Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Síða 51
VERKASKIPTING RIKIS OG SVEITARFE LAGA
Grunnskólinn til sveitar-
félaganna 1. ágúst 1996
Við afgreiðslu grunnskólafrum-
varpsins á lokadegi þingsins var yf-
irfærslu alls rekstrarkostnaðar skól-
anna til sveitarfélaganna frestað um
eitt ár frá því sem áður var gert ráð
fyrir eða til 1. ágúst 1996.
Tilfærslan er einnig skilyrt. I 57.
grein hinna nýju grunnskólalaga
númer 66/1995, sem staðfest voru 8.
mars, segir:
„Lög þessi öðlast þegar gildi og
koma að fullu til framkvæmda 1.
ágúst 1996, enda hafi Alþingi þá
samþykkt:
a. Breytingu á lögum um Lífeyr-
issjóð starfsmanna ríkisins sem
tryggi öllum þeim kennurum og
skólastjórnendum við grunnskóla,
sem rétt hafa átt til aðildar að Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins, að-
ild að sjóðnum.
b. Lög um ráðningarréttindi kenn-
ara og skólastjórnenda við grunn-
skóla sem tryggi þeim efnislega
óbreytt ráðningarréttindi hjá nýjum
vinnuveitanda. Komi upp ágreining-
ur milli samtaka kennara og sveitar-
félags um form eða efni ráðningar-
réttinda getur hvor aðili um sig ósk-
að gerðardóms í málinu.
c. Breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga með tilliti til
þeirra auknu verkefna er sveitarfé-
lög taka að sér samkvæmt lögum
þessum.“
Fyrirvarar þessir eru í samræmi
við samþykkt sem stjóm sambands-
ins gerði samhljóða á aukafundi
hinn 14. febrúar þar sem áréttaðir
vom þeir fyrirvarar sem gerðir vom
á síðasta landsþingi sambandsins á
Akureyri 2. september, að fullt sam-
komulag næðist milli nkis og sveit-
arfélaga varðandi flutning tekju-
stofna til sveitarfélaganna til að
standa undir öllum þeim aukna
kostnaði sem yfirtökunni fylgir.
Heildarkostnaður grunnskólans á
árinu 1994 var u. þ. b. 10,3 milljarð-
ar króna og skiptist þannig að hlutur
ríkisins var áætlaður 5,3 milljarðar
en hlutur sveitarfélaganna um 5
milljarðar. Nýju gmnnskólalögin og
nýgerðir kjarasamningar við kenn-
ara leiða til aukins kostnaðar við
rekstur grunnskólans sem taka
verður tillit til við yfirfærslu
verkefnisins til sveitarfélaganna.
Til þess að standa undir auknum
kostnaði vegna yfirfærslu grunn-
skólans til sveitarfélaganna er stefnt
að hækkun á hlutdeild þeirra í stað-
greiðslufé.
■jfc, TILKYNNING
^|gB| til sveitarfélaga um styrki
til fráveituframkvæmda
Þau sveitarfélög, sem hyggjast sækja um styrki til
fráveituframkvæmda samkvæmt lögum nr. 53/1995 um
stuðning við framkvæmdir sveitarfélaga í fráveitumál-
um, skulu senda fráveitunefnd umhverfisráðuneytisins,
Vönarstræti 4, 150 Reykjavík, umsókn fyrir 1. júlí nk.
vegna framkvæmda á tímabilinu 1. maí 1995 til 31.
desember 1995.
Framkvæmdir við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna,
rotþrær, hreinsi- og dælustöðvar og útrásir geta notið
styrks.
Með umsókninni skal fylgja heildaráætlun um frá-
veituframkvæmdir í sveitarfélaginu sem fyrirhugað er
að sækja um styrk fyrir og sérstök áætlun um þann
áfanga sem áætlað er að vinna á yfirstandandi ári.
Einnig skulu fylgja með umsókninni tæknilegar upplýs-
ingar um framkvæmdina ásamt teikningum og sundur-
liðaðri kostnaðaráætlun. Skilyrði fyrir fjárstuðningi er
að framkvæmdimar séu áfangi í heildarlausn á fráveitu-
málum sveitarfélagsins.
Styrkir til sveitarfélaga vegna framkvæmda í frá-
veitumálum á árinu 1995 verða greiddir sveitarfélögun-
um fyrir 1. maí 1996 að því gefnu að sveitarfélög sem
fá stuðning sendi fráveitunefnd fyrir 1. mars 1996 upp-
lýsingar um raunkostnað sveitarfélagsins vegna fram-
kvæmda við fráveitumál í samræmi við áður senda
áætlun.
Umhverfisráðuneyti ð