Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Qupperneq 21
UMHVERFISMAL
hins vegar af viðbrögðum úti í samfélaginu að jarðgerð
nýtur hylli almennings.
Stefnt er að því að skila lokaskýrslu um verkefnið vet-
urinn 1995-96. Þá mun liggja fyrir reynsla af ræktunar-
tilraunum utanhúss sumarið 1995. Þær tilraunir verða
gerðar í samvinnu við garðyrkjustjóra á höfuðborgar-
svæðinu, Garðyrkjufélag Islands og áhugasama íbúa á
höfuðborgarsvæðinu. Gjald verður ekki tekið fyrir af-
urðina á þessu stigi. Ekki verður safnað efni í nýja
vinnslu í vor á vegum Sorpu þar sem engar ákvarðanir
liggja fyrir um það frá stjóm fyrirtækisins. Vitað er þó
að sum bæjarfélög hafa áhuga á að halda starfsemi af
þessu lagi áfram og ekki er ólíklegt að jarðgerð fari fram
á þeirra vegum í sumar.
Lokaorö
Hvatinn að verkefninu sem hér hefur verið kynnt er sá
umhverfisábati sem það gefur fyrirheit um, þ.e. sú hugs-
un að mynda verðmæti úr úrgangi. Hvar sem rætt og rit-
að er um umhverfismál í heiminum ber eyðingu gróðurs
og jarðvegs ávallt einna hæst. Þjóðir heims hafa vaknað
við vondan draum og áttað sig á að næringarríkur jarð-
vegur er einhver mestu verðmæti sem móðir jörð hefur
upp á að bjóða. Jarðvegur er undirstaða gróðurs á þurr-
lendi jarðar og gróðurinn, hvort sem hann er ræktaður
eða villtur, er undirstaða fæðukeðju mannsins og allra
lífvera. Milljónir og aftur milljónir tonna af jarðvegi hafa
blásið á haf út vegna þess að menn áttuðu sig ekki á því
hvílík verðmæti voru þar á ferðinni. Þessi afstaða er nú
breytt og gróður- og jarðvegsvemd er forgangsatriði þar
sem stefna er mótuð um efnahag, þróun og umhverfi.
Ofangreind atriði eiga einnig við aðstæður á Islandi.
Þó vantar mikið upp á að viðnám gegn jarðvegseyðingu
sé á nokkurn hátt forgangsatriði við stefnumörkun hér-
lendis. Við höfum enn ekki tileinkað okkur það viðhorf
að jarðvegur sé verðmæti og höfum við þó æma ástæðu
til. Almenningsálitið stendur hér þó feti framar en stjóm-
völd sem kemur m.a. fram í því að nú þegar er góður
jarðvegur markaðsvara sem neytendur greiða fyrir til
eigin nota. Árið 1993 voru flutt inn rúmlega 1000 tonn
af jarðefnum, mómold o.fl. til ræktunar, að CIF andvirði
um 20 milljónir króna. Söluandvirði í smásölu er líklega
tvöföld til þreföld þessi upphæð. Innlend ræktunarefni
sem seld eru í stærri förmum á höfuðborgarsvæðinu fara
á um 1000 kr/m1 en ekki liggja fyrir upplýsingar um
magn þess sem þannig er selt.
Endurvinnsla á lífrænum úrgangi sem miðar að fram-
leiðslu og nýtingu á jarðvegsbæti er því raunveruleg
verðmætasköpun. Slík starfsemi stuðlar einnig að því
viðhorfi hérlendis að jarðvegur sé verðmæti. Það er mik-
ilvægt trompspil á hendi í vistvænni ímynd Islands til
nýrrar aldar.
ALMENNINGSBÓ KAS Ö F N
Nýtt merki almenningsbókasafna
ALMENNINGSBÓKASÖFN
....góður kostur!
Á síðustu árum hafa forstöðumenn almenningsbóka-
safna haft með sér óformlegt samstarf. Þeir hittast tvisar
á ári og vinna saman að úrlausn ýmissa mála, sbr. grein
Gísla Sverris Árnasonar í 6. tbl. Sveitarstjórnarmála
1994.
Eitt af verkefnum, sem unnið hefur verið að, er merki
fyrir almenningsbókasöfn. Erlendis er algengt að al-
menningsbókasöfn einstakra landa eigi sameiginlegt
merki, en ekkert alþjóðlegt merki er til.
Á vorfundi forstöðumanna í Vestmannaeyjum 1993
var skipaður starfshópur um merki fyrir íslensk almenn-
ingsbókasöfn. Hópurinn kynnti síðan niðurstöður sínar á
haustfundi í Grindavík sama ár og í framhaldi af því var
ákveðið að láta teikna nýtt merki fyrir söfnin. Einnig var
ákveðið að vinna samhliða að vegskilti í samvinnu við
Vegagerðina.
Á landsfundi bókavarða í Munaðamesi í september sl.
var merkið kynnt og samþykkt. Jón Ágúst Pálmason
hannaði merkið og lýtur vegskiltið reglum Vegagerðar-
innar um útlit, en litirnir í litaútgáfunni eru táknrænir
fyrir hin gömlu og virðulegu leðurinnbundnu bók til lífs-
og litagleði ungviðisins.
Litamerkið er í eigu Kynningarsjóðs almenningsbóka-
safna og er verið að vinna að reglum um notkun þess,
þær verða ræddar á næsta vorfundi sem verður að öllum
líkindum haldinn í Stykkishólmi í maí nk. Um notkun
vegskiltisins gilda reglur Vegagerðarinnar.
Hulda Björk Þorkelsdóttir bœjarbókavöröur,
Keflavík-Njarðvík-Höfnum.