Sveitarstjórnarmál - 01.03.1995, Qupperneq 56
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM
25. aðalfundur SASS:
Umhverfismál og yfirtaka grunnskólans
25. aðalfundur Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga (SASS) var
haldinn á Kirkjubæjarklaustri 12. og
13. ágúst 1994.
Til fundarins komu 59 fulltrúar
frá öllunt sveitarfélögunum 29, auk
þess þingmenn kjördæmisins, fram-
sögumenn og nokkrir gestir sem
boðnir voru sérstaklega í tilefni 25
ára afmælis SASS.
Fundarstjórar voru Bjarni J.
Matthíasson oddviti og Valur Odd-
steinsson, hreppsnefndarmaður í
Skaftárhreppi, en fundarritarar
hreppsnefndarmennirnir Drífa
Hjartardóttir í Rangárvallahreppi og
Ami J. Elíasson í Skaftárhreppi.
Steingrímur Ingvarsson, fomiaður
SASS, flutti starfsskýrslu stjórnar
en áður hafði skýrsla framkvæmda-
stjóra og untdæmisnefndar verið
send fulltrúum.
Hjörlur Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri SASS, kynnti reikn-
inga samtakanna fyrir árið 1993 og
fjárhagsáætlun fyrir árið 1994. Nið-
urstöðutölur á efnahagsreikningi
voru kr. 18.256.287, en rekstrar-
gjöld SASS og sérdeildar voru
18.060.813 kr.
Séra Sigurjón Einarsson, fomiað-
ur fræðsluráðs, greindi frá störfum
ráðsins og lagði til að skipuð yrði
nefnd til að gera tillögur að sam-
starfi sveitarfélaganna og verksviði
fræðsluráðs vegna væntanlegrar yf-
irtöku grunnskólans.
Séra Sigurður Arni Þórðarson,
fomiaður Menningarsamtaka Sunn-
lendinga (MENSA), flutti starfs-
skýrslu þeirra. Hann greindi frá fyr-
irhuguðu málþingi á vegum
MENSA.
Birgir Þórðarson, fulltrúi hjá
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, flutti
skýrslu í forföllum framkvæmda-
stjóra þess og Hjörtur Þórarinsson
skýrði reikninga ársins 1993 og
rekstraráætlun 1994.
Framsöguerindi
Össur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra ávarpaði fundinn. Lagði
hann áherslu á gott samstarf urn-
hverfisráðuneytisins og sveitar-
stjórna. Sérstakt átak kvað hann
þurfa að gera í skipulagsmálum,
bæði í byggð og á hálendi. Þá ræddi
hann urn fráveitu- og sorpeyðingar-
mál. Skýrði hann frá kynningar-
fundum um allt land til að efla sam-
skipti milli áðurgreindra aðila.
Björn Guðbrandur Jónsson um-
hverfisfræðingur ræddi um um-
hverfismál og möguleika á endur-
nýtingu úrgangsefna. Sérstaklega
ræddi hann endurvinnslu jarðvegs-
bætandi úrgangsefna og nýtingu
þeirra. Nefndi hann góð dæmi með
úrvinnslu garðaúrgangs.
Birgir Þórðarson benti í erindi
sínu, Hreint Suðurland, á samspil
milli heilbrigðis- og mengunar-
vamaeftirlits annars vegar og þróun-
Frá aöalfundinum á Klrkjubæjarklaustri. í ræöustóli er Steingrimur Ingvarsson, formaö-
urSASS.
50