Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 14

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Page 14
UMHVERFISMAL Umhverfið í okkar höndum Anna Margrét Jóhannesdóttir verkefnisstjóri Ungmennafélagshreyfingin hefur frá upphafi starfsemi sinnar 1907 lagt nrikla áherslu á umhverfismál. Til gamans nrá geta þess að í fyrstu tölublöðunr Skinfaxa 1909 voru rit- aðar ítarlegar greinar til að leiðbeina ungnrennafélögunr um grasafræði, matjurtarækt, skógrækt og skrúð- garðarækt. Einnig var vísað til ábyrgðar þeirra tínra kynslóðar á að rækta landið og skila því til kom- andi kynslóða í betra ástandi en tek- ið var við því. Bætt umgengni viö hafió, strendur, ár og vötn landsins Yfirskrift umhverfisverkefnis, sem Ungmennafélag Islands stofnar lil í ár, er bætt umgengni við hafið, strendur, ár og vötn landsins. Til þessa unrhverfisátaks er stofn- að í samstarfi við umhverfisráðu- neytið, Sanrband íslenskra sveitarfé- laga og Bændasamtök íslands. Landssamband íslenskra útvegs- nranna, Sjónrannasamband íslands, Famranna- og fiskinrannasamband Islands og Vélstjórafélag Islands styðja átakið. Sérstök framkvænrdanefnd undir forystu Ungmennafélags Islands hefur forystu unr kynningu og skipulagningu verkefnisins. Markmiðið nreð átakinu er að efla vitund almennings og ábyrgð sér- hvers einstaklings unr að bæta um- gengni við umhverfi sitt og virkja einstaklinga, félagasamtök og hags- nrunasamtök til að bæta umgengni við hafið, strendur, ár og vötn. Væntingar unr árangur verkefnis- ins felast í því að ná franr viðhorfs- breytingunr meðal alnrennings til bættrar umgengni við náttúruna. Málþing umhverfisverk- efnis UMFÍ Umhverfisverkefni UMFÍ 1995 var formlega ýtt úr vör með mál- þingi á Hótel Loftleiðunr þann 26. febrúar sl. Heiðursgestur þingsins var forseti Islands, frú Vigdís Finn- bogadóttir. Meðal framsögumanna voru fulltrúar aðila er standa að um- hverfisverkefninu: Þórir Jónsson, fornraður UMFÍ, Össur Skarphéð- insson unrhverfisráðherra, Jón Helgason, formaður bændasamtak- anna, og Vilhjálnrur Þ. Villrjálms- son, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Eitt meginviófangsefni komandi aldamótakyn- slóöar Eitt meginviðfangsefni komandi aldamótakynslóðar verða umhverf- ismál! Málþingið „Unrhverfið í okkar höndunr" var vel sótt. Á því kom meðal annars fram að unrhverfisá- tak eins og hér um ræðir hefur mik- ið uppeldislegt gildi fyrir kynslóð- irnar sem eru að vaxa úr grasi. Is- lendingar eiga að stefna að því að verða fyrirnrynd annarra þjóða í umhverfismálum ásamt því að ís- lendingar verði í forystu unr alþjóð- legar samþykktir í unrhverfismál- um, t.d. um losun spilliefna í sjó. Þessu málþingi verður fylgt eftir í vor með fræðslufundum á sjö stöð- um víða unr land. Fræðslufundimir verða með því sniði að franrsögur Frá málþinginu 26. febrúar. Vilhjálmur P. Vilhjálmsson, formaöur sambandsins, flytur ávarp. 8

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.