Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Side 20

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Side 20
UMHVERFISMAL Mynd 8: Lokaafrakstur ræktunartilraunar meö tómatplöntur á vegum Garöyrkjuskóla rfklsins og Sorpu. Fimm mismunandi ræktunarefni voru reynd. Lengst til vinstri jarövegsbætir eingöngu, önnur til vinstri jarövegsbætir og vikur, miöja jarðvegsbætir, mómold og nítratgjöf, önnur frá hægri jarðvegs- bætir, vikur og stööluö áburöargjöf, lengst til hægri stöðluö mold og áburöargjöf. Þótt plönturnar tvær til vinstri séu þokkalegar standast þær ekki samanburö viö striöræktun meö áburöargjöf. ræktun ekki snúning áburðargjöf. Myndir 8 og 9 sýna tómatplöntur og sumarblóm úr mismunandi ræktunar- efni í lok tilraunar eftir sex vikna ræktun. Gildi jarðvegsbætis úr jarðgerð felst ekki síst í frjó- mætti til lengri tíma. Athuganir hér á verða eðli málsins samkvæmt ekki gerðar nema á löngum tíma. Reynsla er- lendis frá sýnir fram á úrvals eiginleika jarðvegsbætis til að halda bæði raka og næringarefnum auk þess sem ör- veruflóran í massanum gefur honuin ýmsa hagstæða eiginleika. Mælingar benda til að næringarefni plantna séu í ofgnótt í massanum en að köfnunarefni sé mest í bundnu fonni og komi til með að losna hægt. Til þess að ganga úr skugga unt þetta eru ráðgerðar kerfisbundnar athuganir í samvinnu við garðyrkjustjóra á höfuðborgar- svæðinu og aðra um hvemig ræktun í efninu reynist ut- andyra. Frumnióurstööur af verkefni Vitneskjan sem fyrir liggur bendir til að jarðgerð sé heppileg aðferð við að beina garðaúrgangi af höfuð- borgarsvæðinu frá urðun til framleiðslu á söluhæfri af- urð. Flest bendir til að afurðin sé sambærileg við það besta sem gerist erlendis þar sem jarðgerð á sér nokkra sögu. Þá bendir margl til þess að eftirspurn sé talsverð eftir afurðinni. Hversu sterk eftirspurnin verður fer á hinn bóginn rnjög eftir stefnumörkun opinberra aðila. Mjög víða, og ekki síst á höfuðborgarsvæðinu, er nú þegar skortur á næringarríkum jarðvegi til ræktunar- verkefna af ýmsu tagi svo ekki sé talað um þörfina í landgræðsluverkefnum. Þegar kemur að notkun efnisins er mikilvægt að rétt sé að farið. Jarðvegsbætir er verð- mæti sem fráleitt er að nota sem uppfyllingarefni heldur ber að nota hann og umgangast sem lífrænan áburð. I áfangaskýrslu um verkefnið sem nú liggur fyrir eru dregnar eftirfarandi ályktanir: a) Veðurfar hamlar ekki starfseminni b) Starfseinin er tæknilega inöguleg en útvega þarf lykiltæki c) Afurðin er nothæf við ræktun d) Afurð getur verið svo gott sem laus við illgresisfræ e) Nothæfar uppskriftir finnast þar sem eingöngu er notast við garðaúrgang og hrossatað. Ennfremur segir í áfangaskýrslunni: „A þessu stigi verkefnisins er óhœtt að fullyrða að ekkert við aðstœður er með þeim hœtti að jarðgerð þurfi að vera toiyeldari hér en víða annars staðar í heiminum þar sem komin er góð reynsla afslíkri starfsemi. Hráefni þau sem notuð voru í verkefni Sorpu eru á engan hátt frábrugðin að eðlis- og efnaþáttum sambœrilegum hrá- efnum sem notuð eru erlendis nema efvera skyldi að þau virðast lireinni af mengunarefhum. Því er óhœtt aðfull- yrða að hœgt verði að fá fram afurð af svipuðum og e.t.v. betri gœðaflokki en fengist hefur erlendis. “ Framhaldid Akvörðunin um að fara út í þetta verkefni var tekin af sveitarfélögunum sem standa að Sorpu í desember 1993. I kjölfar sveitarstjómarkosninga vorið 1994 var svo skip- uð ný stjóm Sorpu. Nýja stjómin hefur vísað til sveitar- stjóma ályktun þess efnis að urðun á garðaúrgangi verði hætt og hann skilgreindur sem endurvinnanlegt efni. Oljóst er að öðru leyti hvað núverandi stjóm ætlast fyrir og liggja engar ákvarðanir fyrir af hennar hálfu um fram- hald starfseminnar aðrar en að ljúka verkefninu. Ljóst er Mynd 9: Frá ræktunartilraun meö sumarblóm (Tóbakshorn). Upprööun er sú sama og á mynd 8. Þegar myndin var tekin voru enn eftir 2-3 vikur af tilrauninni. Minni munur er sjáanlegur en aö ofan enda kom hann best í Ijós á síöustu stigum tilraunar- Innar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.