Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 29

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 29
FÉLAGSMÁL stoð sem veitt er í formi niður- greiddrar þjónustu, t.d. niður- greiddrar húsaleigu í leiguíbúðum sveitarfélaganna. Á Akureyri má ætla að fjárhagsaðstoð af því tagi sé jafnmikil beinum greiðslum. Það ætti engum að dyljast að tilfærslum- ar sem fara eftir þessum leiðum eru engir smámunir á öllu landinu þótt þeim sé vissulega mjög misdreift. Aukning um 80% á tveimur árum og fullar horfur á sams konar áfram- haldi hlýtur að eiga sér einhverjar skýringar. Hvað veldur og hvemig verður framtíðin? Eg ætla að nefna þrennt til skýr- ingar á þessari þróun. Hið fyrsta og augljósasta eru versnandi kjör þeirra, sem fyrir vom tekjulægstir í þjóðfélaginu, fyrst og fremst beint eða óbeint fyrir tilkomu atvinnuleysisins á síðustu árum en það hafði verið nánast óþekkt í hátt í mannsaldur. Liðin er sú tíð að hver sem er, jafnvel öryrkjar, geti aukið tekjur sínar með því að auka við sig vinnu. Fjöldi fólks hefur um lengri eða skemmri tíma misst vinnu sína með öllu og verður að komast af á bótum, sem aukin heldur falla tíma- bundið niður, svo oft er um alls enga aðra kosti að ræða en fjárhags- aðstoð sveitarfélagsins. Vaxandi hópur, ekki síst ungs fólks, hefur aldrei komist inn á vinnumarkaðinn og á þar af leiðandi engan bótarétt. Yfir- og aukavinna, sem afkoma margra byggðist á, hefur dregist saman; þeir verða nú að komast af á berrössuðum töxtunum sem enginn vann á fyrir skemmstu. Samfara þessu hefur kaupmáttur rýrnað verulega undanfarin ár, skattleysis- mörkin hafa lækkað og skattbyrðin þyngst. Það er næsta augljóst að þetta samanlagt hefur leitt til aukins álags á fjárhagsaðstoð sveitarfélag- anna og er meginástæða aukningar- innar. Þetta er samt ekki svo augljóst að ekki sé rétt að leita lengra, hvort fleira komi til eða hvort aðrar ástæður séu þessari samferða. Önnur skýring, en vissulega veigaminni, er að viðhorfin til fjár- hagsaðstoðar eru að breytast. Það fymist yfir brennimarkið sem fylgdi fátækraframfærslunni nema helst í hugum eldra fólks sem man tvenna tíma. I hugum æ fleira fólks er fjár- hagsaðstoð sveitarfélagins að verða rétt eins og hver annar peningur, réttur sem maður á í myrkviði hins opinbera. Það hefur líka undanfarið verið rætt meira um fjárhagsaðstoð- ina, hún hefur verið kynnt meira, það hefur verið vísað á hana. Það er tvímælalaust af hinu góða. Ef við viljum halda utan um féð sem fer til fjárhagsaðstoðar þá eigum við ótví- rætt að velja til þess aðra aðferð en þá að umvefja hana slíkri skömmustukennd að fólk fælist hana. Þriðja skýringin, sem ég vil nefna, krefst nokkurs formála. Lengi hafa togast á tvö sjónarmið um það hvers eðlis fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna skuli vera. Annars vegar er það sjónarmið sem ég vil kalla „meðferðarsjónarmiðið“, hins vegar „tekjutryggingarsjónarmiðið“. Samkvæmt „meðferðarsjónarmið- inu“ er fjárhagsaðstoðin einstakl- ingsmiðuð hjálp, liður í eins konar meðferð, endurhæfingu eða endur- uppeldi fjölskyldu eða einstaklings. Hún er ekki markmið í sjálfu sér, hún er heldur ekki tæki til að jafna kjör fólks almennt. Hún er liður í því að gera þann, sem einhverra hluta vegna hefur ekki virkað sem skyldi, sjálfbjarga á ný. Hún er eins konar „rneðal" til þess, meðal sem á við þann vanda sem um er að ræða hverju sinni. Það kann að vera t.d. áfengisvandi, kæruleysi í fjármál- um, skilnaður eða óhapp. Fjárhags- aðstoðin er samkvæmt þessu sjónar- miði tæki til að koma einstaklingi eða fjölskyldu aftur á rétt ról, „hjálpa henni til sjálfshjálpar", eins og gjaman stendur í reglugerðum, alls ekki eina tækið, heldur eitt af mörgum; auk hennar koma til álita t.d. ráðgjöf, nám, stuðningsmeðferð, útvegun stuðningsúrræða annarra en fjár o.s.frv. Stundum getur „með- ferðin“ beinlínis verið fólgin í að neita fjárhagsaðstoð, t.d. neita að hjálpa til við að fjármagna áfram- haldandi óráðsíu, drykkju o.s.frv. og knýja þannig viðkomandi skjólstæð- ing til að endurskoða stefnu sína, finna sér nýjan farveg. Hlutverk fé- lagsráðgjafans, sem fæst við skjól- stæðinginn skv. þessu sjónarmiði, er dálítið keimlíkt hlutverki læknisins; hann reynir að velja hið rétta meðal, og stundum er það fé. Það þýðir ekki að öllum henti það meðal og enn síður að allir eigi rétt til sama meðals í sama skammti ekki frekar en aðrir íbúamir á heilsugæslusvæð- inu eignast rétt til að fá tiltekna pillu af því einu að Jón Jónsson fékk hana. Hér er fjárhagsaðstoð fyrst og fremst liður í meðferð skjólstæð- ings, sniðin að aðstæðum hans; hún er ekki tæki til að jafna kjörin í sam- félaginu almennt. Hér er gengið út frá að önnur tæki séu til þess. Tekjutryggingarsjónarmiðið gengur út á það að fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins sé tæki til að tryggja það að allir íbúar sveitarfélagsins hafi að minnsta kosti það fé milli handa sem þarf til að lifa af, hafi „það sem nauðsyn krefur", hvemig svo sem sú nauðsyn er skilgreind. Þá er reiknuð út gmnnupphæð, mið- uð við fjölskyldustærð, stundum er hún kölluð „kvarði", og sagt sem svo; allir sem hafa tekjur neðan við þennan kvarða eiga rétt til að fá uppbót á tekjur sínar frá sveitarfé- laginu uns kvarðanum er náð. Það þarf ekki lengi að grufla yfir að- stæðum þess sem er undir kvarða, hann á rétt á að fá viðbótina sem þarf. Tekjutryggingarsjónarmiðið vísar með öðrum orðum til eins konar réttar sem fólk á, alveg óháð því hvað þessum eða hinum félags- ráðgjafanum finnst, óháð því hvað viðkomandi ætlar að gera við pen- ingana; hvort hann fer vel með þá eða illa, hvort hann á þá skilið eða ekki, út frá einhverjum siðferðileg- um eða vitrænum sjónarmiðum. Þetta er bara réttur, eins og hver 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.