Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Blaðsíða 30
FELAGSMAL annar réttur, sem maður annaðhvort á eða á ekki. Þriðja skýringin sem ég vil nefna á aukningu fjárhagsaðstoðar er sú að ég held að lögin frá 1991 með kröfu sinni um að sveitarfélögin settu sér reglur um fjárhagsaðstoð hafi ýtt mjög undir tekjutryggingar- sjónarmiðið og skákað meðferðar- sjónarmiðinu nokkuð til hliðar. Það hefði ef til vill ekki breytt svo miklu, ef atvinnuleysið hefði ekki komið, og bæði bótaupphæðir, sem Alþingi ákveður, og launataxtar, sem meðal annars launþegar semja um, hefðu ekki verið svo lágir að þeir falla undir kvarðann. Eg get ekki sannað það með tölum á þess- ari stundu en það er fjallgrimm vissa mín að hlutfall fólks sem er í fullri vinnu eða á fullum bótum at- vinnuleysis- eða almannatrygginga hefur aukist meðal skjólstæðinga sveitarfélaganna að undanförnu. Sveitarfélögin, sem iðka tekjutrygg- ingarsjónarmiðið í fjárhagsaðstoð sinni, eru óvart, óviljandi og ennþá meira eða minna ómeðvitað, lent í því örðuga hlutverki að veita sjálf- krafa uppbót á atvinnuleysisbætur sem eru of lágar til að lifa af þeim, á almannatryggingabætur sem eru of lágar til að lifa af, og það sem verst er, á launataxta, sem eru of lágir til að lifa af þeim. Hvort sem einhverjum ofbýður það eða ekki verð ég að segja að hjá sæmilegri félagsmálastofnun fær fólk núna einfaldlega hærri tekjur í fjárhagsaðstoð heldur en af margri vinnunni, átta tíma á dag. Astæðan er sú að kvarðinn hjá félagsmála- stofnuninni er í betra sambandi við verðið á innkaupakörfunni. orku- reikningana, húsaleiguna og allt hitt sem borga þarf heldur en lágu laun- in í landinu eru. Og því miður, það eru afar margir á lágu launununt í þessu landi. Haldi svo sem horfir geta þeir sem ákvarða of lága bóta- taxta og semja um laun, sem þeir vita vel að eru ekki lífvænleg, brátt farið að gera hvort tveggja með betri samvisku í ljósi þess að hin bláeygu sveitarfélög borgi sjálfkrafa það sem á milli ber. Þetta held ég að sé samspil ástæðnanna fyrir mikilli aukningu fjárhagsaðstoðar sveitarfélaganna hin síðari ár. Sé það hald mitt rétt mun þessi aukning halda áfram. Sé það hald mitt rétt eru sveitarfélögin sem standa sæmilega að fjárhagsað- stoð sinni í nokkuð vondum málum; og íbúar hinna sveitarfélaganna sem hunsa hana í enn verri málum. Sé þetta hald mitt rétt er veruleg ástæða til þess fyrir sveitarfélögin að staldra við og spyrja sig og ríkis- valdið eða samfélagið allt hvort þetta sé heppileg leið og leiðin sem við viljurn fara. Verði svars vant má spyrja frændur okkar í Færeyjum, sem hafa safnað nokkurri reynslu af svipaðri þróun. SET FRÁRENNSLISRÖR • Engin veggþynning í múffu og fullkomin þétting með tvöföldum láshring tryggir öruggan frágang. • Jarðvegslagnir Pvc 100mm, 150mm og nú einnig 200mm. • Innanhúslagnir Pp 40mm, 50mm, 70mm og 100mm. • Bjóðum einnig tilheyrandi tengistykki. EYRAVEGI 43 • 800 SELFOSSI Box 83 • SÍMI 98-22700 • Fax 98-22099
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.