Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 35
VEITUR
Leirhöfn. Dýrleif Andrésdóttir tók myndina.
hins vegar ekki nema 40% þátttaka.
Því varð sú lögn að bíða um sinn, en
stefnt er að nýrri þátttökuathugun
fyrir lok ársins 1997, en skv. hag-
kvæmnisútreikningum er 90% þátt-
taka lágmark.
Framkvæmdastjóri, Guðmundur
Örn Benediktsson, var ráðinn til
starfa og hafist var handa við að
lagfæra borholuna, sem boruð hafði
verið á árinu 1988. Dæluhús með
gufuskilju var byggt skammt frá
holunni og stofnæð lögð þaðan að
fiskeldisstöðinni Silfurstjömunni og
hún tengd. Heimæð var svo lögð frá
Silfurstjömunni í Núp I, vélaverk-
stæði Guðmundar og Núp II og var
notkun hafin hjá þessum aðilum fyr-
ir jól.
Dreifikerfið á Kópaskeri og heim-
æðar bænda voru frágengnar sl.
haust og tvö af fjórum dæluhúsum
byggð. Einmuna tíð og samhugur í
verki varð til þess að framkvæmdir
gengu vonum
framar og
engin slys
urðu á mönn-
um né stór-
felldur kostn-
a ð a r a u k i.
Verkið var
unnið af
heimamönn-
um að lang-
mestu leyti
og bændur
sáu sjálfir um
sínar heim-
t a u g a r .
Kostnaðará-
ætlun hljóðar
upp á rúmar
63 milljónir
króna fyrri áfanginn sem lokið verð-
ur við í sumar.
Öxarfjörðurinn hefur að geyma
eitt öflugusta háhitasvæði landsins
og gríðarlegir möguleikar eru í boði
með Jökulsá á Fjöllum í næsta ná-
grenni til kælingar vatns og/eða guf-
unnar niður í nánast hvaða hitastig
sem verkast vill.
Borholan við Skógalón var upp-
haflega hugsuð sem rannsóknar-
hola, en þar sem fjármagn var ekki
nægilegt af hálfu ríkisins til fram-
kvæmdanna var leitað eftir stuðn-
ingi heimamanna. Seljalax hf. með
Björn Benediktsson, fyrrverandi
oddvita, í broddi fylkingar lagði til
fjármagn með því skilyrði að holan
yrði miðuð við að geta nýst heima-
mönnum ef hún heppnaðist og sú
varð reyndin. Holan, sem er 322 m
djúp, gefur 40-50 1/sek. í sjálf-
rennsli af 98° C heitu vatni. Sýni af
vatninu og gasi voru tekin upp úr
holunni við Skógalón fljótlega eftir
borun og kom þá í ljós að nokkurt
magn lífrænna gastegunda greindist.
Fundur þessa lífræna gass er frá-
brugðinn venjulegum háhitagasteg-
undum og er einstæður hér á landi.
Með tilkomu Hitaveitu Öxarfjarð-
arhéraðs er fyrst og fremst um aukin
lífsgæði að ræða til handa íbúunum,
en einnig er veitan kærkomin í ný-
sköpun eins og ferðaþjónustu, sem
við viljum leggja áherslu á sem upp-
bót á samdrátt í sauðfjárrækt á
svæðinu.
EGLA
-röð ogregla
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Símar: 628450 688420 688459
Fax 28819
]/l0u
vb.muis
29