu stigi málsins.
Þó má greina frá því að Bændasamtökin hafa lýst yfir á-
huga á þátttöku í árinu og verður hún tengd kynningu á
lífrænum landbúnaði. Jafnframt er mikill áhugi hjá
Ferðaþjónustu bænda. Unnið er að kynningarátaki um
flokkun sorps og endurvinnslu, sérstaklega í tengslum
við jarðgerð úrgangs. Þá hefur Samband veitinga- og
gistihúsa lýst yfir áhuga á að taka þátt í árinu með því að
nokkur hótel taki upp vistvæna hætti í rekstri sínum.
Auk þess er unnið að verkefnum sem tengjast umhverfi
silungs- og laxveiðiáa landsins og íþróttasamband Is-
lands vinnur að því að útfæra hugmynd um tengsl
íþróttaiðkunar almennings og umhverfisins.
Þátttaka sveitarfélaga
Þátttaka sveitarfélaganna í náttúruverndarárinu er
mjög mikilvæg og getur haft úrslitaþýðingu fyrir árang-
urinn til framtíðar. Náttúruleg svæði í þéttbýli og í ná-
grenni byggðar eru í umsjón sveitarfélaganna og þar eru
teknar ákvarðanir um viðhald, meðferð og nýtingu
þeirra.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lýst því yfir að
það muni taka þátt í Náttúruvemdarári Evrópu 1995 og
hvetja sveitarfélögin til þátttöku í árinu. Mikilvægt er að
sveitarfélög skoði það með hvaða hætti þau geta lagt
þessu málefni lið annaðhvort ein sér eða í samvinnu við
skóla, áhugasamtök, foreldrafélög eða hverfasamtök.
Einnig gætu fleiri en eitt sveitarfélag haft samstarf um
aðgerðir í tilefni ársins. Sumum þeirra verkefna sem á
döfinni eru gætu sveitarfélögin tekið þátt í eins og t.d.
verkefni Ungmennafélags Islands en einnig gætu verk-
efni sem eru í undirbúningi á vegum sveitarfélaganna
fallið að þema ársins og orðið liður í aðgerðum sveitarfé-
lagsins í tilefni af árinu.
Sveitarfélögum sem áhuga hafa á því að taka þátt í ár-
inu er bent á að hafa samband við undirbúningsnefndina
eða umhverfisráðuneytið til þess að fá nánari upplýsing-
ar um árið og hvemig þátttöku í því verður háttað.
7