Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Qupperneq 31
BARNAVERND
Embætti umboðsmanns barna
stofnað
Þórhildur Líndal, umboðsmaður bama
Embætti umboðsmanns
bama var stofnað 1. janúar
1995 í samræmi við lög nr.
83/1994. Umboðsmaður
bama er skipaður af forseta
Islands, að tillögu forsætis-
ráðherra, til fimm ára í
senn. Þórhildur Líndal lög-
fræðingur hefur verið skip-
uð fyrsti umboðsmaður
barna. I lok janúar var
Ragnheiður Harðardóttir
félagsfræðingur ráðin til
embættisins, en hún mun
bæði hafa með höndum
skrifstofuhald og vera um-
boðsmanni til aðstoðar við
mótun embættisins.
Umboðsmaður barna er
talsmaður tiltekins aldurs-
hóps í samfélaginu, þ.e.
allra bama að 18 ára aldri.
Verkefnin geta því verið
mjög yfirgripsmikil og
raunar er það aðeins hug-
myndaflugið sem setur
þeim skorður. Börn eru
ekki þrýstihópur í samfé-
laginu og vegna æsku sinnar geta
þau ekki komið sjónamiiðum sínum
á framfæri við þá sem taka ákvarð-
anir. Með stofnun embættis um-
boðsmanns barna er kominn vett-
vangur fyrir böm þar sem þau geta
leitað liðsinnis sérstaks embættis-
manns sem talar máli þeirra og
vinnur að hvers konar almennum
velferðarmálum þeirra.
Umboðsmaður er í störfum sínum
sjálfstæður og óháður fyrirmælum
frá stjómvöldum. Hann skal vinna
að því að l'ullt tillit sé tekið til rétl-
inda, þarfa og hagsmuna bama jafnt
hjá opinbemm sem einkaaðilum við
lagasetningu, ákvarðanatöku og
skipulagningu í samfélaginu. Með
hliðsjón af þessu skal hann koma
með ábendingar og tillögur um úr-
bætur til hagsbóta fyrir böm á öllum
sviðum samfélagsins.
Til umboðsmanns bama geta allir
leitað með erindi sín, böm, fullorðn-
ir, stofnanir og fyrirtæki. Eðli máls-
ins samkvæmt er sérstaklega brýnt
að umboðsmaður heyri raddir þeirra
barna og ungmenna sem hann á að
vera talsmaður fyrir. Umboðsmaður
bama tekur mál til meðferðar í kjöl-
far rökstuddra ábendinga eða að
eigin frumkvæði. Hann ákveður
sjálfur hvort ábending gefi
tilefni til meðferðar af hans
hálfu og er ákvörðun hans
endanleg. Að eigin frum-
kvæði er umboðsmanni
barna heimilt að taka til
meðferðar málefni sem
hann telur varða hag barna.
Þjónusta umboðsmanns
bama er endurgjaldslaus.
Umboðsmanni barna er
ekki ætlað að taka við verk-
efnum sem stjórnvöldum,
stofnunum eða einstakling-
um hefur lögum samkvæmt
verið falið að vinna að í
þágu bama. Þannig er um-
boðsmanni ekki ætlað að
hafa afskipti af málefnum
einstakra barna, deilum
forsjáraðila og stofnana eða
öðrum einstaklingsbundn-
um ágreiningsefnum hvort
heldur þau eru á sviði
barnaréttar, barnaverndar,
skólamála eða á öðrum
sviðum.
Utbúinn hefur verið
kynningarbæklingur um embætti
umboðsmanns bama sem einkum er
ætlaður bömum.
Ætlunin er að dreifa honum í alla
grunnskóla landsins, en honum
hefur þegar verið dreift í Reykjavík.
Þá hefur einnig verið gefinn út
bæklingur sem er ætlaður fullorðn-
um. Hægt er að fá báða bæklingana
á skrifstofu embættisins að Hverfis-
götu 6, 5. hæð, en þar er opið alla
virka daga frá kl. 9 til kl. 15. Síminn
þar er 552 8999 og bréfasíminn er
552 8966.
25