Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 36

Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 36
AFMÆLI „A svörtum fjöðrum“ Ingóljur Armannsson, menningarfulltrúi Akureyrarbœjar „Krunk, knink, krá. Svívirtu ekki söngva þá, er svörtum brjóstum komafrá, því sólelsk hjörtu í sumum slá, þótt svprtum fjöðrum tjaldi, svörtum fjöðrum í sólskininu tjaldi. “ Laugardaginn 21. janúar sl. voru liðin 100 ár frá fæðingu Davíðs Stefánssonar, skálds frá Fagraskógi og heiðursborgara Akureyrar. Vegna þessara tímamóta hafa stofn- anir og bæjaryfirvöld á Akureyri haft forgöngu unt ýmiss konar dag- skrár til kynningar á skáldinu og verkurn hans. A afmælisdaginn bauð bæjar- stjóm ættingjum skáldsins til hátíð- ardagskrár í Davíðshúsi, fyrrurn heimili skáldsins, sem nú er í eigu bæjarins og rekið sent safn í minn- ingu hans. Síðar urn daginn var svo bæjarbúum boðið í Amtsbókasafn- ið, þar sent opnuð var sýning á verkunt og munum sem tengjast Davíð. Verður sú sýning opin safn- gestum fram eftir vetri. Við opnun- ina afhentu erfingjar Davíðs Hér- aðsskjalasafninu handrit frá skáld- inu. Um kvöldið frumsýndi Leikfé- lag Akureyrar síðan „A svörtum fjöðrum", leikverk byggt á ljóðum Davíðs. Skólarnir á Akureyri hafa einnig kynnt Davíð og skáldskap hans sér- staklega í vetur. Amtsbókasal'nið gaf út lítið kver með völdum ljóðum eftir Davíð, sem dreift var til allra skólanemenda í bænum. Þá stendur til að 70-80 bekkjardeildir úr grunn- og framhaldsskólunum heimsæki Davíðshús og Amtsbóka- safnið til að kynna sér líf og störf skáldsins. Á vordögum ætla kórar í bænum og næsta nágrenni að hafa Davíðs- hátíð með söng og ljóðakynningum. I sumar eru fyrirhugaðar vikulegar dagskrár í Davíðshúsi fyrir heima- fólk og ferðafólk. Við hvetjum því alla, sent leið eiga til Akureyrar í ár, til að rifja upp kynni sín við skáld- skap Davíðs og nýta sér það sem boðið verður í þeim efnum. Davlöshús á afmælisdegi skáldsins 21. janúar 1995. Forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Sigfríöur Porsteinsdóttir, flytur ávarp á afmælisdaginn. Ættingjar skálds- ins í Daviðshúsi á afmælisdaginn 21. janúar sl. Páll A. Pálsson, Ijós- myndastofa, Sklpagötu 8, Ak- ureyri, tók mynd- irnar meö grein- Inni. 30

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.